Árbók Læknafélags Íslands - 01.01.1935, Blaðsíða 67
67 Dispensatorium Danicum 193U
Histamini hydrochloridum. Dos. max.: 1 mllgr. (sólarhr. 1 mllgr.).
Lobelini hydrochloridum. Dos. max.: 2 ctgr. (sólarhr. 10 ctgr.).
Methylatropini bromidum. Dos. max.: 3 mllgr. (sólarhr. 10 mllgr.).
Natrii auri chloridum. Dos. max.: 1 ctgr. (sólarhr. 1 ctgr.).
Paraformaldehydum (Paraform).
Pyroleum Betulae.
Pyroleum Fagi.
Auglýsing til lækna og lyfsala.
um reglur varSandi gercS IyfseSJa og afgreiSsIu lyfja.
1. gr. Lyfseðill (recept) er samkvæmt reglum þessum lyfjaávís-
un, gerð úr garði á þann hátt, er nánar greinir í 2. gr. hér á
eftir, og út er gefin af:
a. Lækni, er lækningarétt eða lækningaleyfi hefir hér á landi.
b. Tannlækni til tannlækninga, enda hafi hann tannlækninga-
leyfi hér á landi.
c. Dýralækni til dýralækninga, enda hafi hann fullkomið dýra-
lækningaleyfi hér á landi.
d. Ljósmóður á lyf þau, sem ljósmæðrum er sérstaklega heim-
ilað að ávísa til að nota við ljósmæðrastörf (sbr. Ljós-
mæðrareglugerð 23. okt. 1933, 7. gr., og Áhalda- og lyfja-
skrá ljósmæðra 12. febr. 1934) og aðeins henni sjálfri í
hendur.
Lyfseðilsafrit (receptcopi) er samkvæmt reglum þessum af-
rit, er lyfsali eða lyfjafræðingur, er starfar hjá lyfsala, tek-
ur af lyfseðli, og telst þar til áritun á lyf samkvæmt 6. gr.
hér á eftir.
2. gr. Lyfseðla skal rita á latínu. Ljósmæður rita þó sina lyf-
seðla á íslenzku. Þunga hvers lyfs skal tilgreina í grömmum,
centigrömmum eða milligrömmum. Lyfseðlar skulu vera
greinilega ritaðir og engar þær skammstafanir á þeim, er
valdið geti misskilningi. Þegar lyfseðill er ritaður eftir ann-
ari lyfjaskrá en þeirri, sem löggilt er hér á landi eða eftir
lyfseðlasafni, þá ber að geta þess á lyfseðlinum. Sérhver lyf-
seðill sé undirritaður af útgefanda og þess getið, hvort hann
sé læknir, tannlæknir, dýralæknir eða Ijósmóðir. Þá skal
lyfseðillinn og vera dagsettur, og má ekki láta úti lyf eftir
honum nema svo sé. Þess skal ennfremur getið á lyfseðlin-
um, hvaða manni eða dýri lyfið er ætlað; sé um barn að
ræða, þá skal tilgreina aldur þess. Jafnframt nafni sjúklings-
ins skal geta um heimilisfang hans eða heimilisfang eiganda
5*