Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.2007, Qupperneq 12
Menning
þriðjudagur 21. ágúst 200712 Menning DV
Arnaldur á
toppnum í
Frakklandi
Grafarþögn eftir Arnald Ind-
riðason var á dögunum efst á
lista yfir mest seldu glæpasögur
Frakklands. Ætla má að sú stað-
reynd að Arnaldur hlaut hin
virtu frönsku verðlaun Grand
Prix des Lectrices de Elle 2007
fyrir Grafarþögn hafi nokkuð
með vinsældirnar að gera. Mýr-
in og Röddin voru ekki langt
undan – Mýrin í áttunda sæti og
Röddin í því tólfta. Þess má geta
að höfundar eins og Henning
Mankell og Fred Vargas mega
gera sér að góðu sæti neðar á
metsölulistanum.
Abbababb! aftur á fjalirnar
Fjölskyldusöngleikurinn Abbababb! eftir Dr. Gunna fer aftur á fjalirnar í
Hafnarfjarðarleikhúsinu í næsta mánuði. Sýningin, sem gekk fyrir fullu húsi
seinni hluta síðasta vetrar, fékk góða dóma hjá gagnrýnendum og hlaut
Grímuna í júní sem besta barnasýning leikársins. Fyrsta sýningin verður
sunnudaginn 9. september.
Mats Wibe Lund opnaði ljósmyndasýningu á sunnudaginn:
Hvunndagshetjur á Hasselblad
„Þetta eru aðallega myndir úr
hversdagslífinu hér áður fyrr, af
hvunndagshetjum í hinum og þess-
um stellingum,“ segir Mats Wibe
Lund ljósmyndari sem opnaði sýn-
inguna Augnagaman á sunnudaginn
í tilefni af sjötugsafmæli sínu fyrr á
árinu. Á sýningunni, sem haldin er í
Gallerí 100° í Orkuveituhúsinu, gefur
að líta 45 myndir sem teknar voru á
árunum 1956 til 1974. Allar voru þær
teknar á filmu á Hasselblad-mynda-
vél sem þá var leiðandi verkfæri ljós-
myndara.
„Myndirnar voru teknar víðs veg-
ar um landið og sýna atvinnuvegina,
skemmtanir og hitt og þetta,“ segir
Mats. „Hugsunin á bak við þetta er að
sýna á mér aðra hlið en þá sem fólk
þekkir kannski best, stóru loftmynd-
irnar, það er að segja staðar- og átt-
hagamyndirnar. Svo er líka gaman
fyrir mig á þessum tímamótum að
líta aðeins um öxl.“
Auk þess að berja myndirnar aug-
um geta gestir lesið nokkurs konar
hugleiðingar eins þekktasta rithöf-
undar þjóðarinnar um þann heim
sem þær sýna. „Ég var svo æðis-
lega heppinn að fá þann ágæta höf-
und, Sjón, til að semja hugdettur við
myndirnar. Mér finnst honum hafa
tekist mjög vel upp, en ég má ekki
grobba um of. Sjón er líka sögu rík-
ari,“ segir Mats og hlær.
Aðspurður af hverju sýningin sé í
Orkuveituhúsinu segir Mats að það
sé svo fínn andi í húsinu. „Ég hélt
sýningu hérna fyrir nokkrum árum
og þá var mjög mikil stemning. Ég hef
líka unnið mjög mikið fyrir Orkuveit-
una í gegnum tíðina og því spurði ég
hvort það væri áhugi fyrir að fá mig til
að sýna í húsinu. Þeir sögðu að það
væri alveg sjálfsagt.“
Sýning Mats Wibe stendur til 10.
september og er opin á virkum dög-
um frá 8.30 til 16.
„Við reynum að hafa allt í boði
ef svo má segja, reynum að stíla
inn á breitt svið menningar,“ segir
Guðrún Þórsdóttir, verkefnisstýra
Akureyrarvöku, sem haldin verð-
ur þar í bæ næstkomandi laug-
ardag. Þetta er í fimmta sinn sem
hátíðin er haldin en hún markar
ávallt endalok Listasumars á Akur-
eyri auk þess að vera afmælishátíð
bæjarins.
Blastað yfir höfnina
Venju samkvæmt er setningar-
athöfnin í Lystigarðinum á föstu-
dagskvöldinu. „Það er svolítið
skemmtilegt því þá er garðurinn
upplýstur og við röðum upp kertum.
Það myndast því afar rómantísk
rökkurstemning,“ segir Guðrún. Á
laugardagsmorgninum hefst dag-
skráin svo af fullum krafti. „Fyrsta
stóra atriðið er Er hafmeyja í höfn-
inni? á Pollinum. Þetta er rosa
gjörningur, til dæmis verður nýtt
tónverk sem Kristján Edelstein hef-
ur samið blastað yfir höfnina og
fólk mun synda í sjónum. Svo er
einn gjörningur sem heitir Frúin í
Hamborg flytur – Hárkompan sær-
ir. Það er hundrað manna gjörning-
ur þar sem frúin birtist í eigin per-
sónu,“ segir Guðrún og má ætla að
það sé í fyrsta sinn sem sú frækna
frú kemur fram opinberlega. Að-
spurð hvort bannað sé að segja já
eða nei meðan á því stendur svarar
Guðrún með jái.
Banki og ópera
„Saga Capital-fjárfestingarbank-
inn ætlar svo loksins að opna dyrn-
ar og sýna bæjarbúum hvað er að
gerast hjá þeim. Þeir opnuðu nefni-
lega bankann í gamla barnaskól-
anum fyrir nokkrum mánuðum og
það er mikil eftirvænting hjá bæj-
arbúum að sjá hvernig þeir hafa
breytt húsakynnunum,“ segir Guð-
rún og bætir við að búast megi við
listrænu ívafi á þeim viðburði, ekki
síst þar sem bankinn hafi verið með
fantagóða smiði í vinnu.
Ópera Skagafjarðar og Sinfón-
íuhljómsveit Norðurlands ætla svo
ekki að ráðast á garðinn þar sem
hann lægstur á Akureyrarvöku því
þau ætla að flytja La Traviata eft-
ir Verdi í Íþróttamiðstöð Glerár-
skóla. Guðrún nefnir líka stóra úti-
skemmtun uppi að Hömrum sem
um leið er fjáröflun fyrir skóla í
Mósambík, tónleika Samúels J.
Samúelssonar (Sammi í Jagúar)
Big Band ásamt stórsveit sinni í
Listagilinu á laugardagskvöldinu
að ógleymdu lokaatriði hátíðarinn-
ar. „Ég veit að lokaatriðið að þessu
sinni verður mjög magnað enda er
leikstjórinn, Kristján Ingimarsson,
snillingur. Undirbúningur hef-
ur staðið yfir í rúma tvo mánuði
og leggur mikill fjöldi listamanna
hönd á plóginn.“
Allar nánari upplýsingar um
dagskrána er að finna á akureyri.is.
kristjanh@dv.is
Akureyrarvaka verður haldin næsta laugardag í fimmta sinn. Dagskráin er afar fjöl-
breytt en hátíðin markar endalok Listasumars á Akureyri auk þess að
vera afmælishátíð bæjarins sem er 145 ára í ár.
Lítil börn með
skólatöskur
Menntun ungra barna á
fyrsta áratug 21. aldar er við-
fangsefni bókarinnar Lítil börn
með skóla-
töskur -
Tengsl leik-
skóla og
grunnskóla,
sem kom-
in er út hjá
Háskóla-
útgáfunni.
Höfundur
bókarinn-
ar er dr. Jóhanna Einarsdóttir,
prófessor við Kennaraháskóla
Íslands, en bókina prýða líka
ljóð Vilborgar Dagbjartsdóttur
sem lýsa hversdagslífi og hug-
arheimi barna. Sjónum er beint
að leikskólanum og yngstu
bekkjum grunnskólans, tengsl-
um þessara skólastiga og þeim
breytingum sem eiga sér stað
þegar börn fara úr leikskóla í
grunnskóla.
Ljóðabók með
GPS-punktum
Ljóðabókin Fjallvegir í
Reykjavík eftir Sigurlínu Bjarn-
eyju Gísla-
dóttur er
komin út hjá
Nykri. Bók-
in er safn
prósaljóða
en henni
fylgja GPS-
staðsetning-
arpunktar
þannig að
áttavilltir ökumenn geta ratað
um það völundarhús sem borg-
in virðist stundum vera. Sigur-
lín Bjarney er fædd árið 1975
og hefur fengist við skriftir í
laumi frá barnsaldri. Hún hlaut
Gaddakylfuna, 1. verðlaun í
glæpasagnakeppni Mannlífs
og Hins íslenska glæpafélags,
í fyrra. Fjallvegir í Reykjavík er
hennar fyrsta bók. Hægt er að
kaupa eintök af bókinni með
því að senda póst á sigurlin-
bjarney@gmail.com eða nyk-
urforlag@gmail.com.
listahátíð
Dorgað við Reykjavíkurhöfn þessa
skemmtilegu mynd af veiðimönnun-
um ungu tók Mats Wibe árið 1966.
Frá Akureyrarvöku í fyrra
akureyringar verða seint sakaðir um að
láta smárigningu á sig fá.
ljósmyndir
hafmeyjur og smiðir
Hamborgarfrúin,
Guðrún Þórsdóttir, verkefnisstýra
Akureyrarvöku „Ég veit að lokaatrið-
ið að þessu sinni verður mjög magnað
enda er leikstjórinn, Kristján ingimars-
son, snillingur.“