Dagblaðið Vísir - DV - 08.10.2007, Blaðsíða 19
DV Sport mánudagur 8. október 2007 19
spænska úrvalsd.
Valencia – Espanyol 1–2
A. Bilbao – Almeria 1–1
Barcelona – A. Madrid 3–0
1-0 deco, 2-0 messi, 3-0 Xavi
- eiður Smári guðjohnsen sat á
varamannabekknum allan tíman.
Sevilla – Deportivo 0–1
Mallorca – Getafe 4–2
Murcia – R. Betis 0–0
Osasuna – Villarreal 3–2
R. Madrid – Recreativo 2–0
1-0 ruud van nistelrooy, 2-0 Higuaín
R. Zaragoza – Levante 3–0
Racing S. – Valladolid 2–0
Staðan
Lið L u J t m St
1. r. madrid 6 5 1 0 14:3 16
2. Villarreal 6 5 0 1 9:5 15
3. Valencia 6 5 0 1 9:7 15
4. barcelona 6 4 2 0 13:4 14
5. a. madrid 6 3 2 1 11:4 11
6. espanyol 6 3 1 2 8:7 10
7. mallorca 6 2 2 2 9:8 8
8. murcia 6 2 2 2 7:6 8
9. Zaragoza 6 2 2 2 8:9 8
10. recreat. 6 2 2 2 7:8 8
11. racing 6 2 2 2 3:7 8
12. almeria 6 2 1 3 7:7 7
13. Sevilla 5 2 0 3 11:9 6
14. osasuna 5 1 2 2 5:5 5
15. betis 6 1 2 3 7:8 5
16. a. bilbao 6 1 2 3 4:8 5
17. deport. 6 1 2 3 3:8 5
18. Valladol. 6 1 2 3 8:13 5
19. getafe 6 0 2 4 3:9 2
20. Levante 6 0 1 5 3:14 1
ítalska úrvalsdeildin
Atalanta – Udinese 0–0
Inter – Napoli 2–1
Catania – Livorno 1–0
Fiorentina – Juventus 1–1
Genoa – Cagliari 2–0
Palermo – Reggina 1–1
- emil Hallfreðsson lék allan leikinn í
liði reggina.
Parma – Roma 0–3
Siena – Empoli 3–0
Torino – Sampdoria 1–0
Lazio – Milan 1–5
Staðan
Lið L u J t m St
1. Inter 7 5 2 0 16:5 17
2. Juventus 7 4 2 1 16:7 14
3. roma 7 4 2 1 15:8 14
4. Fiorentina 7 3 4 0 13:7 13
5. genoa 7 3 3 1 8:7 12
6. Palermo 7 3 2 2 10:10 11
7. udinese 7 3 2 2 8:10 11
8. aC milan 7 2 4 1 13:7 10
9. napoli 7 3 1 3 10:6 10
10. atalanta 7 2 4 1 8:8 10
1. Catania 7 2 3 2 5:6 9
12. Sampd. 7 2 2 3 5:7 8
13. torino 7 1 4 2 8:11 7
14. Lazio 6 1 4 1 7:6 7
15. Cagliari 7 2 1 4 7:10 7
16. Siena 7 1 3 3 7:9 6
17. Parma 7 1 3 3 7:11 6
18. empoli 7 1 2 4 4:10 5
19. reggina 7 0 4 3 5:13 4
20. Livorno 7 0 2 5 6:17 2
Úrslit helgarinnar
Michael Owen er engum líkur.
Hann kom af varamannabekknum
og skoraði eitt marka Newcastle í 3-
2 sigri liðsins á Everton. Owen fór í
kviðslitsaðgerð fyrir níu dögum og
er bati hans ótrúlegur.
Nicky Butt skoraði fyrsta markið
í leiknum með fallegu skoti. James
McFadden missti boltann klaufa-
lega á miðjunni fyrir Everton og
heimamenn brunuðu í sókn. Bolt-
inn barst til Alans Smith sem renndi
honum fyrir, þar var Joleon Lescott
með skelfilega hreinsun, Butt tók við
boltanum og smurði honum upp í
vinkilinn. Frábært mark og staðan
1-0 þegar leikmenn fengu sér hress-
ingu í leikhléi. Heimamenn voru
mun sterkari aðilinn í fyrri hálfleik
og Everton ógnaði sjaldan marki
Newcastle. David Moyes stjóri Ev-
erton gerði breytingu á sínu liði í
hálfleik. Setti Andy Johnsons inn á í
stað James McFadden sem átti einn
sinn versta leik á ferlinum.
Gestirnir neituðu þó að gefast
upp og téður Andy Johnson jafn-
aði leikinn á 53. mínútu. Þetta var
fyrsta mark Johnsons síðan í mars!
Sam Allardyce ákvað að setja Owen
inn á í stað Obafemis Martins sem
var búinn að leika vel. Áhorfendur
tóku ekki vel í þá skiptingu, púuðu
þegar Martins fór af velli en fögn-
uðu ákaft þegar Owen hljóp inn á.
Hlutirnir gerðust hratt á St. Jam-
es‘ Park síðustu mínútur leiksins.
Emre kom heimamönnum yfir með
frábæru skoti. Emre var síðan aftur
á ferðinni þegar leiktíminn var að
renna út. Átti þá aukaspyrnu beint á
kollinn á Owen sem skoraði. Mikel
Arteta minnkaði muninn með
marki á lokasekúndum leiksins. Þó
er spurning hvort markið verði ekki
skráð á Shay Given markvörð New-
castle sem leit ekki alltof vel út.
Andy Johnson dró sig út úr
landsliðinu
Steve McClaren var á leiknum til
að sjá þá Owen og Johnson. Hann
hlýtur að hafa yfirgefið völlinn með
bros á vör þó hann hafi verið farinn af
vellinum þegar markið hans Owens
kom. Hins vegar hlýtur hann að hafa
séð nóg til að velja hann í byrjunar-
liðið gegn Eistlandi og Rússum á
næstu dögum. Andy Johnson hef-
ur hins vegar dregið sig úr hópnum
vegna meiðsla. Hann ætlar að láta
laga á sér ökklann sem hefur verið
að angra hann síðustu vikurnar.
„Sem stjóri tekur maður ábyrgð
á þeim skiptingum sem maður gerir
og það mun ég gera. Þetta var nokk-
uð magnað að báðir varamenn okk-
ar skyldu skora. Emre með góðu
skoti og síðan skallinn frá Owen var
frábær. Heimavöllurinn heldur því
áfram að reynast okkur drjúgur,“
sagði Sam Allardyce eftir leik. „Ef við
höldum áfram okkar striki á heima-
velli og byrjum að hala inn stig á úti-
völlum er ekki spurning að við mun-
um þokast upp töfluna. Við vorum
sjálfum okkur verstir í síðari hálfleik,
því við stjórnuðum leiknum algjör-
lega í þeim fyrri. Við áttum svo mörg
tækifæri í fyrri hálfleik en klúðruð-
um þeim öllum en við erum sáttir
við þennan sigur. Þó hann hafi stað-
ið tæpt,“ bætti Stóri Sam við.
David Moyes var ekki jafn sátt-
ur og kvartaði sáran undan slök-
um varnarleik. „Við höfum fengið á
okkur fimm mörk í síðustu tveimur
leikjum og það er algjörlega óásætt-
anlegt. Mörkin í þessum leik voru
bara grín og ekkert annað. Við feng-
um fullt af tækifærum til að hreinsa
boltann í burtu í öðru markinu og
í þriðja markinu áttum við að gera
betur. Það voru alla vega nógu marg-
ir leikmenn í kringum Owen til að
koma í veg fyrir mark hans. Það var
engin þreyta eftir leikinn í Úkraínu
á fimmtudag. Þetta var bara okkur
sjálfum að kenna.“
Benedikt BóAs hinkrisson
blaðamaður skrifar: benni@dv.is
kominn aftur michael owen reimaði
á sig takkaskóna og það var ekki að
sökum að spyrja. Hann skoraði.
einn þumall upp Samallardyce
var sáttur við sína menn.
Fyrsta markið nicky butt
skoraði fyrsta mark leiksins.
ÓtrÚlegur owen
Michael Owen sneri aftur í lið newcastle aðeins níu dögum eftir uppskurð. Hann
skoraði eitt marka liðsins sem vann everton í fimm marka leik 3–2. Varamenn lið-
anna létu mikið að sér kveða og skoruðu þrjú mörk af fimm.
Markalaust var í hálfleik en gest-
irnir gátu þakkað markverðinum
David James að hafa haldið hreinu
en hann varði færi Clints Dempsey
og Davids Healy.
Fjórar mínútur voru liðnar af
seinni hálfleik þegar Benjani kom
Portsmouth yfir. Hann tók við bolt-
anum með Carlos Bocanegra í
bakinu, sneri sér og skaut. Boltinn
breytti um stefnu af varnarmann-
inum og skoppaði framhjá Kasey
Keller í markinu. Tveimur mínútum
síðar geystist Hermann Hreiðarsson
upp vinstri kantinn, fór í þríhyrn-
ingsspil við Nico Kranjcar sem kom
honum í gegnum Fulham-vörnina.
Þar kláraði hann færið eins og sönn-
um sóknarmanni sæmir með því að
lyfta boltanum yfir Keller, með smá-
vægilegri viðkomu í Cris Baird.
Portsmouth er í fimmta sæti
með fimmtán stig og miðjumaður-
inn Sean Davis viðurkennir að leik-
menn liðsins séu farnir að láta sig
dreyma um Evrópusæti.
„Boltinn gekk ekki nógu vel hjá
okkur í fyrri hálfleik en við byrjuðum
síðari hálfleikinn vel. Okkur langaði
líka til að halda hreinu í dag eftir að
hafa fengið á okkur fjögur mörk í
seinustu viku og það gekk eftir. Við
skoruðum tvö mörk þótt við værum
bara með einn framherja. Á sein-
ustu leiktíð urðum við af Evrópusæti
á markamun og ef við kæmumst í
Evrópukeppni yrði stemningin á
Fratton Park frábær.“
hermann hreiðarsson æðir áfram í liði Portsmouth og skorar í hverjum leik. Lið hans vann sinn þriðja leik
í röð þegar það lagði Fulham á Craven Cottage um helgina 2-0.
heitur hermann
með boltann
Skot að marki
Skot á mark
rangStöður
hornSpyrnur
aukaSpyrnur
gul Spjöld
rauð Spjöld
áhorfendur: 50,152
newcastle
everton
given, beye, Cacapa, faye, jose
enrique, milner (emre 74),
geremi (rozehnal 88), butt,
n’Zogbia, martins (owen 74),
Smith.
howard, hibbert, yobo, lescott,
baines, arteta, Carsley, neville
(yakubu 90), pienaar (osman 74),
mcfadden (johnson 45),
anichebe.
maður leiksins
Mikel Arteta, Everton
54%
18
8
0
8
13
2
0
46%
11
2
1
2
20
1
0
3:2butt 42, emre 86, owen 90. johnson 53, given 90 ssm.
Markahrókur Hermann
Hreiðarsson skorar gegn Fulham.
með boltann
Skot að marki
Skot á mark
rangStöður
hornSpyrnur
aukaSpyrnur
gul Spjöld
rauð Spjöld
áhorfendur: 75.663
fulham
portsmouth
keller, baird (murphy 60),
bocanegra, hughes, konchesky,
davies, davis, Smertin (ki-hyeon
61), bouazza, healy (kamara 61),
dempsey.
james, johnson, distin,
Campbell, hreidarsson (pamarot
87), muntari, kranjcar, davis,
diop (pedro mendes 76), utaka,
mwaruwari.
maður leiksins
Hermann Hreiðarsson P.mouth
47%
17
11
2
8
7
1
0
53%
15
7
4
5
18
0
0
0:2 mwaruwari 50, hreidarsson 52.
Harry Redknapp, stjóri Port-
smouth, bað leikmenn sína um að
vera þolinmóðari í sóknaraðgerðum
í síðari hálfleik. „Við spiluðum ekki
eins vel og við getum í fyrri hálfleik
en við vorum einum manni fleiri á
miðjunni og við verðum að láta bolt-
ann ganga og það gerðum við í síð-
ari hálfleik. Ég lagði áherslu á það í
hálfleik – sendið hann, sendið hann,
sendið hann! Við áttum góðan kafla
þar sem við opnuðum vörn Fulham
tvisvar sinnum og það tryggði okkur
sigurinn.“
fyrsti deildarsigur grants