Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.2007, Blaðsíða 47
Meistarinn
DV Helgarblað föstudagur 31. ágúst 2007 47
„Systir mín á eiginlega heiður-
inn af þessari súpu. Hún hefur verið
elduð innan fjölskyldunnar í mörg ár
og er sívinsæl,“ segir Erna Jónsdótt-
ir, starfsmaður sjúkraþjálfunar Sel-
foss og matgæðingurinn að þessu
sinni. Hún býður upp á fiskisúpu með
brauðbollum og beikonkjúklingarétt.
„Brauðbollurnar og kjúklingurinn
eru hins vegar nokkuð sem sett hef-
ur verið saman smátt og smátt,“ seg-
ir Erna sem kveðst ekki styðjast mik-
ið við matreiðslubækur. „Stundum
kíki ég í þær en þá eru það yfirleitt
svo langar uppskriftir að mann vantar
alltaf eitthvað. Þær breytast því þegar
maður notar þær.“
Erna segist hafa nokkuð gaman af
eldamennsku. „Allavega þegar mað-
ur hefur tíma. Maður gat gert meira
hér áður fyrr þegar maður var meira
heima. Það er alltaf þessi tímaskort-
ur.“
Fiskisúpa
50 g smjör
2-4 teningar grænmetiskraftur
1 stk. stór laukur
4 stk. hvítlauksgeirar
2 tsk. dill
2. tsk. karrý
2 tsk. turmeric
1 tsk. kúmen
2 dósir humarsúpa eða krabbasúpa
1 dós vatn
1 ½ bolli hvítvín
¼ l matreiðslurjómi
¼ l rjómi
Blandaður fiskur og skelfiskur t.d.
humar, hörpuskel, smálúða,
rauðspretta.
Bræðið smjör í potti, mýkið lauk-
inn og hvítlaukinn í smjörinu ásamt
kraftinum og kryddinu. Humarsúp-
an og vatnið sett út í og hitað í u.þ.b.
10 mín.
Því næst er hvítvínið sett út í og
síðan rjóminn.
Látið suðuna koma upp og smakk-
ið til, súpan má vera frekar sterk því
fiskurinn á eftir að fara í hana. Takið
pottinn af hitanum og setjið fiskinn í
rétt áður en súpan er borin fram.
Sesambollur
6 dl hveiti
2 dl sesamfræ léttbrúnuð á þurri
pönnu
1 tsk. salt
1 tsk. lyftiduft
2 tsk. ger
50 g smjör (brætt)
2 dl aB mjólk
1 dl vatn ylvolgt
1 msk. hunang
1 stk. egg
rifinn piparostur og ostur
Gerið og hunangið sett í ylvolgt
vatn og látið standa í 5 mín. Öllum
þurrefnunum blandað saman. Ger-
blöndu, smjöri, AB mjólk og eggi bætt
út í. Látið hefast í u.þ.b. 20 mín.
Deigið tekið úr skálinni og mótað-
ar 10–12 bollur, látið hefast í u.þ.b. 15
mín. Klippið rauf í bollurnar og rifinn
ostur settur í.
Bakið í 30 mín við 200°C.
Beikonkjúklingur
4 stk. kjúklingabringur
3 msk. beikonsmurostur
1 ½ msk. sacla sólþurrkaðir tómatar
(mauk)
12-15 beikonsneiðar
4 stk. hvítlauksgeirar smátt skornir
½ l matreiðslurjómi eða rjómi
1 msk. smjör
Kjúklingakraftur, salt, pipar
Blandið saman beikonosti og
Saclamaukinu. Skerið raufar í hlið-
arnar á bringunum og setjið ostafyll-
inguna í, geymið aðeins af fyllingunni
fyrir sósuna.
Lokið raufinni með því að vefja
beikonsneiðum þétt utan um bring-
urnar.
Brúnið bringurnar á pönnu, leggið
síðan í eldfast form, kryddið með salti
og pipar.
Setjið smjör á pönnuna og brún-
ið hvítlaukinn, hellið rjómanum á
pönnuna, suðan látin koma upp,
bragðbætt með restinni af fylling-
unni, kjúklingakrafi, salti og pipar.
Bakið í ofni víð 200°C í 20 mín.
Ég ætla að skora á vinkonu
mína, Brynju Þrastardóttur
„flikku“ (saman í vinkvenna-
hópnum Sænsku flikkunum) að
vera næsti matgæðingur. Hún
kann víst ýmislegt í villibráð.
Vín með sushi
Það skemmtilega við að velja vín með sushi er að það gilda í raun engar reglur. Venjulega hafa aldagamlar hefðir og venjur mótað það hvaða vín á að
drekka með tilteknum mat. Vínið og
réttirnir hafa þá oft þróast samhliða í
tilteknu héraði um aldir. Það gildir ekki
um sushi. Japanar sjálfir drekka oft
grænt te með sushi en flestir
drekka bara bjór. Margir Jap-
anar drekka hrísgrjónavínið
sake en aðrir telja ekki við
hæfi að blanda saman hrís-
grjónum og hrísgrjónavíni.
af þessu þrennu finnst mér
bjórinn bestur.
Það er ekki auðvelt að velja
vín með sushi. Vínsérfræð-
ingurinn Oz Clarke segir að
wasabi eða piparrótarbland-
an sé vínböðull („wine killer“).
Hvorki edikið í sushi-hrísgrjónun-
um né saltið í sojasósunni og
þanginu (nori) eru auðveld við-
fangs. sultaði engiferinn er enn
eitt vandamál að ógleymdum öll-
um þeim mismunandi „áleggs-
tegundum“ sem notaðar eru.
Það er ekki endilega sama vínið sem passar
með feitum laxi og túnfiski eða agúrkum
og óðalsosti.
Þegar ég bý til sushi kaupi ég yfirleitt
þurrt sérrí, til dæmis tio Pepe. Ég veit að
það er alls ekki hefðbundið og því var
ég ánægður þegar ég fann á endanum
bók þar sem vínpáfinn Hugh John-
son tók undir þetta. Það ræður
vel við nori, engifer og wasabi. Ef
ég drekk hvítvín með sushi
finnst mér sauvignon Blanc
passa best, helst frá Nýja-sjá-
landi. Kampavín á að smell-
passa með sushi en ég er ekki
kominn lengra en í freyðivín-
ið. Margir mæla með Pros-
ecco frá Ítalíu. riesling-hvít-
vín er sagt passa vel við
piparrótina og á helst að vera
frá Þýskalandi. Margir nota
hið kryddaða gewurztraminer
og enn fleiri Chardonnay en það
passar vel með feitum fiski, eins og
laxi og túnfiski. aðrir mæla með
hvítum Búrgúndarvínum, Viognier
eða Beaujolais. Költið er þó að
drekka Pinot Noir rauðvín með
sushi en það er gjarnan drukkið
með fiskréttum.
Pálmi jónaSSon
vínsérfræðingur DV
Tio Pepe Fino Muy
Seco Palomino Fino
sérrí er styrkt vín sem búið er til umhverfis borgina Jerez,
yfirleitt úr þrúgunni Palomino. Borgin var kölluð sherish
á tímum Máranna og þaðan koma orðin Jerez og sherry.
á spáni heitir sérrí „Vino de Jerez“. Eftir að alfonso X tók
borgina árið 1264 jókst vegur víntegundarinnar og undir
lok 16. aldar þótti sérrí fínasta vín veraldar. Vinsældirnar
voru gríðarlegar í Bretlandi og mörg sérrífyrirtæki spánar
voru stofnuð af Bretum. styrkt vín eins og sérrí hentar vel
til flutninga. Kristófer Kólumbus fór með sérrí til ameríku
og þegar portúgalski landkönnuðurinn ferdinand
Magellan sigldi næstum því í kringum hnöttinn eyddi
hann mun meiri peningum í sérrí en vopn. Nóbelshafinn
sir alexander fleming sagði að ef pensillín gæti læknað
veika, gæti sérrí reist fólk upp frá dauðum. sala á sérríi
tók verulegan kipp þegar frasier Crane fór að drekka
sérrí og bjóða bróður sínum Niles. Brakandi þurrt sérrí er
hinn eini sanni fordrykkur og steinliggur
með tapas og sushi. 2.140 krónur.
Saint Clair Vicar‘s
Choice Sauvignon Blanc 2006
saint Clair Estate Wines er í eigu hjónanna Neal og Judy
Ibbotson. Þau hafa unnið við vínrækt í Marlborough frá
1978 og gert eigin vín frá árinu 1994. allt frá fyrsta ári
hafa þau fengið fjölda viðurkenninga. Vicar‘s Choice er
ódýrast af fjórum vínlínum fyrirtækisins en samt eru
þessi vín svona ljómandi góð. angan af sætum ferskjum,
apríkósum, límónum og óskilgreindum hitabeltisávöxt-
um. Meiri hitabeltisávöxtur í munni, ástaraldin, ferskjur,
perur, græn epli, greip og ungur ananas.
Mjög gott vín á frábæru verði sem
ræður ágætlega við sushi. 1.390 krónur.
Bisol Crede Brut Prosecco
di Valdobbiadene 2005
Bisol-fjölskyldan hefur framleitt vín í hæðunum við
Valdobbiadene í Veneto í Norðaustur-Ítalíu frá 16.
öld. Nú stjórnað af antonio og Eliseo og fjórum
sonum þeirra. Erfiðar aðstæður virðast henta
Prosecco-þrúgunni einstaklega vel. Crede Brut er
aðallega úr Prosecco-þrúgunni en einnig Pinot
Blanco og Verdiso. Blóm og ávöxtur í nefi en epli og
perur í munni. góður fordrykkur og
passar ágætlega með mat, t.d.
bragðmildu sushi. 1.490 krónur.
Erna Jónsdóttir Matgæðingurinn
Sívinsæl
fjölskyldufiskisúpa
DV mynd Ásgeir