Nýtt Helgafell - 01.05.1958, Blaðsíða 25

Nýtt Helgafell - 01.05.1958, Blaðsíða 25
ÞÚ SKALT EKKI . . . 19 legastwr, frábitinn meinlætum. Ilann gat ekki liugsað sér, að menn fengju ekki annað en eilífan englasöng að launum fyrir gott og frómt líferni, og lofaði guðhræddum mönnum ungum, fögrum svarteygðum konum í para- dís. „Þrennt hef ég elskað mest,“ sagði spá- uiaðurinn „konurnar, dýrlegan ilm og bænina til guðs.“ En þegar hann nefnir þær veigar, sem bíði góðra manna í paradís, til að skála i við vini sína, þá hirðir hann ekki að geta um nema aðeins einn kost á drykknum: „hann leiðir ekki til ósiðlegs tals né syndar.“ Ósið- legt tal var synd, að dómi spámannsins. Eða þjónusta við ófínt innræti. Það hefði verið gaman fyrir báða, ef þeir hefðu getað hitzt, Arni Pálsson og Múhamed. Því þeir hefðu skilið hvor annan. .8 Stórskákl heimsins, svo sem Rússarnir uiiklu, Dostojefsky, Tolstoj, Tsjékov, hafa komizt furðu langt í því að lýsa mannlegu b'fi hræsnislaust, öllu sem vert er að lýsa, án þess að neitt sé í bókum þeirra, sem nokkurn þurfi að hneyksla. Hvar er þar nokkuð, sem ekki sé hægt að lesa upp á hvaða samkomu sem væri? Holdlegar ástríður ski])a þar sitt eðlilega rúm, sem meginþættir í lífi og ör- lögum, en frásögn öll af hreinum hug og orð- í;eri af náttúrulegri blygðun hins siðaða manns. Ekkert er fjarskyldara stíl þeirra og hugsun en strembingur minni höfunda síð- ari tíma við að setja ný og ný heimsmet í »frjálslyndi“ og „ hugrekki“, sem ekki er ann- uð en smekkleysi og apaháttur. Hin miklu skáld hafa trúað því að eitt þieginhlutverk bókmennta væri að siða mann- Inn> og að honum liði því betur því meir sem hann „mannaðist“ — þarna á íslenzkan gott orð. Þau hafa trúað því, að vaxandi fjarlægð milli manns og dýrs, fegrun siða °g fágun innrætis væru frumskilyrði mann- legrar hamingju. Aðdáanlegur er þessi kafli í bréfi frá Tsjékov til bróður hans, og lýsir skáldinu VeL og sennilega bróðurnum líka: »I>Ú hefur oft kvartað yfir því við mig, að fólk skilji þig ekki. Goethe og Newton kvört- uðu ekki yfir slíku. . . Fólk skilur þig full- VeL og ef þú sjálfur ekki skilur þig, þá er þér einum um að kenna. Þú hefur aðeins einn galla, eina vöntun, og vanlíðan þín staf- ar cingöngu af henni. Þessi galli er nær alger skortur á fágun (kúltúr). Þú verður að fyrir- gefa mér, en vinátta verður að víkja fyrir sannleikanum. Þú verður að skilja, að lífið setur sín skilj'rði. Til þess að líða vel hcima hjá'sér, og njóta sín innan um menntað fólk, verður maður að hafa fágazt, að minnsta kosti að vissu marki. Að mínu viti verður fágaður maður að fullnægja eftirfarandi skil- yrðum: að h@nn sýni hverjum manni fulla virðingu, og sé þess vegna æfinlega góður, mildur, kurteis og reiðubúinn að láta aðra ganga fyrir; að hann forðist lygina, eins og heitan eldinn, segi ekki ósatt, heldur ekki í smámunum; að hann geri ekki lítið úr sjálfum sér til þess að vekja vorkunn; ef hann hefur sérstaka hæfileika, þá leggur hann rækt við þá, og hann re.vnir að göfga sínar kynferði- legu eðlishvatir. Og svo framvegis. Það nægir ekki að hafa lesið Piclcwick Papers eða kunna eintöl úr Faust utan að.“ 9. Stuiidum hefur verið vitnað í orð Oscar Wilde: „Bækur eru hvorki siðlegar né ósið- legar. Þær eru vel cða illa skrifaðar, það er allt og sumt.“ Myndi þetta líka eiga við t. d. um guðspjöll- in — eða Das Kapital eftir Karl Marx? Eða myndu bækur geta haft áhrif, sem að minnsta kosti væru ekki eingöngu stílnum að þakka cða að kenna? Mér finnst orð Wildes ámóta viturleg og ef einhver segði: Menn eru hvorki spitltir né óspilltir, gáfaðir né heimskir, göfugmenni né varmenni, heldur fallegir eða ófríðir — það er allt og sumt. Wilde var, af sérstökum ástæðum, og með- an allt lék í lyndi, ekki við annað meira upp- sigað en orðið moral. Ekkert mátti vera moral, eða minnsta kosti allt lagt að jöfnu í þeim efn- um ■— og hvert tækifæri gripið til að gera allar vangaveltur út af slíkum hlutum hlægi- legar. Þessi hrokafullu látalæti vöndust ekki af Wilde fyrr en í fangelsinu, þegar hann skrif- aði játningu sína og sjálfsásökun, í De 'projundis. „I took pleasure where it pleased me“, o. s. fr. — og því fór sem fór. Osear Wilde var einn skemmtilegasti og á köflum stórvitrasti snillingur í bókmcnntum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Nýtt Helgafell

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýtt Helgafell
https://timarit.is/publication/1049

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.