Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.2007, Page 59

Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.2007, Page 59
er svo líka að fara leika aðalkarlhlut- verkið í framhaldsmyndinni Chains- aw Sally 2 en ég lék í fyrri myndinni í hittiðfyrra. Þar verð ég við tökur í um fjórar vikur. Ég er sem sagt farinn að fá betri hlutverk og það gleður mig sem leikara.“ Hafnaði hlutverki í endurgerð- inni Þegar Texas Chainsaw Massacre var endurgerð árið 2003 með Jessicu Biel í aðalhlutverki fóru þær sögur af stað að Gunnar hefði heimtað háar fjárhæðir þegar honum var boðið gestahlutverk í myndinni. „Þetta er einfaldlega lygi,“ segir Gunnar um málið. „Þau buðu mér ekki hlutverk Leatherface sem mér fannst mjög skiljanlegt þar sem 30 ár voru liðin síðan ég lék hann heldur hlutverk vörubílstjóra í lok myndarinnar,“ og Gunnar tók vel í það í fyrstu. „Í kjöl- farið komu þau svo fram við mig eins og hálfvita og mér líkaði það ekki. Í fyrstu sögðu þau að mikil leynd væri yfir handriti myndarinnar sem ég lék auðvitað upprunalega í fyr- ir 30 árum og þau sögðu ef að ég samþykkti hlutverkið væri hægt að redda mér handriti. Þá hugsaði ég: Ókei, vá, þau ætla að leyfa mér að læra línurnar mínar. Svo buðu þau mér lágmarkskjör. Ég hefði verið til í að hjálpa þeim en ekki fyrir lág- markslaun. Það eru allra lægstu laun sem þú getur borgað í kvikmynd,“ og Gunnar segist hafa áttað sig á því strax að þau hafi bara viljað fá nafnið hans á plaggatið. „Ég sagði þeim að ég myndi glað- ur leika í myndinni þeirra en ég ynni ekki fyrir neinn fyrir lágmarkslaun. Þau sögðu seinna í Fangoria magaz- ine sem er stórt hryllingsmyndablað að ég hefði krafist 20.000 dala á dag sem er haugalygi og mér fannst það mjög leiðinlegt. Eina sem ég sagði var að ég ynni ekki fyrir lægstu hugs- anleg laun.“ Þénar ennþá á Leatherface Gunnari fannst ekki mikið til end- urgerðarinnar koma og að hún hefði í raun glatað aðalatriði fyrri mynd- arinnar sem var fjölskyldan sjálf. Þá fannst Gunnari að í endurgerðu myndunum hefði Leatherface misst sjarmann þegar var verið að rembast við að útskýra fortíð hans og hvers vegna hann var Leatherface. „Það sem var heillandi og ógnvekjandi við persónuna var einmitt dulúðin sem umlauk hann.“ Gunnar hefur það þó ennþá gott út á hlutverkið og ferðast reglulega um Bandaríkin á hinar ýmsu hryll- ingsráðstefnur. „Í kringum Hallo- ween-hátíðina er mikið að gera og þá fer ég á nokkra staði og gef eig- inhandaráritanir og spjalla við fólk. Fyrir utan það fer ég á sirka fjórar aðrar ráðstefnur á ári.“ Skrifar skáldsögu sem gerist á Íslandi Eins og áður sagði hefur aðalá- stríða Gunnars í gegnum árin ver- ið skrifin og lítur hann svo á að leik- listin geri honum frekar kleift að stunda þá iðju fremur en öfugt. „Ef ég er spurður hvort ég er leikari eða rithöfundur segi ég það síðara. Það er meira að segja starfsheitið í vega- bréfinu mínu.“ Eftir að Gunnar sagði skilið við blaðaskrifin snéri hann sér að gerð kvikmyndahandrita bæði fyrir leikn- ar og heimildarmyndir. „Ég hef selt tvö kvikmyndahandrit hingað til en þær myndir urðu því miður aldrei að veruleika.“ Gunnar hefur sjálfur verið að gera heimildarmyndir und- anfarin ár og meðal annars eina um Grænland. „Ég hef gert þrjár heim- ildarmyndir undanfarin ár þar sem ég hef skrifað, leikstýrt og jafnvel framleitt. Ég er líka að skrifa skáldsögu um þessar mundir og hún gerist á Ís- landi,“ segir Gunnar glettinn. „Hún fjallar um mann sem snýr aftur til Íslands eftir langa fjarveru og reyn- ir að leysa vandamál sín,“ en Gunn- ar segir bókina byggða upp að vissu leyti á íslenskum viðmiðum og gild- um en þó ekki sjálfsævisögu hans að neinu leyti. „Ég fékk hugmyndina út frá reynslu minni en annars er þetta bara skáldsaga.“ Leikur í fyrstu íslensku hroll- vekjunni Gunnar mun leika í myndinni Reykjavík Whale Watching Massacre sem fer í framleiðslu á næstu mán- uðum. Það er þeir Júlíus Kemp og Ingvar Þórðarson hjá Kisi Product- ions sem standa á bakvið myndina en þeir hafa áður sent frá sér mynd- ina Africa United og nú síðast Ast- rópíu. RWWM er tímamótamynd að því leyti að þetta er fyrsta íslenska myndin sem Gunnar leikur í og í raun fyrsta íslenska hrollvekjan eða svo kallaður splatter. „Ég leik skipstjóra hvalaskoðunar- skipsins,“ segir Gunnar um hlutverk sitt í myndinni.„Persónan mín lendir í slysi áður en fyrsti helmingur mynd- arinnar er úti og það setur eiginlega alla atburðarásina af stað,“ en Gunn- ar er mjög spenntur fyrir hlutverk- inu. „Ég fæ að tala bæði íslensku og ensku. Sem þýðir að ég þarf að fara æfa mig að tala ensku með íslensk- um hreim. Og auðvitað að fínpússa íslenskuna mína þannig að hún hljómi nokkuð vel,“ en Gunnar segist mjög hrifinn af íslenskri kvikmynda- gerð yfir höfuð. „Þegar við vorum að ræða um hlutverkið í fyrra settumst við niður yfir kaffibolla og Júlíus og Ingvar sýndu mér brot úr Astrópíu og hún leit út fyrir að vera mjög áhuga- verð og einnig mjög fyndin.“ Aðspurður segir Gunnar Börn náttúrunnar uppáhalds íslensku myndina sína. „Ég sá líka Nóa Al- bínóa um daginn og hafði gaman af henni. Það hafa verið gerðar mjög margar frábærar myndir á Íslandi á síðustu tveimur áratugum og ég vildi að ég gæti séð fleiri þeirra. Það er mjög erfitt að nálgast íslenskar myndir hérna í Bandaríkjunum,“ en Gunnar sá myndina Útlagann um Gísla sögu Súrssonar fyrir slysni á sínum tíma. „Frændi minn leigði hana sem hasarmynd og þegar bróð- ir minn heimsótti hann og sá mynd- ina þekkti hann landslagið strax. Hann fékk hana því lánaða og við horfðum á hana.“ Gunnar hefur einnig verið að kynna sér Íslendingasögurnar und- anfarið og las einmitt Gísla sögu Súrssonar í vor. „Ég komst inn í les- hóp hérna í Háskólanum í Maine þar sem verið var að kynna Íslendinga- sögurnar og ég hafði mjög gaman af.“ Stolltur Íslendingur Að lokum er Gunnar spurður hvort að hann líti á sig sem Íslending eða Ameríkana þar sem hann hafi búið nánast alla sína ævi í Bandaríkj- unum. „Þetta er spurnig sem ég spyr sjálfan mig oft að,“ og segist Gunnar líta á sig sem Íslending. „Auðvitað er ég að stórum hluta bandarískur þar sem ég hef búið hér nánst alla mína ævi. Þrátt fyrir það er ég fæddur á Ís- landi og átti íslenska foreldra. Því er ég alinn upp við sérstök viðmið og út frá vissu sjónarmiði sem að ég tel ís- lenskt.“ Gunnar segir að vissulega séu stórar eyður í tengslum hans við Ís- land en hann geri hvað hann geti til að halda tengslum sínum við land og þjóð. „Eftir að ég flutti út komum ég og bróðir minn alltaf til Íslands ann- að hvert sumar. Það er að segja alveg þangað til faðir minn dó þegar ég var 17 ára. Síðan þá hef ég reynt að koma eins oft og ég get. Hvað sem því líð- ur er ég mjög stoltur af því að vera Íslendingur og því mun ég aldrei gleyma,“ segir Gunnar að lokum og segist hlakka til að komast á Klakann á ný. asgeir@dv.is föstudagur 31. ágúst 2007DV Bíó 59 Gæði á góðu verði Daewoo lyftararDoosan - Daewoo lyftarar MAÐURINN Á BAKVIÐ LEÐURGRÍMUNA Íslendingurinn Gunnar Hansen sem sló í gegn á áttunda áratugnum í hlutverki Leatherface í hryllingsmyndinni Texas Chainsaw Massacre mun leika í sinni fyrstu ís- lensku mynd á næstunni. DV spjallaði við Gunnar um hlut- verk hans sem Leatherface, feril hans sem leikara og kvik- myndagerðarmanns og ástríðuna sem rithöfundur. Leatherface gunnar í myndinni texas Chainsaw Massacre frá árinu 1974 sem er ein frægasta hrollvekja fyrr og síðar. Fer á þó nokkrar ráðstefnur á ári hverju vegna hlutverksins Þó svo að gunnar hafi búið mestalla ævina í Bandaríkjunum segist hann gríðarlega stoltur af uppruna sínum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.