Dagblaðið Vísir - DV - 08.10.2007, Síða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 08.10.2007, Síða 10
mánudagur 8. október 200710 Sport DV FH varð á laugardag bikarmeistari í fyrsta sinn í sögu félagsins. FH vann Fjölni 2–1 í framlengdum úrslitaleik þar sem Matthías Guðmundsson skoraði bæði mörk FH. Fjölnir á hrós skilið fyrir að spila alvöru fótbolta og ekki gefast upp þótt á móti hafi blásið. Bikarinn fór í fjörðinn FH varð á laugardag bikarmeistari í fótbolta í fyrsta sinn. Matthías Guð- mundsson skoraði bæði mörk Hafn- arfjarðarrisans í leiknum en Gunnar Guðmundsson jafnaði leikinn í 1-1 með marki úr vítaspyrnu. Eitt mark var skorað í fyrri hálf- leik og það gerði Matthías fyrir FH. Tryggvi Guðmundsson fékk send- ingu frá Davíð inn fyrir vörnina og Matthías var mættur á fjærstöngina og skoraði. „Það dreymir alla um að skora tvö mörk í bikarúrslitaleik en það sem er fyrir öllu er að við unn- um þennan leik. Ég er mjög sáttur. Mér fannst þetta gríðarlega gaman og það eru ekki allir sem fá tækifæri á því að spila bikarúrslitaleik,“ sagði markaskorarinn glaður. „Ég hef einu sinni áður spilað slíkan leik en þá var ég á bekknum og þetta var öðruvísi. Ég bjóst við þeim góðum og 1-0 er engin forysta. Það var mikið í húfi og mikil barátta á vellinum en ég held að þetta hafi verið ágætis leikur.“ Eftir markið duttu FH-ingar of langt til baka, fóru að verja forustuna og Fjölnismenn komust inn í leikinn smátt og smátt. Það kom ekki á óvart að þeir náðu að jafna. Þeir voru reyndar aldrei búnir að hitta rammann en ótrú- legt en satt þá höfðu þeir sterk tök á leiknum þegar jöfnunarmarkið kom. Gunnar Guðmundsson skoraði úr vítaspyrnu sem dæmd hafði verið á Sverri Garðarsson. Engin vítaspyrna „Eins og allir sjá var þetta ekki vítaspyrna. Svona er dómgæslan búin að vera í allt sumar, menn eru að klikka á mjög mikilvægum augna- blikum og þetta var aldrei víti,“ sagði Sverrir eftir leikinn. Hann sagði hins vegar að eftirsjá yrði að dómaran- um Agli Má sem var að dæma sinn síðasta leik. „Það verður eftirsjá í Agli, hann er virkilega góður dóm- ari. Knattspyrnan er að missa góðan mann. Fjölnir spilaði vel í þessum leik en við illa. Ég skil ekki alveg hvað er búið að gerast og hvað er í gangi. Við erum farnir að leita í löngu bolt- ana og það reynist okkur ekki vel. En engu að síður unnum við bikarinn og lentum í öðru sæti og það er ásætt- anlegt. Það er góður árangur, það má ekki gleyma því. Maður verður að setja hlutina í rétt samhengi og mað- ur verður að vera ánægður með það sem maður afrekar. Það væru mörg lið ánægð með að lenda í öðru sæti í deild og standa uppi sem bikarmeist- arar. En stefnan var að vinna Íslands- bikarinn og fyrst það gekk ekki urð- um við að taka bikarinn í staðinn.“ Vítaskyttan Gunnar sagðist hafa verið furðu lítið stressaður þegar hann tók vítið. „Þeir yfirspiluðu okkur í byrjun og skoruðu markið í kjölfar- ið. En við sýndum það undir lokin og í framlengingunni að við gátum þetta alveg. Ég held að við höfum sýnt það í dag að við eigum klárlega heima í efstu deild. Það vantaði kannski smá sjálfstraust til þess að vinna leikinn. Ég var furðulítið stressaður þegar ég var að taka vítið, maður er vanur að vera í þessari aðstöðu.“ Góðir leikmenn risu upp 1-1 var staðan eftir venjuleg- an leiktíma og því framlengt. Það er stundum sagt að góðir leikmenn rísi upp í aðstæðum sem þessum og FH- ingar hafa þá innan sinna vébanda. Tryggvi Guðmundsson á allan heið- urinn af seinna marki Matthíasar. Frábær undirbúningur hans og góð fyrirgjöf bjuggu það mark til. Reynd- ar var það vel gert hjá Matthíasi að vera mættur á fjærstöngina, því allt of algent er í íslenskum fótbolta að kantmenn eru latir við að koma inn í teig. „Ég hef alltaf verið keppnismað- ur og ég hata að tapa,“ sagði Tryggvi glaður í bragði eftir leikinn. „En ég elska að vinna og þetta var ógeðs- lega sætt að sjá að Matti var mættur og kláraði færið eftir snilldarsend- ingu frá kallinum,“ sagði Tryggvi og hló. Eyjapeyinn Tryggvi þekkir í raun ekkert nema velgengni hér á Íslandi. Hann varð bikarmeistari með KR, Ís- landsmeistari með ÍBV og með FH undanfarin ár. „Þetta er alltaf jafn ljúft. Fyrsti titillinn var sætur með KR 1994 en þetta er bara minn annar bikarmeistaratitill og það er erfitt að setja þennan á einhvern stall. Þetta er alltaf svo sætt.“ Ísinn loksins brotinn Fögnuðurinn var mikill hjá Hafn- firðingum þegar Egill Már Markús- son dómari flautaði leikinn af en þetta var síðasta flaut hans á ferlin- um. „Tilfiningin er góð að hafa dæmt minn síðasta leik. Saddur og sáttur, þetta eru orðin mörg ár. Dómgæsla er mjög skemmtileg. Ég hef kynnst mörgu góðu fólki, ég er búinn að fara mjög víða. Á staði sem maður myndi ekki fara sem ferðamaður, þetta er mikill skóli og ég mæli með þessu fyrir alla.“ Daði Lárusson fyrirliði FH var sáttur við að hafa loksins brotið ís- inn, að hafa unnið bikarmeistaratit- il. „Það er mikill léttir að vinna svona titil. Það er alltaf erfitt að brjóta ísinn og við gerðum það í dag. Loksins er kominn bikarmeistaratitill í höfn og mér líður mjög vel á þessari stundu. Við áttum von á mjög erfiðum leik og við sáum Fjölnisliðið leggja Fylki sannfærandi að velli. Það var dálítið kalt í dag og það var vissulega ekki mikið að gera en þeir voru nokkrum sinnum líklegir þó skotin hafi ekki komið á markið. Það verður að segjast að þeir nýttu færin nokkuð vel. “ Davíð Rúnarsson var uppgefinn í leikslok en sagði að það hefði ver- ið draumur að spila bikarúrslitaleik. „Ég er á báðum áttum með það hvort við höfum spilað vel. Venjulega höf- um við verið að klára svona jafna leiki. Í dag datt þetta ekki fyrir okkur. Enda var spennustigið hátt hjá ungu liði. Um leið og við róuðum okkur niður og fórum að spila fótbolta þá voru þeir í bullandi vandræðum. Mig Bikarinn hátt á loft daði Lárusson lyfti bikarnum hátt á loft. BEnEdikt Bóas Hinkrisson blaðamaður skrifar: benni@dv.is Bikartollering ólafur Jóhannesson þjálfari fékk tolleringu frá leikmönnum að hætti hússins. langar að koma á framfæri þakklæti til áhorfenda, þeir yfirgnæfðu þessa svokölluðu mafíu allan leikinn. Það var frábært að spila þennan leik. Bikarúrslitaleikur var eini leik- urinn sem var sýndur á Sauðárkróki þegar maður var 7-8 ára og það er al- gjör draumur að spila þennan leik. Við erum sigurvegarar dagsins. Þeir voru sterkari en ég bjóst við. Þeir voru rólegir á boltanum og voru betri en við í byrjun. Þegar við urðum rólegri á boltanum fannst mér við vera betri. Það hefði verið gaman að spila með fullskipað lið en þeir þora kannski í okkur þannig næst.“ alltaf gaman að vinna FH-ingar eru vel að bikartitlinum komnir, þeir unnu Val og ÍBV á leið sinni í úrslitin. Annað sætið og bikar- meistaratitill er góður árangur, sama hvað hver segir. „Það er alltaf gam- an að vinna eitthvað og þetta var frá- bær sigur,“ sagði Ólafur Jóhannesson þjálfari FH. „Þessi leikur var ágætur. Við vorum sterkari lungann úr fyrri hálfleik en svo duttum við til baka og við vorum í raun að bíða bara eft- ir því að leikurinn yrði flautaður af. Það er aldrei gáfulegt. Bullið í okkur var að detta svona langt til baka með vörnina og miðjuna. Það slitnaði mikið í sundur og gerði okkur bara erfitt fyrir.“ Fjölnir var að spila sinn 29. leik í sumar og það sást í framlengingunni að leikmenn voru orðnir þreyttir. Þeir hafa núna 8 mánuði til að hlaða batt- eríin. Ásmundur Arnarsson þjálfari Fjölnis var stoltur í leikslok. „Ég er ótrúlega stoltur af strák- unum. Þeir spiluðu mjög vel á móti sterku liði og í rauninni hefði þetta getað dottið hvorum megin sem er. Mér fannst við bera fullmikla virð- ingu fyrir þeim í fyrri hálfleik, en eft- ir það lagaðist það. Miðað við þessa frammistöðu er ekkert langt í land með að við verðum orðnir efstu- deildarlið. Það var frábært að upp- lifa stemninguna og þetta var algjör hátíð.“ sáttur með bikarinn Það mátti sjá að ólafur Jóhannesson var ánægður með sigurinn.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.