Árbók Læknafélags Íslands - 01.01.1935, Page 70
70
setningu, og er það efni eða s.ú samsetning greind í lyf jaskránni
eða löggiltu lyfseðlasafni, og má ekki láta lyfið úti undir
öðru nafni en því, er í lyfjaskránni eða lyfjasafninu greinir,
að viðbættu tákni þess í hverju formi lyfið er látið úti (pilu-
lae, tablettae o. s. frv.). Við nafnið, að viðbættum styrkleika
eða þyngd, má að öðru leyti aðeins skeyta vörumerki eða
firmanafni.
Nafn á lyfi lyfjaskrárinnar eða löggilts lyfjasafns má ekki
viðhafa um annað lyf, sem úti er látið, hvorki eitt út af fyrir
sig, í heilu lagi eða skammstafað, né með neinskonar viðbót,
nema um samnefni sé að ræða í annari lyfjaskrá og sé lyfið
látið úti eftir henni, enda sé það þá gefið til kynna.
9. gr. Nú er á lyfseðli sagt fyrir um stærri skammt (einstakan
skammt eða dagskammt) af einhverju lyfi,en Iyfjaskráin segir
fyrir um, aS mest megi gefa af því, og skulu þá þær tölur,
sem viS þaS lyf eiga á lyfseSlinum, jafnframt ritaðar í orSum.
Að öðrum kosti má ekki láta lyfið af hendi. Ef um samsett
lyf er að ræða og í lyfjaskránni sagt fyrir um stærsta skammt
(einstakan skammt eða dagskammt) af fleiri en einu efni
lyfsins, skal reikna út, hvað hver einstakur skammtur hvers
efnis um sig, sem tilgreindur er á lyfseðlinum, sé mikill hluti
af stærsta einstökum skammti lyfjaskrárinnar. Hlutfall dag-
skammtanna sé fundið á sama hátt. Þessar hlutfailstölur hinna
einstöku skammta, svo og dagskammta, skal leggja saman
hvorar um sig, og fari önnurhvor útkoman fram úr 1, má ekki
láta lyfiJS af hendi, nema skammtur þessara efna sé á lyf-
seðlinum ritaður bæði með tölum og í orðum.
10. gr. Þau lyf, er nú greinir, má ekki selja í lausasölu eða eftir
afriti af lyfseðli:
a. Lyf, er lyfjaskráin leggur fyrir, að geymd skuli í eiturskáp
og öll önnur álíka hættuleg lyf, þau, sem ekki eru löghelg-
uð (officinel), í hvaða blöndum eða samsetningum sem er
(sbr. þó 11. gr. a.).
b. Ópíum, morfín og morfínsölt, kókaín og kókaínsölt, í hvaða
blöndum eða samsetningum sem er.
c. Acetanilidum. Acetphenolisatinum. Acidum diaethylbarbi-
turicum. Acidum phenylaethylbarbituricum. Aetheroleum
Chenopodii anthelminthici. Aethylmorphini hydrochloridum.
Agaricinum. Allypropynalum. Amidopyrinum. Amyleni hy-
dras. Amylii nitris. Apomorphini hydrochloridum. Benzo-
cainum. Bromisovalum. Calomel. Cantharis. Carbromalum.
Chlorali hydras. Chloroformium. Chloroformium pro nareosi.
Chromi trioxydum. Cinchophenum. Codeini hydrochloridum.
Codeini phosphas. Codeinum. Diacetylmorphini hydro-