Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.2007, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.2007, Blaðsíða 15
DV Sport þriðjuagur 21. ágúst 2007 15 Sport Þriðjudagur 21. ágúst 2007 sport@dv.is Sara Björk í landsliðið Dómarinn rob styles mun ekki Dæma í ensku úrvalsDeilDinni um næstu helgi. bls. 17. Undanúrslitaleikirnir í VISA-bik- ar kvenna í knattspyrnu fara fram í kvöld. Á Kópavogsvelli tekur Breiða- blik á móti KR og Keflavík fær Fjölni í heimsókn í Keflavík. Báðir leikirnir hefjast klukkan 18. Breiðablik gerði sér lítið fyrir og sló Íslands- og bikarameistara Vals úr keppni í átta liða úrslitum. Í sömu umferð fór KR norður til Akureyrar og sló sameiginlegt lið Þórs/KA úr keppni. KR er níu stigum ofar en Breiða- blik í deildinni. Liðin hafa mæst tvisvar og þar hefur KR farið með sigur af hólmi í bæði skiptin. Í fyrstu umferð Íslandsmótsins mættust lið- in á Kópavogsvelli þar sem lokatöl- ur urðu 4–1 fyrir KR. Liðin mættust á nýjan leik í tíundu umferð og þar vann KR öruggan 6–2 sigur. KR hefur því unnið Breiðablik tvisvar í sumar og markatalan í inn- byrðisviðureignum liðanna er 10–3, KR í vil. Breiðablik sýndi það aftur á móti og sannaði í átta liða úrslitum að staða liðanna í deildinni skipt- ir litlu sem engu máli þegar í bikar- keppnina er komið. Keflavík og Fjölnir hafa einu sinni mæst í Landsbankadeildinni í sum- ar. Í sjöundu umferð heimsótti Kefla- vík Fjölni í Grafarvoginn og það voru Fjölnisstúlkur sem fögnuðu 1–0 sigri. Keflavík er í fjórða sæti Landsbanka- deildarinnar með 21 stig og Fjölnir er í sjötta sæti með tólf stig. Keflavík hefur skorað flest mörk í Landsbankadeildinni ef tvö efstu liðin, Valur og KR, eru undanskilin, eða 28 talsins. Fjölnir hefur hins veg- ar aðeins skorað ellefu mörk en vörn liðsins hefur hins vegar verið traust. Fjölnir hefur fengið á sig fimmtán mörk, þremur fleiri en KR. dagur@dv.is Undanúrslit VISA-bikars kvenna í knattspyrnu fara fram í kvöld: Hvaða lið komast í úrslitaleikinn? StyleS fékk bann Lykilmaður Breiðabliks greta Mjöll samúelsdóttir er lykilmaður í liði Breiðabliks og hún þarf að eiga góðan leik í kvöld ef Breiðablik á að vinna Kr. Helstu stjörnur Kanada

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.