Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.2007, Side 27
Í mynd með
Kidman
Leikarinn Ralph Fiennes, sem hefur
undanfarið gert það gott í Harry
Potter-myndunum, mun leika
aðalhlutverkið á móti Nicole Kidman
í rómantísku dramamyndinni The
Reader. Myndin er byggð á
samnefndri bók eftir Bernhard
Schlink og er það leikstjórinn
Stephen Daldry sem situr við
stjórnvölinn. Myndin fjallar um
ungan dreng sem á í sambandi við
eldri konu. Konan hverfur svo dag
einn og kemst hann þá að því að hún
er sek um hræðilegan glæp.
Þóra Tómasdóttir gerir heimildarmynd um baráttu kvennalandsliðsins í undankeppni EM:
Mynd um kvennalandsliðið
„Ég ætla að gera heimildarmynd
sem fylgir íslenska kvennalands-
liðinu í baráttunni um að komast á
Evrópumótið 2009,“ segir Þóra Tóm-
asdóttir, dagskrárgerðarkona úr Kast-
ljósinu. „Ég kynntist þessum stelpum
fyrst þegar ég fylgdi þeim heilan dag
fyrir Kastljósið út af Serbíuleiknum
og eftir það var ég fullviss um að þær
væru efni í meiriháttar bíómynd,“
segir Þóra um hvernig hugmynd-
in kom til en hún mun gera mynd-
ina ásamt Hrafnhildi Gunnarsdóttur
kvikmyndagerðarkonu.
„Ég er lítil íþróttamanneskja og
hef nánast aldrei sparkað í bolta en ég
gat ekki annað en dáðst að velgengni
liðsins, “ og undirstrikar Þóra að það
sé löngu tímabært að liðið fái verð-
skuldaða athygli. „Það er erfitt fyr-
ir litlar stelpur sem eru í fótbolta að
þurfa að bera sig endalaust saman við
Eið Smára og David Beckham. Mig
langar að sýna þeim hversu flott lið
þetta er og hvað það er fullt af stjörn-
um. Og hvað þessar ungu stelpur geta
náð langt.“
Þóra segir að sterk íslensk fyr-
irtæki hafi sýnt verkinu mikinn
áhuga enda muni það kosta sitt að
gera mynd af þessu tagi. „Undir-
búningsvinna er komin á fullt og
tökur munu hefjast á næstunni,“
segir Þóra spennt að lokum. Næsti
leikur liðsins er úti á móti Slóveníu
á sunnudaginn kemur klukkan 15
og er sýndur beint á RÚV.
asgeir@dv.is
Hljómsveitin BB&BLAKE sam-
anstendur af tvíeykinu Veru Sölva-
dóttur kvikmyndagerðarkonu og
Magnúsi Jónssyni, leikara og fyrrver-
andi meðlim hljómsveitarinnar Gus
Gus. BB&BLAKE gaf nýlega út sína
fyrstu smáskífu sem nefnist Must-
ang og er breiðskífan Great Getaway
væntanleg fyrir jólin. „Samstarfið
hófst þegar ég var að gera stuttmynd
úti í Frakklandi sem nefnist Mons-
ieur Hyde. Ég kannaðist aðeins við
Magnús og bað hann að semja tón-
listina við myndina. Ég byrjaði að-
eins að syngja fyrir hann á frönsku,
því ég var bara að kenna honum mál-
ið fyrir lag sem hann ætlaði sjálfur að
syngja. Svo byrjaði Magnús að vinna
úr einhverju sem ég hafði sungið og
bjó til lítið lag úr því sem hann sendi
mér til Frakklands,“ segir Vera sem
var í kvikmyndanámi í Frakklandi
í fimm ár. „Í kjölfarið fórum við svo
að starfa saman, ég í Frakklandi og
hann á Íslandi. Ég keypti mér hljóð-
nema sem ég tengdi við tölvuna og
við fórum að búa saman til tónlist
og ákváðum svo í raun og veru að
stofna bara band. Þegar ég kom svo
heim varð BB&BLAKE formlega að
hljómsveit og við höfum unnið við
gerð plötunnar í um það bil ár núna,“
segir Vera.
Breiðskífa væntanleg fyrir jólin
Vera hafði sungið með tveimur
strákum úti í Frakklandi og verið í
bandi þar en fluttist heim til að eftir-
vinna stuttmynd sína sem sýnd verð-
ur á Alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni
í Reykjavík. „Fyrsta lagið sem ég bjó
til heitir Black Bunny og ég ákvað að
taka mér það nafn þegar við vorum
að leita að nafni fyrir bandið. Magn-
ús hefur spilað lengi undir nafninu
Blake og við ákváðum bara að sam-
eina það, úr því varð þá BB&BLAKE,“
segir Vera sem lýsir tónlist þeirra
sem tölvupoppi.
„Við erum að fara að skjóta mynd-
bandið við Mustang núna á næstu
dögum og ég kem til með að leik-
stýra því. Það verður vonandi bara
klárt eftir helgi og fer sem fyrst í spil-
un. Við erum nýbúin að dreifa lag-
inu á útvarpsstöðvarnar og ég hef til
dæmis heyrt það á Rás 2,“ segir Vera.
„Planið er að gefa breiðskífuna okkar
út fyrir jólin. Við erum í raun búin að
semja plötuna en það er bara verið
að mixa hana og vinna núna. Þangað
til þurfum við bara að æfa okkur í að
halda tónleika og halda svo útgáfu-
tónleika þegar platan kemur út.“
Eins og kameljón
Það sem gerir BB&BLAKE ör-
lítið frábrugðna öðrum sveitum er
að Vera og Magnús leitast við að
blanda saman tónlist og kvikmynd.
„Þetta er mjög sjónrænt, við búum
til svona ákveðnar týpur og það er
alveg hluti af plottinu að koma bíó-
myndahliðinni inn í tónlistina sem
við erum að gera þar sem við erum
bæði mjög kvikmyndasinnuð,“ seg-
ir Vera en bætir því við að persón-
urnar BB og Blake geti brugðið sér
í allra kvikinda líki. „Þau eru í raun
svona kameljón sem eina stundina
eru spæjarapar en þá næstu eru þau
hamingjusöm fjölskylda og mað-
ur veit eiginlega aldrei hvar maður
hefur þau. Við höfum þetta svona til
að gefa karakterunum meira frelsi
og geta gert meira í sambandi við
myndböndin en BB og Blake koma
alltaf til með að vera aðalpersón-
urnar en bara í mismunandi að-
stæðum.“ Vera og Magnús semja
sjálf og spila alla tónlistina auk þess
sem þau sjálf sjá um að gefa plöt-
una út. „Í raun og veru bauðst okkur
samningur sem okkur leist ekkert á
því útgáfufyrirtækin taka mjög mik-
ið af hagnaðinum og vilja fá að ráða
miklu en í dag eru þessi útgáfufyr-
irtæki nánast orðin óþörf. Samstarf
okkar Magnúsar hefur líka gengið
mjög vel og það er bara búið að vera
alveg ótrúlega gaman hjá okkur,“
segir Vera að lokum en áhugasöm-
um er bent á Myspace-síðu sveitar-
innar, myspace.com/bbblakeband,
þar sem hægt er að hlusta á fyrsta
smáskífulag þessarar áhugaverðu
sveitar.
krista@dv.is
Þriðja ljósku-
myndin
Leikstjórinn Steve Holland kemur til
með að leikstýra þriðju Legally
Blonde-myndinni sem skartar Reese
Witherspoon í hlutverki ljóskunnar
Elle Woods. Holland sagði í nýlegu
viðtali að það væri staðfest að þriðja
myndin yrði gerð og að hann kæmi
til með að leikstýra. Hann sagðist auk
þess lítið geta gefið upp um
söguþráðinn nema þá kannski að
þetta yrði mjög sæt og fyndin mynd. Í
síðustu mynd um Elle Woods skellti
hún sér í lögfræðinám svo það er
aldrei að vita hverju hún tekur upp á í
þessari þriðju mynd sem kemur til
með að heita Legally Blondes.
Bregður fyrir
í Batman
Þingmaðurinn Patrick Leahy hefur
nælt sér í aukahlutverk í nýjustu
Batman-myndinni, The Dark Knight.
Leahy sem situr í flokki demókrata í
Vermont-fylki er gríðarlega mikill
Batman-aðdáandi og er þetta ekki
fyrsta Batman-myndin sem honum
bregður fyrir í því örlítið sást til hans í
Batman og Robin árið 1997. Í
atriðinu í The Dark Knight leikur
hann ásamt stórstjörnunum
Christian Bale, Heath Ledger og
Michael Caine en að sögn Leahys er
um einstaklega áhugavert atriði að
ræða.
Hljómsveitin BB&BLAKE gaf nýlega út sína fyrstu smáskífu sem ber heitið Mustang.
Sveitina skipar tvíeykið Vera Sölvadóttir kvikmyndagerðarkona og Magnús Jónsson
leikari. Að sögn Veru leitast þau mikið við að blanda saman tónlist og kvikmyndagerð.
þriðjuagur 21. ágúst 2007DV Bíó 27
HRYLLINGUR
ÓSKORAÐS VALDS
BB&BLAKE Eru eins og
kameljón og bregða sér í
allra kvikinda líki.
Þóra Tómasdóttir gerir heimildarmynd
ásamt Hrafnhildi gunnarsdóttur um
íslenska kvennalandsliðið.