Nýtt Helgafell - 01.05.1958, Blaðsíða 10

Nýtt Helgafell - 01.05.1958, Blaðsíða 10
4 HELGAFELL Mál kosningaúrslita er einfalt. Það er annaðhvort já eða nei. En neit- unin, andmælin verða ætíð skvrari og ótvíræðari. Það er auðveldara og óbrotn- ari athöfn hverjum manni að hafna því, sem hann vill ekki en að velja það, sem hann telur rétt og eftirsóknarvert. Og þannig er það í kosningum. Þær gefa auð- veldlega til kynna, ef kjósendur eru óánægðir, en veita sjaldnar skýr og já- kvæð umboð til að reka ákveðna stefnu til enda. Ottinn við dóm kjósenda, er fellt geti þá úr valdastóli verður því oft sterkasta ástríða stjórnmálamanna. Það freistar þeirra til að fela fyrir almenningi óþægilegar staðreyndir í lengstu lög, til að gylla fyrir honum framtíðina og kaupa fylgi hans með alls konar fríðindum, sem þeir einatt vita að eru þjóðinni raunverulega ofviða. Sérstaklega er hætt við, að þessi vcikleiki komi sterkt fram í litlu þjóðfé- lagi, eins og á Islandi, þar sem utan stjórn- málaflokkanna er varla til sjálfstætt al- menningsálit, er geti forðað þeim frá því að innilokast af múrum sinna eigin blekk- inga og fordóma. Eg býð yður blóð, svita og tár, sagði Churchill við þjóð sína á einni mestu ör- lagastund mannkynsins, og með þessu misk- unnarlausa raunsæi bjó hann hana undir að lyfta því Grettistaki, er fram undan var. Það er að vísu fánýtt að vitna í styrjaldir, því að á friðartímum er slíkur samhugur heilla þjóða nær óhugsandi og ekki nema að vissu marki eftirsóknarverður. Fari hins vegar svo, að flokkadrættir og sjálfs- blekkingar stjórnmálanna lami að mestu ákvörðunarþor þjóðfélagsins, er þjóðskipu- lagi voru og manngildishugsjónum mikil hætta búin. Stjórnmálaástandið á íslandi heíur að undanförnu borið glögg merki vax- andi ótta við að taka erfiðar ákvarðanir. Kosningar þær til bæjarstjórnar, sem háðar voru í vetur virðast ekki hafa aukið þor þeirra, sem um stjórnartauma halda. Þær voru raunar gott dæmi kosninga, sem fyrst og fremst voru neikvæðar: yfirlýsing um óánægju og óþolinmæði kjósenda. Vinstri stjórnin fékk harðan dóm, stranga viðvör- un. Um hitt sögðu kosningarnar lítið, hvað mönnum helzt mislíkaði í stefnu hennar, og enn síður hvaða ráðstafanir af hennar hálfu til lausnar aðsteðjandi vandamálum mundu bezt séðar af kjósendum. Voru þeir eink- um óánægðir með aðgerðarleysi hennar og hik, eða voru þeir of blindaðir af blekk- ingum og sérhagsmunum til þess að vilja taka á sig nokkrar byrðar? Töldu þeir hana hafa gengið of langt í vinstri stjórnarstefnu sinni eða ekki nógu langt? Ekkert sam- komulag virðist um svör við þessum spurn- ingum meðal stuðningsmanna stjórnarinn- ar. Það er því sízt að íurða, þótt treglega hafi gengið að ná samkomulagi stjórnar- flokkanna um nauðsynlegar aðgerðir í l'jár- málum þjóðarinnar að kosningum loknum, enda eru loks núna, þegar þetta er ritað, þremur mánuðum eftir kosningarnar og fjórum eftir áramót, að koma fram frum- vörp ríkisstjórnarinnar um ráðstafanir í efnahagsmálum. Það var eðlilegt, að stjórnarandstaðan fagnaði sigri sínum í bæjarstjórnarkosn- ingunum. Með því náði hún því, sem virð- ist. hafa verið meginmarkmiðið, að veikja stjórnina í sessi. Á hinn bóginn mætti jafn- vel fylgismönnum Sjálfstæðisflokksins vera ljóst, að þetta er ekki nema hálfur sigur, enda lýstu forystumenn þeirra sjálfra því
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Nýtt Helgafell

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýtt Helgafell
https://timarit.is/publication/1049

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.