Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.2007, Page 14
miðvikudagur 15. ágúst 200714 Skóladagar DV
DV myndir xxx
DV9933200807
Dóttir
skóla-
stjóra
Iðunn Steinssdóttir gekk í barna-
skóla á Seyðisfirði. „Í þá daga hófst
skólagangan um sjö ára aldurinn
en ég fékk að byrja ári fyrr því besta
vinkona mín var árinu eldri,“ seg-
ir Iðunn. Það hefur eflaust hjálpað
henni að pabbi hennar var sjálfur
skólastjórinn. „Það þarf því varla
að taka það fram að ég var afskap-
lega prúð alla mína skólagöngu,“
segir Iðunn hlæjandi. Pabbi hennar
kenndi henni þó ekki fyrr en síðustu
tvö árin. „Ég man að ég var afskap-
lega ánægð að sleppa til Akureyr-
ar í menntaskóla.“ Iðunn minnist
barnaskólagöngunnar með hlýhug
en hennar skýrustu minningar eru
þó frá menntaskólaárunum. „Ég
man þó eftir einum kennaranum
honum Birni Jónssyni. Björn var af-
skaplega hagmæltur maður og hafði
gaman af því að kasta fram stök-
um um okkur nemendurna þegar
þannig lá á honum. Einhverntím-
ann var það svo í ljóðatíma að ein
stelpan í bekknum þurfti að fara
með vísu sem endar á þessa leið:
„... álmur gjalli örskot veginn mæli,
fleygist hún úr fjalli að fá sér ein-
hvert hæli.“ Stelpan hikstaði, eins
og vera ber enda ekki auðsögð vísa,
og sagði: „... ösk, ösk, ösk,“ þá stóð
Björn upp frá borðinu og botnaði
selpuna „öskuvondur kallinn fleyg-
ist hann úr fjalli að fá sér eitthvað
í dallinn.“ Og þetta mundum við
krakkarnir.“
„Ég get ekki sagt að ég muni eft-
ir fyrsta skóladeginum en ég man að
mér fannst mjög spennandi að byrja
í skóla og fá að vita með hverjum ég
yrði í bekk,“ segir Margrét Lára en
bætir því við að henni finnist óra-
langt síðan hún byrjaði í skóla. „Ann-
ars var ég nokkuð prúður nemandi.
Ég fór allavega aldrei til skólastjór-
ans. Ég eyddi öllum mínum frímín-
útum og eyðum í fótbolta þar sem ég
var kannski ekkert voðalega prúð við
strákana í bekknum,“ segir Margrét
Lára létt í bragði. Hún segist aðspurð
hafa verið best í líffræði og stærð-
fræði. „Raungreinarnar áttu best við
mig en ég var hræðileg í saumum,
smíðum og slíkum greinum. Ég er
ekki mikil handavinnukona,“ segir
Margrét Lára sem gekk nokkuð vel í
skóla. „Mér gekk ágætlega að læra að
lesa og skrifa enda komst ég ekki upp
með neitt annað þar sem mamma
mín var kennari.“
Þegar Margrét Lára er spurð um
eftirminnilegasta atvikið úr skóla
er hún fljót til svars: „Þegar ég var
í þriðja bekk fékk ég glænýjan ÍBV-
galla í afmælisgjöf. Ég á afmæli 26.
júlí, rétt áður en skólarnir byrja.
Ég var rosalega montin með gall-
ann þegar ég mætti í skólann fyrsta
daginn. Dagurinn varð þó ekki eins
ánægjulegur og ég vildi. Einn strák-
urinn í skólanum tók sig nefnilega
til og klippti gat á ermina á nýja gall-
anum mínum sem mig hafði dreymt
um að eignast allt sumarið. Ég fór
auðvitað að hágráta. Krakkarnir í
bekknum hópuðu sig saman og ætl-
uðu að fara heim til stráksins og láta
hann finna fyrir því. Það varð þó lítið
úr því og mamma gerði við gallann
sem var eins og nýr á eftir. Þetta end-
aði því vel,“ segir Margrét Lára sem
er þessa dagana að setjast á skóla-
bekk. „Ég er að hefja nám í kennslu-
og lýðheilsudeild við Íþróttaaka-
demíuna í HR. Það verður vonandi
mjög gaman.“
Margrét Lára Viðarsdóttir
knattspyrnukona
Er Ekki mikil
hanDavinnukona
Iðunn Steinsdóttir rithöfundur
DV mynd Stefán
DV mynd Stefán