Nýtt Helgafell - 01.05.1958, Side 26
20
HELGAFELL
heimsins. Raunverulega skoðun sína á áhrif-
um bókmennta lét hann í ljós í ritgerðinni
Hnignun lyginnar, sem er eitt af því sem
Wilde hcfur skrifað af dýpstri sannfæringu.
Hann heldur því fram, að lífið leitist æfin-
lcga, vitandi og óafvitandi, við að stæla listir
og bókmenntir, herma eftir þeim. Þess vegna
skipti miklu að þær séu fallegar — ef þær
séu ljótar verði lífið ljótara. Maðurinn
breytist með bókmenntunr og listum — sú
breyting sé óhjákvæmileg, og hvern dag að
gerast. Grikkir vissu, segir Wilde, að lífið fékk
frá listunum ekki einasta „anda, dýpt í hugs-
un og tilfinning, sálar-erfiði og sálar-frið“,
heldur gat það „endurframleitt sjálfar línur
og liti litanna, tiginleikann í verkum Fídías-
ar, yndisleikann í myndum Praxteles.“ Þess
vegna hafi Grikkir liaft óbeit á raunsæislist.
„Þeim fannst hún hlyti að gera fólk ljótt, og
það var rétt. hjá þeim.“ Sama gildir um bók-
menntir. Wilde nefnir mörg söguleg dænri um
áhrif þeirra á lífið. Hann virðist geta tekið
undir orð Kants: „Náttúran setur ekki viti
mannsins sín lög, heldur það henni“. Ég veit
ekki til þess að neitt skáld hafi haft sterkari
sannfæring en Wilde um rnátt bókmennta og
lista til að móta manninn, og setja svip á líf
hans — og vissulega ekki með því einu, hve
vel væri skrifað, málað eða meitlað.
Og fyrir rétti lagði Wilde áherzlu á, að
hvergi væri í bókum sínum neitt ófagurt —
nothing vulgar.
10.
C’est' le ton qui jait la musique, segir
franskt máltæki — það fer eftir tóninum
hvernig músíkin verður. „Gladdi ek ina goll-
björtu, gamni mær undi“ — stendur í Eddu.
En í nútímabókmenntum gætir vaxandi til-
hneigingar til lubbalegs munnsafnaðar og
hrárrar frásagnar um lægstu fyrirbrigði kyn-
ferðilegs lífs.
Þegar löggjafinn bannar svívirðilegt klám,
þarf hanjr engin önnur rök en þau, að menn
vilji ekki að slíkt komi fyrir augu barna sinna
né kvenna — og helzt einskis manns. Vilji það
ekki — það er allt og sumt.
Svívirðilegt tal um kynlíf manna og ógeðs-
legar klámmyndir eru árás á hæfileikann til
að elska og virða lífið. Ástin rnilli manns og
konu kom inn i heiminn með vissri blygðun
eða feimni. Ef kjóllinn hefði aldrei verið fund-
inn upp, væru cngar konur til, aðeins kvendýr.
Ef menn hefðu aldrei tamið sér siðað tal um
samlíf manns og konu, þá væri það af því,
að við værum ennþá aðeins dýr. Við viljum
ekki að óvirt sé og niðurbrotið neitt sem
áunnizt hefur í átt til sannrar siðmenningar.
Við viljurn ekki leyfa fólki að ganga nöktu
á götunni, né hvaða mynd sem er á málverj^a-
sýningu, né sölu klámmynda á strætum eða í
bókabúðum, né hvaða tal um kynlíf manna
sem oltið getur upp úr einhverjum rithöf-
undi — hvort heldur er af einfeldni, hégóma-
hætti, strákskap — eða jafnvel enn tilkomu-
minni hvötum.
Þegar Moses bauð: Þú skalt ekki nekja
líkama móður þinnar né systur — og margt
annað svipaðs eðlis, sem í forneskju varð að
banni, þá hafði hann engin rök franr að færa.
Ef kaldranar þeirra tínra hefðu getað stefnt
honunr á fund, til að standa fyrir máli sínu,
hefði nrátt lesa í yfirskriftum daginir eftir
(ef blöð hefðu þá verið til): Háðuleg útreið
— Moses algerlega rökþrota í fundarlok.
Moses hafði ekki öirnur rök en þau, að
boðorðin væru frá guði. Heiðingjar nútímans
myndu segja, að þau hafi verið fyrirskipuð af
þeinr eðlishvötum (instinktunr), sem lrafa
breytt okkur úr skepnu í nrannlega veru.
Og sönru eðlishvatir heimta, að löggjöf og
löggæzla siðaðra þjóða sé á varðbergi gegn
blygðunarleysi og apahætti — líka þegar slíkt
siglir undir fána bókmennta og lista.
Við íslendingar erunr ekki lengur fátæk þjóð
og ófrjáls. En þar fyrir er engin ástæða til þess
að okkur byrji að standa á sama unr ísland.
Hverju franr vindi, og hverskonar þjóð við
séunt að verða.
París, 3. nrarz lí)58
Kristján Albertsson
EFTIRMÁLI
Eftir ið ofanskráð bréf var sent heim, barst mér í
liendur Ixik Jóhannesar úr Kötlum, Roðastcinninn og rit-
frelsið. Flestu í henni, sem máli skiptir, er beint eða
óbeint svarað í bréfi mínu.
I’að glcður mig að skáldið lalar vinsamlega í minn
garð, og liefur skilið að afskipti mín af þessu máli voru
ekki sprottin af sadisma og fúlmennsku, svo sem vel