Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.2007, Qupperneq 26
Hinn þekkti málari Goya er hér
notaður til að segja stórbrotna sögu
sem snýst í grunninn um mun meira
en örlög nokkurra einstaklinga. Eitt
módela hans er dregið í rannsóknar-
réttinn fyrir trúvillu. Unglingurinn er
sakaður um að stunda gyðingdóm á
laun sem kaþólska kirkjan lítur mjög
alvarlegum augum.
Faðir hins meinta trúvillings leit-
ar til Goya þar sem hann hefur mál-
að ófáan valdsmanninn og vonar að
vinskapur hans við Lorenzo nokkurn
geti liðkað til. Faðir Lorenzo er áhrifa-
maður innan kirkjunnar sem hefur
knúið á um afturhvarf til ógeðfelld-
ari aðferða til að halda guðsóttanum
við. Átjánda öldin reynist kristinni
kirkju erfið. Tíminn þegar árar voru á
sveimi yfir pönnukökuflatri jörð eru
liðnir en völdin eru ennþá kirkjunn-
ar. Ferskir vindar nýrra hugmynda,
upplýsingar og byltinga knýja á um
aðgerðir af hálfu kirkjunnar. Hug-
tök eins og „kristinn kærleikur“ hafa
sjaldan verið jafnmerkingarlaus og
týnast í steikarlykt af brenndu holdi
„heiðingja“.
En breytingar koma og fara og
Goya sveiflast í vindum afturhalds
og byltingar án þess að slíta rætur.
Hann er í raun frekar fyrirferðarlítill
sem persóna í þessari kvikmynd þótt
hann sé alltaf til staðar. Hann sleikir
valdsliðið yfirborðslega upp án þess
þó að gangast þeim á hönd. Það ger-
ir hann að hinum fullkomna sögu-
manni á sviði þar sem völdin skipta
höndum, fánum, tungumálum og
hugmyndum. Myndin rúllar sann-
færandi gegnum spennuþrungna
mannkynssöguna og förðun, bún-
ingar og sviðsmynd spila frábær-
lega með. Tónlistin er tilkomumikil
og þjónar frásögninni eins og best
verður á kosið.
Leikaraskarinn er af öllu þjóðerni
og er prýðilegur. Sérstaklega er það
ánægjulegt að fylgjast með Lorenzo
sem er leikinn af Javier Bardem.
Hann er virkilega áhugaverður, dul-
arfullur og óhuggulega vel leikinn.
Faðir Gregorio er einstaklega yfir-
vegaður í krafti valds síns og er því
sömuleiðis skilað með mjög góðum
leik Michael Lonsdale.
Myndin sýnir miskunnarlaust
hið rétta andlit sögupersóna og þess
sem þeir standa fyrir. Kirkjan er ekki
það eina sem birtist óhuggulega
og samt fá allar persónurnar sam-
úð þótt ekki sé nema í smástund.
Þannig er mannfólkið og þessi mynd
er mannleg. Eftir stendur stórkost-
legur hryllingur óskoraðs valds
óháð hvaða krossi eða fána þeir
veifa. Myndin vekur spurningar sem
eiga vel við í dag. Hversu djúpt rist-
ir umbreytingin á sjálfu eðli fólksins
þótt það sé sett í nýjan hugmynda-
kassa með nýjum valdhöfum? Eins
hvernig rannsóknarrétturinn pyntar
fram sinn sannleik og lætur fórnar-
lambið trúa heils hugar uppskáld-
uðum játningum sínum á trúvillu.
Hvaða gagn er að slíkum sannleik?
Hvernig ætlarðu að frelsa þjóð frá
alræði með því að beita morðum
og níðingsverkum í ferlinu? Frelsar-
ar sem fara þannig fram eru álitnir
hernámslið sama hversu góðan mál-
stað þeir hafa. Sagan kemur sífellt
á óvart og mann grunar aldrei hvar
þessi áhrifamikla ferð endar. Ekk-
ert er hægt að setja út á hér nema að
myndin var ekki sýnd af filmu heldur
beta-vídeói og meðfylgjandi truflan-
ir voru pirrandi. Einnig væri æskilegt
að hafa texta þótt ekki væri nema á
stærstu myndum kvikmyndahátíð-
arinnar. En það kemur að sjálfsögðu
ekki sjálfri myndinni við sem er hik-
laust með þeim allra bestu úr smiðju
Milos Forman og hann hefur nú gert
þær nokkrar.
Erpur Eyvindarson
Bíódómur
Fantasmas de Goya /
Goya‘s Ghosts
Frábær mynd í alla staði
sem sýnir á raunsæan hátt
hversu illilega er hægt að
misnota óskorað vald og
aðfarir kirkjunnar á því sviði
Leikstjóri: Milos Forman
Aðalhlutverk: Javier Bardem, Natalie Portman, Stellan
Skarsgård
Niðurstaða: HHHHH
þriðjuagur 21. ágúst 200726 Bíó DV
Hugmyndin á bak við bílabíóið er að sýna ameríska
mynd á amerískri grundu enda er bílabíó einstaklega amer-
ískt fyrirbæri. Myndin sem verður sýnd er American Graffiti
frá árinu 1973. En það er stjörnustríðsheilinn George Lucas
sem gerði myndina á sínum tíma. Hún fjallar um uppá-
tæki og afdrif nokkurra framhaldsskólanema kvöldið áður
en þeir fara í háskóla. Í myndinni stigu þeir Harrison Ford,
Ron Howard og Richard Dreyfuss sín fyrstu skref.
Flugskýlið sjálft er stærsta bygging á landinu og getur
auðveldlega hýst um 1.500 bíla. Það mun því ekki skipta
máli hvernig viðrar. Hljóði myndarinnar verður svo útvarp-
að á sýningunni þannig að hver og einn getur stillt bílaút-
varpið inn.
Haldið verður bílabíó á varnarsvæðinu við Keflavíkurflugvöll í
tilefni af kvikmyndahátíðinni RIFF:
BÍLABÍÓ Á VARNARSVÆÐINU
American Graffiti eftir George Lucas Verður sýnd í bílabíói í
flugskýlinu á varnarsvæðinu.
HRYLLINGUR
ÓSKORAÐS VALDS
Vel leikin
„Hiklaust með
þeim allra bestu
úr smiðju Milos
Forman.“
Fantasmas de Goya eða Goya‘s
Ghosts „Myndin sýnir miskunn-
arlaust hið rétta andlit
sögupersóna og þess sem þær
standa fyrir.“
DIGITAL
krInGLunnI
RATATOUILLE ENSKU TAL kl. 3 - 5:30 - 8 - 10:40 L
RATATOUILLE ENSKU TAL kl. 8 L
RATATOUILLE M/- ÍSL TAL kl. 3 - 5:30 L
TRANSFORMERS kl. 10:30 10
TRANSFORMERS kl. 5 - 8 - 10:30 10
TRANSFORMERS kl. 5 - 8 - 10:50
NANCY DREW kl. 6 - 8:10 - 10:20 7
GEORGIA RULES kl. 8 7
HARRY POTTER 5 kl. 3 - 8 10
SHREK 3 M/- ÍSL TAL kl. 3 - 4 - 6 L
OCEAN´S 13 kl. 10:30 7
RATATOUILLE ENSKU TAL kl. 8 - 10:30 L
RATATOUILLE M/- ÍSL TAL kl. 4:30-5:30 L
TRANSFORMERS kl. 8 - 10:40 10
HARRY POTTER 5 kl. 4:30 10
GEORGIA RULES kl. 10:10 7
NANCY DREW kl. 8 7
AkureyrI
RATATOUILLE M/- ÍSL TAL kl. 6 L
RATATOUILLE ENSKU TAL kl. 8 -10:15 L
TRANSFORMERS kl. 6 - 9 10
RUSH HOUR 3 kl. 8 - 10 12
RATATOUILLE M/- ÍSL TAL kl. 8 L
TRANSFORMERS kl. 10 7
s. 482 3007seLfossI
áLfAbAkkA
RATATOUILLE M/- ÍSL TAL kl. 6:40 L
RATATOUILLE ENSKU TAL kl. 9 L
THE TRANSFORMERS kl. 9 10
BLIND DATING kl. 7 10
Þeirra stríð. okkar heimur
FrÁ miChaeL BaY oG steVeN sPieLBerG
stÆrsta mYND sumarsiNs
www.SAMbio.is 575 8900
Hj. MBL
nýjasta meistaraverk
Pixar og Disney
VIP
DIGITAL
VIP
kefLAvík
DIGITAL
DIGITAL
DIGITAL
RUSH HOUR 3 kl. 4, 6, 8 og 10.15-POWER 12
RATATOUILLE íslenskt tal kl. 3.45 og 5.45 L
TRANSFORMERS kl. 7 og 10 10
PLANET TERROR kl. 10 16
SIMPSONS íslenskt tal kl. 4 L
www.laugarasbio.is - Miðasala á
- bara lúxus
LAUGARÁSBÍÓ - SÝNINGARTÍMAR
Sími: 553 2075
Íslenskt tal
DEATH PROOF kl. 8
THE SIMPSONS MOVIE ENSKT TAL kl. 6
16
NÝTT Í BÍÓ!
SÍMI 462 3500SÍMI 530 1919
RUSH HOUR 3 kl. 3.45 - 5.50 - 8 - 10.10
RUSH HOUR 3 LÚXUS kl. 5.50 - 8 - 10.10
THE SIMPSONS MOVIE ENSKT TAL kl. 4 - 6 - 8 - 10
THE SIMPSONS MOVIE ÍSL. TAL kl. 4 - 6
EVAN ALMIGHTY kl. 4 - 6
DIE HARD 4.0 kl. 8 - 10.45
DEATH PROOF kl.10
SÍMI 551 9000SÍMI 564 0000
MIÐASALA Á
KL. 5.30 Sicko / Death of a President / Goya´s Ghosts
KL. 8 Sicko / The Bridge / Curse Of The Golden Flower
KL. 10.30 Sicko / Fast Food Na.. / Deliver Us From Evil / Zoo
SÝNINGARTÍMAR BÍÓDAGA GRÆNA LJÓSSINS12
14
16
12 RUSH HOUR 3 kl. 6 - 8 -10
THE SIMPSONS MOVIE ENSKT TAL kl. 8
THE SIMPSONS MYNDIN ÍSL. TAL kl. 6
THE INVISIBLE kl. 10
12
14
RUSH HOUR 3 kl. 6.30 - 8.30 - 10.30
THE SIMPSONS MOVIE ENSKT TAL kl. 8 - 10
THE SIMPSONS MYNDIN ÍSL. TAL kl. 6
BECOMING JANE kl. 5.30 - 8 - 10.30
DAGSKRÁ OG MIÐASALA Á WWW.MIDI.IS
ALLAR UPPLÝSINGAR
Á GRAENALJOSID.IS
SICKO
með íslensku
m texta
THE
BRIDGE
DEATH OF
A PRESIDEN
T FROM EVIL
DELIVER US
TOPPMYNDIN Í USA
Jackie Chan og Chris Tucker fara á kostum í
fyndnustu spennumynd ársins!
ZOO
CURSE OF
FLOWER
THE GOLDEN GOYA´S
GHOSTS
FAST FOOD
NATION