Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.2007, Síða 14
föstudagur 31. ágúst 200714 Helgarblað DV
Tuttugu konur nýttu sér viðtalsþjónustu Stíga-
móta á síðasta ári vegna þess að þær höfðu
verið í vændi. Rúmur helmingur þeirra, eða
ellefu konur, hafði leitað til Stígamóta árinu
áður vegna vændis. Forstöðumaður Mótor-
smiðjunnar segir allt grassera í vændi á Ís-
landi og fulltrúi Stígamóta segir vændiskon-
ur sem leitað hafa til þeirra margar hafa orðið
fyrir ofbeldi frá dólgum sínum. Fjöldi kvenna
sem leitað hefur til stígamóta vegna vændis
síðustu ár hefur verið svipaður eða í kringum
tíu nýjar konur á ári. Einn karlmaður hefur
hins vegar leitað til Stígamóta vegna vændis
frá árinu 2004.
Allar erlendar
Björgvin Björgvinsson, yfirmaður kynferð-
isafbrotadeildar lögreglunnar á höfuðborgar-
svæðinu, segir flest þekkt vændistilvik sem
komið hafa inn á borð lögreglunnar síðustu
ár vera konur sem koma hingað frá útlönd-
um í gegnum svokallaðar fylgdarþjónustur.
Þær hafi haft í hyggju að dvelja hér á landi í
nokkra daga í einu og stunda iðju sína, flestar
þær sem færðar hafa verið til yfirheyrslu segj-
ast ekki hafa áttað sig á því að hér á landi væri
vændissala ólögleg. Hann vill ekki leggja mat
á það hvort vændistilfellum hafi fjölgað að
undanförnu, en það sem af er þessu ári hafa
fimm mál komið til kasta lögreglu og voru
það allt erlendar konur í gegnum alþjóðlegar
fylgdarþjónustur.
„Þessi deild innan lögreglunnar er tiltölu-
lega ný, þannig að ég hef engan samanburð
á milli ára. Þessi mál hafa komið upp öðru
hverju en ekki leitt til neins,“ segir hann. Sam-
kvæmt nýsamþykktum lögum er ólöglegt að
stunda vændi á Íslandi, en það er refsilaust
nema þriðji aðili hafi milligöngu um það.
„Þessar konur hafa yfirleitt bara kom-
ið einar til landsins, en engu að síður vakna
alltaf hjá okkur grunsemdir um að þriðji að-
ili hafi verið með í för hér á landi. Það er hins
vegar gífurlega erfitt að sanna slík mál og
konurnar hafa ekki sagt neitt til um það,“ seg-
ir Björgvin.
Flestar vændiskonur sem koma hingað til
lands eru ýmist frá löndum Austur-Evrópu
eða Brasilíu og starfa sem alþjóðlegar vændis-
konur. Þær hafa komið inn á Schengen-svæð-
ið og ferðast á milli landa innan þess. Þær eru
jafnan á milli tvítugs og þrítugs. „Það er ekk-
ert sem bendir til annars en að þær hafi kom-
ið í þeim yfirlýsta tilgangi að stunda vændi og
ekki þekkt lögin. Þær vilja bara stunda sína
starfsgrein í friði.“
Þekkt dæmi eru um að vændiskonur hafi
dvalið á hótelum hér á landi og þá sérstaklega
í kringum viðburði sem mögulegir kúnnar
eru líklegir til að sækja.
Aðeins orðrómur
Nektarstaðir á höfuðborgarsvæðinu á
borð við Goldfinger í Kópavogi hafa lengi leg-
ið undir grun um að þar sé stundað vændi.
Stúlkur sem störfuðu á staðnum hafa lýst því
í fjölmiðlum að mikill þrýstingur hafi verið af
hálfu eigandans á að þær stundi vændi. Hvort
sem vændi er stundað á Goldfinger eða ekki
er staðurinn að minnsta kosti kynntur á al-
þjóðlegum vefsíðum sem vændisstaður. Ef
marka má vefsíðuna cityoflove.com, sem
miðlar upplýsingum um hvar fólk getur fund-
ið nektarstaði og fylgdarþjónustur í flestum
stórborgum heims, er Goldfinger nefndur
sérstaklega. Í lýsingu á staðnum kemur fram
að nektardansarar séu á staðnum og gest-
ir staðarins geti pantað einkadans. Þá kem-
ur fram að vændisþjónusta sé í boði á staðn-
um, en hún afmarkast við karlgesti staðarins.
Það er hins vegar tekið fram að drottnunar-
og bindikynlíf er ekki í boði fyrir viðskiptavini
næturklúbbsins.
Björgvin Björgvinsson segir engin vænd-
ismál tengd nektarstöðum hafa komið beint
inn til lögreglunnar. „Það hefur aðeins verið
þrálátur orðrómur tengdur vændi, en stúlk-
urnar sem starfa þar hafa aldrei leitað til lög-
reglu svo mér sé kunnugt um.“ Björgvin segir
lögregluna heldur ekki hafa fengið upplýs-
ingar um sérstök vændishús í Reykjavík. „Ég
þekki ekki dæmi um slík hús.“
Vændi á hótelum
Brasilísk kona var handtekin á Hótel Sögu
fyrir vændi fyrr á árinu. DV sagði frá málinu
í mars, en upp komst um konuna þegar hún
tók fáklædd á móti viðgerðarmanni sem kom
inn á hótelherbergi hennar til þess að gera
við bilaðan síma. Viðgerðarmaðurinn gerði
yfirmönnum hótelsins viðvart sem létu lög-
regluna vita. Ferðir karlmanna til og frá her-
berginu voru farnar að vekja eftirtekt. Á vefn-
um private.is var símanúmer manns auglýst
sem er talinn hafa gert konuna út. Ekki náðist
hins vegar í viðkomandi og lögregla gaf ekki
upplýsingar um hversu lengi konan dvaldi á
hótelinu.
Önnur brasilísk kona var hins vegar hand-
tekin vegna málsins og íslenskur karlmað-
ur handtekinn vegna gruns um að hann hafi
verið milligöngumaðurinn. Hann neitaði allri
sök, en hafði áður verið kærður vegna sam-
bærilegs athæfis. Sá maður mun hafa tengst
erótískri nuddstofu sem lögregla hafði áður
haft afskipti af vegna gruns um vændi. Sam-
kvæmt heimildum mun þetta ekki hafa verið
í fyrsta skipti sem konan kom hingað til lands
til þess að stunda iðju sína. Í vor auglýsti vef-
síða fylgdarþjónustu austur-evrópska konu
sem stödd var hér á
landi til þess að selja
sig. Á vefsíðunni var
hægt að sjá ferðadagskrá
konunnar og hvernig hægt væri að
bóka tíma hjá henni.
Dólgar ógna konum
Halldóra Halldórsdóttir hjá Stígamótum
segir aðstæður kvenna sem stunda vændi
hér á landi ólíkar. Langflestar konur sem leita
til Stígamóta vegna vændis eru íslenskar, en
á öllum aldri. „Til okkar koma meðal annars
konur sem stunduðu vændi fyrir mörgum
árum, en þrátt fyrir að hafa hætt að stunda
vændi hefur fortíðin fylgt þeim eftir.“ Hún
segir almennar ástæður fyrir því að konur hafi
leiðst út í vændi vera kynferðisofbeldi í æsku,
en það sé ekki algilt. Ekki liggja rannsóknir
að baki því. „Við lítum svo á að allt vændi sé
kynferðisofbeldi. Við skilgreinum ekki vændi
sem annars vegar valið vændi og hins vegar
kynferðisofbeldi.“
Að meðaltali leita níu konur á ári til Stí-
gamóta á ári vegna vændis og Halldóra segir
margar þeirra vera fórnarlömb ofbeldis. „Þær
hafa orðið fyrir barsmíðum, andlegu ofbeldi,
niðurlægingu og fyrirlitningu. Þessi veröld í
Reykjavík er ekkert öðruvísi en við þekkjum
í útlöndum.“ Þær konur sem leitað hafa til
Stígamóta höfðu flestar haft milligöngumenn,
dólga sem höfðu hag af starfsemi þeirra. Það
er mat Halldóru að dólgar hafi í mörgum til-
fellum beitt þær hótunum og jafnvel ofbeldi.
Í sumum tilfellum lifa konurnar í stöðugum
ótta við dólgana.
Guðmundur Jónsson, betur þekktur sem
Mummi í Mótorsmiðjunni, sagði í viðtali við
DV í júní að reynsla hans hefði sýnt að á Ís-
landi grasseraði allt í beinu og óbeinu vændi.
Hann segist þekkja mörg dæmi um krakka
sem hafi selt sig reglulega, verðið hafi verið
allt frá nokkrum tugum þúsunda króna nið-
ur í bjór í skiptum. Mummi sagði ennfremur:
„Ég man eftir einni stúlku hjá mér í meðferð
sem var með melludólg, náunga sem hafði
það hlutverk að redda stelpunni vændisvið-
skiptum. Hann var með að minnsta kosti
tvær aðrar í sinni þjónustu og gerði ekkert
annað yfir daginn en að dólgast með þær. Það
þurfti að sækja þær víða um bæinn, redda
hótelherbergjum í sumum tilvikum og stelp-
urnar þurftu alltaf að vera til taks þegar hann
hringdi.“
Lifa í ótta við meLLudóLga
Tuttugu konur leita á hverju ári til Stígamóta vegna
vændis, helmingur þeirra kemur í fyrsta skipti. Björg-
vin Björgvinsson segir öll vændismál sem komið hafa
upp hér á landi í ár tengjast erlendum atvinnuvændis-
konum sem ferðast á milli landa og gista á hótelum, hann
þekkir ekki dæmi um vændishús í Reykjavík þótt marg-
ar sögusagnir séu uppi um slíkt. Vændiskonur lifa í ótta
við melludólga sína sem beita þær hótunum og ofbeldi.
Guðmundur Jónsson „Ég man eftir einni stúlku hjá mér í meðferð sem var með melludólg, náunga
sem hafði það hlutverk að redda stelpunni vændisviðskiptum.“
Lögreglan flestar
vændiskonur koma frá
austur-Evrópu og Brasilíu.
Hótel Vændiskonur koma hingað
til lands og gista gjarnan á
hótelum. fimm slík mál hafa
komið upp það sem af er ári.