Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.2007, Síða 25
DV Sviðsljós þriðjuagur 21. ágúst 2007 25
Britney Spears lék á als oddi í forsíðumynda-
töku fyrir septemberútgáfu tískutímaritsins
Allure í síðustu viku. Að sögn viðstaddra kom
söngkonan vel fram og var til í tuskið fyrir
myndatökuna. Hárgreiðslumaðurinn Danilo
dáðist að stuttu ljósu hári söngkonunnar en
sagði jafnframt : „Britney kom inn og tók af
sér ljósu hárkolluna og við blasti ljós
drengjalokkur. Henni virtist sjálfri bregða
við að líta í spegilinn.“ Af myndunum að
dæma lítur allt út fyrir að söngkonan sé búin
að umturna lífi sínu á ný enda virðist hún
einstaklega heilbrigð með dökka síða
hárlokka og í frábæru ástandi líkamlega.
Spurningin er hins vegar sú hvort um
gríðarlega myndvinnslu sé að ræða því þær
myndir sem birst hafa af Britney undanfarið
hafa síður en svo verið frýnilegar og
breytingarnar á söngkonunni á þessum
umtöluðu Allure-myndum jafnvel einum of
miklar til að geta verið raunverulegar á svo
stuttum tíma.
Allir sem komu að mynda
tökunni
Voru sammála um að Britn
ey væri
samvinnuþýð og indæl.
Tónlistarhátíðin V Festival var haldin í Bretlandi helgina sem leið. Löngu uppselt
var á hátíðina þar sem 75 listamenn og hljómsveitir komu fram. Tónleikagestir létu
það lítið á sig fá þótt Amy Winehouse hafi afboðað komu sína og skemmtu sér kon-
unglega enda hátíðin troðin af heimsþekktum listamönnum.
LEYNILEGT
SAMSTARF
Madonna hefur nú bannað justin
timberlake að ræða um nýlegt
samstarf þeirra en þau tóku
upp lag á dögunum sem
yfir hvílir mikil leynd. Enn
er ekki komið á hreint
hvenær lagið kemur út
en Madonna hefur
ítrekað minnt
timberlake á að ræða
ekkert um lagið við
fjölmiðla. það eina sem
timberlake sagði í nýlegu
viðtali þegar hann var spurður
út í lagið var: „Ég get ekki sagt ykkur
neitt um nafnið á laginu því hún mun
annaðhvort drepa mig eða láta drepa
þig.“ Einstaklega spennandi verður því
að heyra þetta leynilega lag þeirra
þegar það loksins kemur í verslanir.
EKKI MEÐ
BRITNEY
Criss angel þvertekur fyrir að sögusagnir
um að hann og Britney spears
eigi í ástarsambandi eigi við
rök að styðjast. angel, sem
er sjónhverfingameistari,
átti áður í ástarsam-
bandi við leikkonuna
Cameron Diaz en segist
eingöngu aðstoða
Britney við að undirbúa
sig fyrir MtV-tónlistar-
verðlaunahátíðina þar sem
söngkonan mun koma fram.
„það er ótrúlegt hvað fólk er
fljótt að búa til slúðursögur, við erum
með sama umboðsmanninn og ég er að
aðstoða hana við eitt af atriðunum
hennar á MtV-hátíðinni,“ segir angel en í
síðustu viku var því haldið fram að hann
og spears hefðu eytt saman nótt á
sunset-hótelinu.
DÖKKAR
FYRIRSÆTUR
HUNDSAÐAR
súpermódelið Naomi Campbell hefur
gagnrýnt ritstjóra tískutímaritsins
Vogue fyrir að notast allt of
sjaldan við dökkar fyrisætur
á forsíðu tímaritsins.
Campbell, sem er þrjátíu
og sjö ára, segir jafnframt
að sumar af stærstu
módelskrifstofum heims
hundsi þeldökkar
fyrirsætur og ráði þær
sjaldnast til starfa. „það er
algjör synd að fólk kunni ekki
að meta dökkar fegurðardísir og
þá sérstaklega í Bretlandi. Meira að segja
ég mæti oft mótlæti í heimalandi mínu,
Englandi,“ segir Campbell.
Sophie Ellis Bextor
Íslandsvinkonan, sem
tók nýverið upp
myndband hérlendis, er
komin á fullt skrið aftur.
Töffari Pink er
ófeimin við að
fetta sig og bretta.
Kanye West Lætur
ummæli 50 Cent lítið
á sig fá og rappar
fyrir allan peninginn.
Duglegasti
rokkari heims
David grohl tók
snúning með Foo
Fighters.
Mika stígur villtan
dans á sviðinu
ásamt fögrum
meyjum.
Uppselt Miðar á
hátíðina seldust
upp í mars.
Juliette Lewis Og
hljómsveitin hennar
the Licks rokkuðu stíft
líkt og þegar þau komu
hingað til lands.
Iggy Pop Var ber að
ofan eins og vanarlega.