Árbók Læknafélags Íslands - 01.01.1935, Blaðsíða 23
23
I. Ýms líknarfélög.
Félag íslenzkra Kjúkrunarkvenna.
Stofnað 1920. Stéttarfélag lærðra íslenzltra hjúkrunarkvenna.
Félagatala 74.
Námstími 3 ár. Inntökuskilyrði: Gagnfræðamenntun eða nám
hliðstætt því. — Aldurstakmark: Yfir 20 ára og undir 30 ára. —
Heilsufar skv. útsendum læknisvottorðseyðublöðum.
Formaður félagsins er frú Sigríður Eiríksdóttir, Ásvallag. 2,
sími 1960, <*r gefur allar upplýsingar, en eyðublöð undir inntöku-
beiðnir og læknisvottorð fást hjá forstöðukonu hjúkrunarkvenna-
skólans, ungfrú Kristínu Thoroddsen, Landspítalanum, sem einnig
gefur allar upplýsingar.
Bei-klavarnaféíag Islands
tók við af gamla Heilsuhælisfélaginu. Beitir sér fyrir ýmsu við-
víkjandi berklavörnum samkv. lögum félagsins.
I stjórn eru: Magnús Pétursson héraðslæknir og Eggert Claes-
sen hrm. gjaldkeri.
Blindravinafélag íslands.
Stofnað 24. jan. 1932. Stjórn: Sig. P. Sívertsen próf. formaður,
Þorst. Bjarnason framkv.stj., Margrét Rasmus féhirðir, Halldóra
Bjarnadóttir og Sig. Thorlacius.
Tilgangur félagsins er að leitast við á sem flestan hátt að
hjálpa og hlynna að blindum mönnum hér á landi, ungum og
gömlum.
Félagið starfrækir skóla fyrir blind börn og unglinga. Kennsl-
an er bæði bókleg og verkleg. Kennslugjald 500 kr. fyrir 7% mán-
uð, þar í innifalið gjald fyrir allan dvalarkostnað (húsnæði, fæði,
Ijós, hiti o. s. frv.).
Einnig er starfrækt vinnustofa fyrir blinda, unga og gamla, og
vinna þeirra seld. Kennsla á vinnustofunni er ókeypis.
Allar upplýsingar um inntöku í skólann og á vinnustofu gefur
stjórn félagsins.
Hjúkrunarfélag Reykjavíkur.
Stofnað 1902. Tilgangur sjúkrahjúkrun á heimilum nótt og
dag. Hefir 1 hjúkrunarkonu og 1 vökukonu, sem láta hjúkrun í té
gegn vægu gjaldi og ókeypis handa efnalitlu fólki, enda styrkt af
bæjarsjóði.
Magnús Pétursson héraðslæknir er formaður.