Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.2007, Side 19

Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.2007, Side 19
Rowan Atkinson, sennilega best þekktur sem herra Bean en auðvit- að bestur í fjórðu seríu Black Add- er, gerði einhvern tíma grín að því á sviði hvernig sendiboðanum hefði alltaf verið refsað fyrir slæm skila- boð í gömlum leikritum. Þetta var stórskemmtilegt atriði. Fyrr á öldum var víst þekkt að sendiboðarnir væru látnir gjalda fyrir slæmu skilaboðin sem þeir færðu. Það er frekar sorg- legt og óverðskuldað. Viðbrögð Knattspyrnusambands Íslands við dómaravandanum í sum- ar eru af þessum toga, þeim seinni. Frekar sorgleg og sökinni beint óverðskuldað að þeim sem vekja at- hygli á vandanum. Óánægjan með frammistöðu dómara braust fram eftir leiki síðustu umferðar. Nokkrir þjálfarar kvörtuðu hástöfum undan dómgæslunni, fannst hún ýmist lé- leg eða að hallaði á sitt lið. KSÍ hef- ur reynslu af því hvernig á að taka á svona gagnrýni. Það mætti halda að til væru vel skilgreind viðbrögð við gagnrýni þjálfara á dómara. Við- brögðin virðast í það minnsta alltaf vera þau sömu: Skjótum sendiboð- ann. Þórir Hákonarson, framkvæmda- stjóri KSÍ, hefur nú ákveðið að fjórir þjálfarar skuli svara til saka fyrir orð sem þeir létu falla um frammistöðu dómara í síðustu umferð. Þjálfararnir eru Guðjón Þórðarson, Leifur Garð- arsson, Magnús Gylfason og Ólafur Kristjánsson. Allir voru þeir ósáttir við dómgæsluna. Ólafur Kristjánsson, þjálfari Breiðabliks, sagði þetta reynd- ar ekki beint út heldur sagðist hann einfaldlega ekki viss um að hann stigi upp í flugvél á næstunni. Þar vísaði hann til þess að Egill Már Markússon, sem dæmdi leik Breiðabliks og Vík- ings, er flugumferðarstjóri. Guðjón Þórðarson, þjálfari ÍA, var opinskárri í orðum. Hann sagði að Skagamenn hefðu verið tveimur færri allan leik- inn, dómarinn og aðstoðardómarinn stúkumegin hefðu verið eins og tólfti og þrettándi maður í KR-liðinu. Sýnileg viðbrögð KSÍ eru ekki að athuga hvort eitthvað sé að dómgæsl- unni. Þau snúa aðeins að því að skjóta sendiboðann. Kannski viðhorfið sé að ef enginn orðar vandann sé enginn vandi. Þetta er auðvitað óviðunandi. Dómgæslan í Vesturbænum um síð- ustu helgi var vissulega einhliða eins og Guðjón Þórðarson lýsti (hér má taka fram, þótt það ráði ekki úrslitum í þessu mati, að undirritaður held- ur með ÍA). Jafneinhliða dómgæsla sést sem betur fer sjaldan. Þó eru þess dæmi eins og þegar Fylkir fékk Grindavík í heimsókn meðan á stutt- um ferli Lee Sharpe á Íslandi stóð. Þá komust Fylkismenn upp með fjölda brota sem Grindvíkingar fengu á sig aukaspyrnur fyrir og jafnvel spjöld. Svona uppákomur eru sem betur fer fátíðar. Því er enn frekar ástæða til að hafa orð á þeim. Þótt þjálfarar liða megi stundum anda djúpt áður en þeir tjá sig um dómgæsluna verða forráðamenn KSÍ að gera það líka áður en þeir ákveða sjálfkrafa að refsa þjálfurunum. Malbikað í Ártúnsholti Rigningin kom ekki í veg fyrir framkvæmdagleðina í höfuðborginni. Þessir menn unnu að því að malbika hjólreiðastíg í Ártúnsbrekkunni í gærmorgun. DV-MYND: STEFÁNmyndin P lús eð a m ínu s Valur Steingrímsson knatt- spyrnudómari sem varð fyrir líkamsárás eftir leik fær hrósið í dag. Hann hefur verið með dugleg- ustu dómurum og dæmt hátt í hundrað leiki á ári. Leikirnir sem hann hefur dæmt á ferlinum skipta þúsundum. Spurningin „Það þarf að skoða staðreyndir málsins fyrst, ég þekki þær ekki nákvæmlega. Utandeildin er ekki á okkar vegum þannig að ég get lítið sagt um það. Hins vegar eru fordæmi fyrir því að menn hafa fengið langt keppnis- bann fyrir sambærilegt athæfi í deild,“ segir Þórir Hákonarson, framkvæmda- stjóri Knattspyrnusambands Íslands. Ráðist var harkalega að dómara í leik í Utandeildinni í vikunni með þeim afleiðingum að hann beinbrotnaði. bregðist þið við ÁrÁsuM Á dóMara? Sandkassinn Ég þekki mann sem heitir Jón Jón Jónsson og býr í miðborg Reykja- víkur. Jón Jón vaknaði síðasta laugardag afar glaður í bragði. Hann hafði dreymt svo góðan draum þar sem hann var ríkasti og kyn- þokkafyllsti mað- ur heims (allt svo, skv. Forb- es-tímaritinu) og bjó í höll ásamt sæg kvenna af öllum kynþáttum, hverri annarri kynþokkafyllri. Og allar girntust þær Jón Jón. Ekki skemmdi fyrir að sól var á himni þegar Jón vaknaði. en svo fór að syrta í álinn. Jón Jón ákvað að fá sér göngutúr og eftir stutt labb fór að rigna. Hann brá á það ráð að stökkva inn á næsta kaffihús sem var í afar gömlu húsi þarna í miðbænum. Jón Jón var rétt að lepja fyrsta sopann af kaffinu sínu þegar verktakar koma stormandi inn og leiðtogi þeirra segir öllum að hypja sig út. Það eigi nefnilega að fara að rífa húsið. Jón Jón hrökklast aftur út í rign- inguna, fer heim og hangir þar fram á kvöld. Þá ákveður hann að fá sér smá bjór. Þegar hann hefur fengið sér nokkra dettur hon- um í hug að bregða sér á barinn. Enn rignir og hann fer því í regnjakka. Hann hefði þó getað sleppt því. Á sama andartaki og Jón Jón lokar útidyrunum á eftir sér er hann laminn af stráka- hópi. Hann fer aftur inn og sleikir sárin. Í hádegisfréttum daginn eftir er sagt frá fleiri líkamsárásum í miðbænum. Löggan spurð hvað sé til ráða. Fleiri myndavélar er svarað. Manneklan er mikil. Í nýrri vinnuviku tekur ekki betra við. Jón Jón, sem er öryrki, vann hjá Varnarliðinu í fjölda- mörg ár og kemst að því á mánu- deginum að Bandaríkjaher hafi safnað persónulegum upplýsing- um um hann. Á þriðjudeginum hverfur hundurinn hans (kannski drepinn). Á miðvikudeginum fer hann á fótboltaleik sem mágur hans dæmir. Mágur hans er rif- beinsbrotinn af einum leikmann- inum. Jón Jón hugsar með sér að hlut- irnar hljóti að lagast ef hann fari aðeins út úr bænum. Á föstudeg- inum fer hann því til Reykjanes- bæjar til að taka þátt í Ljósa- nótt. Með von í brjósti syngur hann Ljósanæturlagið í ár þegar hann gengur glaðbeittur inn á skemmtistaðinn Traffic. Það síð- asta sem hann man var að ein- hver sagði djúpri röddu: Ég heiti Njörður og er frá Njarðvík. Kristján Hrafn segir frá slæmri viku í lífi Jóns Jóns Jónssonar Skjótum sendiboðann DV Umræða föStUdagUR 31. ÁgúSt 2007 19 brynJólfur þór guðMundsson fréttastjóri skrifar „Kannski við- horfið sé að ef enginn orð- ar vandann sé enginn vandi.“ DV fyrir 25 árum Útvatnaður saltfiskur án beina til að sjóða Sérútvatn. saltfiskur án beina til að steikja Saltfisksteikur (Lomos) fyrir veitingahús

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.