Árbók Læknafélags Íslands - 01.01.1935, Síða 75
75
afrita lyfseðla, þar sem kódeíni eða kódeínsöltum er ávís-
að, nema lyf þessi séu blönduð eða uppleyst, ein virkra
efna, í vatni, vínanda, sykursafa, eða öðru þess háttar, svo
og þegar um samsettar lyfjablöndur er að ræða, ef hver
einstakur skammtur fer fram úr 2 ctgrm. og meira er látið
úti í einu en nemi 50 ctgrm. af kódeíni.
Lyfseðla þessa má eigi afgreiSa, nema á þeim standi nafn og
heimiii sjúklingsins eða viðtakanda, ef ekki er sjúklingur
(læknir, sjúkrahús), eða nafn og heimili eiganda skepnu þeirr-
ar, sem lyfið er ætlað, ef um dýr er að ræða.
21. gr. Um hverskonar áfengisútlát lyfjabúða og lækna og um
áfengislyfseðla fer eftir sérstökum reglum, sem settar eru eða
settar kunna, að verða samkvæmt áfengislögum.
22. gr. Ekki má lyfsali afgreiða lyf eftir lyfseðli, lesnum í síma,
nema hann sannfæri sig um, að útgefandinn lesi hann sjálf-
ur, enda hafi hann rétt til að gefa út slíkan lyfseðil.
Læknum og öðrum, sem rétt hafa til að gefa út lyfseðla, er
óheimilt að ávísa lyfjum á þenna hátt í símtali, nema í mjög
brýnni nauðsyn vegna fjarlægðar frá lyfjabúð eða annars.
Lyfsali gengur ríkt eftir því um alla simalyfseðla, að nákvæm-
lega sé sagt fyrir um skammta og aðrar notkunarreglur, og
má ekkert lyf láta úti á þennan hátt, án þess að nákvæm notk-
unarforsögn sé árituð. Þetta nær þó ekki til lyfja, sem úti
eru látin til lyfjabúða, lækna og dýralækna eða sjúkrahúsa,
né til lyfja, sem læknar, tannlæknar, dýralæknar eða ljósmæð-
ur ávísa sjálfum sér til að nota við störf sín.
23. gr. Um lausasölu lyfja og lyfjavarnings er þessa að gæta:
Hvert lyf og lyfjaefni skal árita sem alþýðlegustu verzlunar-
nafni.
Ef um samsett lyf er að ræða, sem ekki er löghelgað undir
einu nafni eða almennt þekkt undir einu nafni, skal árita sam-
setninguna.
Ekki má árita skammt lausasölulyfja, nema samkvæmt sér-
stökum fyrirmælum. Þó má fyrst um sinn láta úti sérlyf, þó
að notkunarforsögn fylgi.
Ekki má selja lyf í sjálfsölum, nema samkvæmt sérstökum
fyrirmælum.
24. gr. Ef úti eru látnar til lækninga sterkar sýrur eða lútar eða
önnur fljótandi efni, er valdið geta bruna, skal afhenda þau
í sexstrendum glösum eða flöskum og séu þrír fletirnir með
þéttum, upphleyptum rákum eftir endilöngu. Þessa er þó ekki
krafist, ef um stærri ílát er að ræða en 750 em3.
Lyf þau, talin í 13., 14. og 15. gr., sem ætluð eru til inntöku
og úti eru látin í sætum vökva eða sem sæt ber, tölur o. s. frv.,