Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.2007, Síða 32
Úðuðu linsu á
hraðamyndavél
Skemmdir voru unnar á hraða-
myndavél við Fiskilæk í Leirár- og
Melahreppi aðfaranótt mánu-
dags. Óprúttnir aðilar úðuðu yfir
linsur myndavélarinnar með þeim
afleiðingum að hún var óvirk á
tímabili.
Að sögn lögreglunnar í Borg-
arnesi er þetta í fyrsta skipti sem
skemmdir eru unnar á hraða-
myndavél á svæðinu. Skemmdar-
vargsins er enn leitað, en að sögn
lögreglu er ekki vitað hver bar
ábyrgð á skemmdarverkinu.
Lagfæringar Fasteigna Akureyrar-
bæjar á húsnæði við Brekkugötu 34 á
Akureyri fóru langt fram úr kostnað-
aráætlun. Við verklok stóð kostnað-
urinn í nærri tvöfaldri þeirri upphæð
sem upphaflega var gert ráð fyrir.
Breytingarnar kostuðu 20 milljónir á
endanum. Þó gæti upphæðin átt eftir
að hækka því ekki er útilokað að fleiri
reikningar eigi eftir að berast vegna
framkvæmdanna.
Í húsnæðinu var lengi vel starf-
ræktur leikskóli en þegar hann var
lagður niður var samþykkt að færa
Lautina, félagslegt úrræði fyrir ein-
staklinga með geðræn vandamál,
þangað. Til þess var ákveðið að ráð-
ast í ákveðnar breytingar á húsnæð-
inu þannig að það henti sem best
starfsemi Lautarinnar.
Hermann J. Tómasson, formað-
ur stjórnar Fasteigna Akureyrarbæj-
ar, viðurkennir að kostnaðurinn hafi
farið nokkuð fram úr áætlun en segir
ánægju ríkja við verklok. Hann seg-
ir enn hugsanlega von á fleiri reikn-
ingum vegna framkvæmdarinnar.
„Niðurstaðan var sú að endurgera
húsnæði sem bærinn átti þegar leik-
skólinn var lagður niður. Það var hitt
og þetta sem þurfti að framkvæma
áður en flutningurinn væri möguleg-
ur. Ég er ekki viss um að allir reikn-
ingar séu komnir inn en nokkurn
veginn er þetta komið. Þessar fram-
kvæmdir urðu dýrari en við gerð-
um ráð fyrir til að byrja með,“ segir
Hermann. „Fyrst og fremst erum við
ánægð með verklokin. Auðvitað er
það óþægilegt að standa uppi með
niðurstöðu sem er töluvert önnur en
lagt var upp með. Þetta eru kannski
ekki stórar upphæðir en engu að síð-
ur er um nærri tvöföldun að ræða.
Hugsanlega hefði mátt vanda áætl-
unina betur í upphafi.“
trausti@dv.is
„Því eldra og skemmdara sem hrá-
efnið er því meiri og sterkari verð-
ur lyktin,“ segir Guðmundur Sig-
urbjörnsson, íbúi á Akranesi, sem
hefur lengi barist fyrir úrbótum á
þeim fnyk sem leggur frá fiskimjöls-
verksmiðju HB Granda á Skaganum.
Hann segir að lykt af gömlum fiski
hafi fest sig í hús, bíla og fatnað ná-
granna verksmiðjunnar. „Lyktin fest-
ir sig í fötum fólks og inni í bílunum.“
Hann segist vita um dæmi þess að
fólk hafi þurft að þrífa hús sín hátt og
lágt vegna fitubrákar sem sest þar að
vegna mengunar frá verksmiðjunni.
Guðmundur segir íbúa hafa sýnt
fram á að HB Grandi fari ekki eftir
starfsleyfi og að fyrirtækið hafi feng-
ið bréf frá Umhverfisstofu þess efnis
að ef ekkert verði að gert muni þeir
missa leyfið.
„Við höfum aldrei fengið eins
mikið af kvörtunum,“ segir Helgi
Helgason, framkvæmdastjóri Heil-
brigðiseftirlits Vesturlands, en fjöldi
athugasemda hefur borist að undan-
förnu vegna ólyktar frá bræðslunni.
„Íbúar eru afar ósáttir við lyktina sem
leggur frá verksmiðjunni.“
8. ágúst sendi heilbrigðiseftirlit-
ið bréf til Umhverfisstofnunar, sem
sér um eftirlit á þessu sviði, og ósk-
aði eftir úrbótum. „Óvenju margar
kvartanir hafa borist okkur upp á síð-
kastið,“ segir Helgi.
Hann bendir á að oft sé farið
að slá í hráefnið og tekur fram að í
starfsleyfi sé ákvæði um að gera eigi
ráðstafanir til að stemma stigu við
lyktinni.
Eggert B. Guðmundsson, forstjóri
HB Granda, kannast við að kvartanir
hafi borist en tekur fyrir að þær séu
allar á rökum reistar. Hann segist vita
til þess að einn dag í sumar hafi lykt-
in farið út fyrir það sem hún átti að
vera. „Þá var kvartað af eðlilegum
ástæðum. Þetta kom þannig til að við
fengum hráefni sem þurfti að bíða of
lengi eftir því að komast í vinnslu.“
Hann segir að í framhaldinu hafi
kvartanir haldið áfram að berast.
„Við fengum kvartanir þegar allt var
í besta lagi og jafnvel þegar bræðslan
var ekki í gangi. Það er greinilegt að
hún hefur verið undir mikilli smásjá
og að undir henni hefur fólk séð ým-
islegt sem ekki á við rök að styðjast.“
Eggert staðfestir að þeim hafi bor-
ist aðvörun um að þeir geti misst leyf-
ið ef aðstaðan verði ekki bætt og því sé
næst á dagskrá að ganga í það verk.
Helgi Jensson, forstöðumað-
ur framkvæmda- og eftirlitssviðs
hjá Umhverfisstofnun, staðfestir að
kvartanir vegna fiskimjölsverksmiðj-
unnar hafi komið inn á borð stofn-
unarinnar. Í kjölfarið hafi menn verið
sendir á staðinn til að kanna aðstæð-
ur og nú sé farið í gang ferli þar sem
sest er niður með forsvarsmönnum
fyrirtækisins í þeim tilgangi að leita
úrbóta og koma í veg fyrir að þessi
staða komi upp aftur.
Eggert segir að til standi að funda
með forsvarsmönnum Umhverfis-
stofnunar um málið en ekki sé komin
endanleg dagsetning á þann fund.
þriðjudagur 21. ágúst 2007 n Dagblaðið vísir stofnað 1910
Fréttaskot
5 1 2 7 0 7 0
DV borgar 2.500 krónur fyrir fréttaskot sem leiðir til frétta.
Fyrir besta fréttaskot vikunnar greiðast 5.000 krónur.
Að auki eru greiddar 10.000 krónur fyrir besta fréttaskot hvers mánaðar.
Þannig er hægt að fá 15.000 krónur fyrir besta fréttaskot mánaðarins.
Er ekki bara fýla í þeim
eftir tvo tapleiki í röð?
BÍLAR OG FÖT LYKTA
AF GÖMLUM FISKI
Skagamenn kvarta undan fýlu frá fiskimjölsverksmiðju. Aldrei jafn margar kvartanir:
Beint í pottinn Hveravellir eru vinsæll áningarstaður ferðamanna yfir sumartímann, enda er notalegt að bregða
sér í laugina, jafnvel þótt svalt sé í veðri. Margar af perlum hálendisins eru vel aðgengilegar ferðamönnum á
sumrin, en betra er þó að fara sér að engu óðslega þegar aka þarf yfir straumvötn. DV-mynd Sigtryggur Ari
Fasteignir Akureyrarbæjar fara ríflega fram úr áætlun:
Kostnaður tvöfaldaðist á leiðinni
Slasaðist illa í slysi
á Þeistareykjum
Starfsmaður Jarðborana slasað-
ist illa í vinnuslysi á Þeistareykjum
austan við Húsavík um klukkan hálf-
sjö í gærmorgun.
Slysið atvikaðist þannig að verið
var að losa borkrónuna af jarðbor-
inum Jötni þegar læsing gaf sig með
þeim afleiðingum að járnstöng
sveiflaðist í manninn. Að sögn lög-
reglu var maðurinn fluttur á Fjórð-
ungssjúkrahúsið á Akureyri. Mað-
urinn var lærbrotinn og fann fyrir
svima, var hann því sendur til rann-
sókna á fjórðungssjúkrahúsinu.
Fiskimjölsverksmiðjan Íbúar hafa
kvartað meira undan fýlu nú en nokkru
sinni fyrr.
Erla Hlynsdóttir
blaðamaður skrifar: erla@dv.is
dýrar endurbætur Til að gera
húsnæðið hentugra undir starfsemi
Lautarinnar þurfti að ráðast í heilmiklar
endurbætur. Kostnaður við þær
tvöfaldaðist á leiðinni miðað við það
sem upphaflega var gert ráð fyrir.
Síbrotamönnum
sleppt úr haldi
Hæstiréttur felldi í gær úr gildi
gæsluvarðhald yfir tveimur mönn-
um sem ákærðir eru fyrir þjófnaði úr
sumarbústöðum og íbúðum, ásamt
fjölda annarra auðgunarbrota. Hér-
aðsdómur Reykjavíkur hafði áður
ákveðið að mennirnir skyldu sitja í
varðhaldi til 4. september.
Í kröfugerð lögreglustjóra segir að
einsýnt sé að mennirnir eigi yfir höfði
sér fangelsisvist. Þeir séu fíkniefna-
neytendur sem fjármagni neyslu sína
með afbrotum. Mennirnir stóðu sam-
an að þessum brotum.
Allar hækkanir
farnar í súginn
Verðbólga, hærra húsnæðis-
verð, hækkanir á vörum og þjón-
ustu og stórauknar greiðslur af hús-
næðislánum hafa hirt að öllu leyti
kjarabætur á yfirstandandi samn-
ingstímabili. Þetta er mat stjórnar
Verkalýðsfélagsins Hlífar sem fram
kemur í ályktun félagsins.
Stjórn félagsins vill að lágmarks-
laun hækki um 30 prósent og að
skattleysismörk hækki. Þetta eru
áhersluatriði Hlífar fyrir næstu
kjarasamninga. Að mati stjórnarinn-
ar duga lágmarkslaun ekki til eðli-
legrar framfærslu, sérstaklega þar
sem skattar eru innheimtir af þeim.
Skorað er á þingmenn að fella niður
þá óeðlilegu og fjandsamlegu skatt-
heimtu hið fyrsta.
Verða bara rekin úr
skóla fyrir dópsölu
Menntaráð Reykjavíkur sam-
þykkti í gær nýjar reglur til að tryggja
faglega meðferð á agabrotum í
grunnskólum borgarinnar. Mark-
miðið er að samræma aðgerð-
ir þannig að hlutverk skólastjórn-
enda sé skýrt og fyrir vikið sé tekið
rétt á agabrotum sem upp koma í
skólunum. Litið er á reglurnar sem
vegvísi um rétt viðbrögð, brottvís-
anir úr skólum og samskipti við lög-
reglu og Barnavernd. Nýju reglurn-
ar gefa skýrt til kynna að ekki megi
vísa nemanda úr skóla fyrir alvarleg
agabrot nema annað skólaúrræði
sé tryggt. Eina undantekningin frá
þeirri reglu er staðfest fíkniefnasala
nemenda.