Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.2007, Síða 30
þriðjuDagur 21. ágúst 200730 Síðast en ekki síst DV
Sandkorn
n Jónas Kristjánsson ritstjóri
segir á netsíðu sinni, jonas.is, að
hér á landi sé ekki kennd blaða-
mennska heldur fjölmiðlafræði.
Það segir Jónas að sé grein af
meiði félagsvísinda og sé því
síður en svo vel til
þess fallin að
undirbúa fólk
fyrir blaða-
mannsstarfið.
Og Jónas held-
ur áfram. „Flest-
ir kennararnir hafa
enga reynslu í faginu
og aðrir hafa vonda reynslu.
Nám í fjölmiðlafræði kemur
verðandi blaðamönnum að
engu gagni. Þekkt er í bransan-
um, að umpóla þarf slíku fólki í
upphafi starfs, svo að það standi
jafnfætis sjómönnum,“ segir rit-
stjórinn fyrrverandi sem hefur
löngum þóst hafa vit á blaða-
mennsku enda býr hann að ára-
tugareynslu.
n Knattspyrnudeild FH og
þeir sem
að henni
standa eru
mjög ósátt-
ir við KSÍ
þessa dag-
ana. Ástæð-
an er sú
að KSÍ bað
fjölmiðla
landsins að velja lið umferða 7-
12 þrátt fyrir að FH ætti eftir að
spila við HK. Sá leikur var ekki
leikinn fyrr en eftir 13. umferð.
Ólafur Jóhannesson var mjög
reiður eftir leikinn gegn HK og
sparaði ekki stóru orðin. Lét
alla fjölmiðla sem vildu tala við
hann vita að honum fyndist
þessi verðlaun móðgun bæði
við FH og HK. KSÍ hefur ekki
alltaf verið með puttana á púls-
inum í gegnum árin og hefur
lítið breyst í þeim efnum á þess-
um síðustu og verstu.
n Ríkissjónvarpið flutti af því
fréttir á sunnudagskvöld að sést
hefði í bjarmann af flugeldasýn-
ingu Orkuveitunnar á Menn-
ingarnótt í Flókalundi, alla leið
vestur í Barðastrandasýslu.
Var þetta haft eftir ferðakonu á
svæðinu sem sjónvarpsmenn
höfðu rætt
við. Skömmu
seinna í
fréttatíman-
um las Elín
Hirst þá
ábendingu
að líkast til
hefði konan
séð bjarm-
ann af flugeldasýningu í Stykk-
ishólmi sem haldin var á svip-
uðum tíma. Óstaðfest er hvort
hin fráneyga kona er sú sama og
kvaðst hafa séð til Noregs einn
sunnudaginn um árið.
Hver er maðurinn?
„Gunnleifur Gunnleifsson, knatt-
spyrnumarkmaður í HK.“
Hvað drífur þig áfram?
„Það er konan mín sem drífur mig
áfram.“
Við hvað starfar þú?
„Ég er nemi í Háskólanum í
Reykjavík að læra íþróttafræði á
fyrsta ári.“
Hvað gerir þú í frístundum?
„Þá reyni ég að eyða sem mestum
tíma með fjölskyldu minni, konunni
og dætrum.“
Hvenær byrjaðir þú í fótbolta?
„Ég var sex ára gamall þegar ég
byrjaði og lék með ÍK.“
Hvað varð til þess að þú byrjaðir
að æfa?
„Bræður mínir eldri voru báðir í
fótbolta svo ég elti þá í þetta. “
Voru þeir markmenn?
„Nei þeir voru framherji og varn-
armaður.“
Voru þeir betri en þú?
„Nei, en þeir voru nokkuð góðir
báðir, en hættu þó að spila í kringum
tvítugsaldurinn.“
Hvað er það leiðinlegasta við
Landsbankadeildina?
„Það er ekkert sem mér dettur í
hug í fljótu bragði.“
Hverjar eru fyrirmyndir þínar?
„Fyrirmynd mín í fótboltanum
er Gianluigi Buffon, landsliðsmark-
maður Ítala og Juventus. Ætli ég
myndi ekki segja að í lífinu sjálfu væri
það enginn annar en Superman.“
Hvað er fram undan hjá þér?
„Fram undan er skemmtilegt
skólaár í Háskólanum í Reykjavík,
fjölskyldulífið og leikir í Lands-
bankadeildinni með HK.“
Hvernig undirbýrðu þig fyrir
leiki?
„Ég borða vel og hugsa jákvætt.“
Hvaða dægurlag, fyrr og síðar,
vildir þú hafa samið?
„Ég vildi hafa samið Rabarbara-
Rúna, það er sigurlagið okkar í HK,
við syngjum það inni í búningsklefa
þegar vel gengur.“
Þú skartaðir ljósbláum sokkum í
leik FH og HK á sunnudag, hvers
vegna?
„Á sunnudaginn sigruðu mínir
menn í Manchester City nágrann-
ana í Manchester United og ljósbláu
sokkarnir voru tileinkaðir sigrinum.
Ég er gallharður Manchester City-
maður og ég fylgi ekki sauðunum
sem halda allir með hinu liðinu.“
Hvernig fellur þetta í kramið hjá
liðsfélögum þínum?
„Þeir hafa allir gaman af þessu,
þeir þekkja mig svo vel og láta þetta
ekkert fara í taugarnar á sér.“
Hverjir verða Íslandsmeistarar í
knattspyrnu?
„Ég held að Valur taki þetta, Birkir
Már Sævarsson tryggir þeim titilinn
undir lokin.“
Í DAG Á MORGUN
HINN DAGINN
Veðrið
+xx
+xx
+xx
+xx
+xx
+xx +xx
+xx
+xx
+xx
+xx
+xx +xx
+xx
+xx
+xx
xxxx
+13
4
xx
xx
xx
xxxx
xx
xx
+14
4
xx
xx
+19
4
+14
4
+12
4
xx
xx
xx
xx
xx
+xx
+xx
+xx
+xx
+xx
+xx +xx
+xx
+xx
+xx
+xx
+xx +xx
+xx
+xx
+xx
xxxx
xx
xx
xx
xx
+13
4 xx
xx
xx
+13
4
+11
4
+11
4
+18
4
+14
4
xx
+12
4
+14
4
+11
1
xx
xx
xx
xx
xx
+15 1
xx
-xx
-xx
MAÐUR
DAGSINS
veltingur
Sigurjón M.
egilsson skrifar.
tröllabanKar
í glerborg
Bankarnir eru búnir að stela Menningarnóttinni, rétt eins og þegar tröllið stað jólunum. Tröllabankarnir
hafa stolið Menningarnótt og breytt
henni í stærðarinnar auglýsingu.
Allar keppast við að lofa og dýrka
bankana fyrir auglýsingarnar, en
ekkert hefur verið talað um hvað
Menningarnóttin hefur breyst mik-
ið með afskiptum tröllabankanna.
Í fyrstu var sjarmi Menningarnæt-
ur það litla og það sæta. Eldsmið-
ir, handverksfólk, tónlist var flutt í
búðum og bankaafgreiðslum, það
var kyrrð og ró yfir þó tugþúsund-
ir hafi notið þess sem fyrir augu og
eyru bar. Það var allt svo vinalegt.
Svo sáu tröllabankarnir sér leik á borði, þeir komu og stálu Menningarnóttinni. Núna byggist
allt á að hafa allt
nógu stórt og
metist er um
hvort tuttugu
og fimm þúsund
eða fimmtíu þús-
und komu saman
hér eða þar. Svo er hælst um að nú
hafi Menningarnóttin teygt sig um
stærri hluta borgarinnar en áður.
Það vill gleymast að það var ekki allt
í lagi að vera mörg saman í, til þess
að gera, litlum hluta borgarinnar.
Magnið og hávaðinn hafa tekið yfir,
þökk sé tröllabönkunum.
Eftir að bankarnir slökktu á hávaðanum breyttist allt, það var ekki bara miðborg-in sem varð einn glersalli.
Glerbrot voru víða nærri miðborg-
inni. Drukkið, illt og vont fólk hafði
hent frá sér glerflöskum víða og
gamli góði Villi svaf greinilega í
gær og ekkert var gert til að laga til í
borginni eftir herlegheitin. Í minn-
ingunni var þetta ekki svona þegar
Menningarnóttin var fábrotnari og
byggð upp á litlum fallegum atrið-
um og þegar fólk hittist og
gat talað saman þar
sem hávaðinn
hafði ekki enn
mætt, í boði
tröllabankanna.
Að lokum, hvað hefur komið fyrir Stuðmenn?
NÚ GETUR ÞÚ LESIÐ
DV Á DV.IS DV er
aðgengilegt
á dv.is og
kostar
netáskriftin
1.490 kr. á
mánuði
Buffon og Superman
eru fyrirmyndirnar
Gunnleifur Gunnleifsson
Markmaður HK í Landsbankadeild-
inni, hefur staðið vaktina á milli stang-
anna í sumar með sóma. gunnleifur
er á fyrsta ári í íþróttafræði í Háskólan-
um í reykjavík og heldur með
Manchester City.