Dagblaðið Vísir - DV - 08.10.2007, Side 30
mánudagur 8. október 200730 Síðast en ekki síst DV
Sandkorn
n Hefur þú kúkað á skemmti-
stað? er yfirskriftin á pistli sem
Heiðar Austmann útarpsmað-
ur skrifaði á bloggsíðu sína ný-
verið. Eins og titillinn ber með
sér veltir
Heiðar þar
því fyrir sér
hvort marg-
ir hafi gert
númer tvö
á öldurhús-
um bæjarins
þegar leikar
standa sem
hæst, það er á helgardjamm-
inu. Útvarpsstjarnan brýtur
líka odd af oflæti sínu og seg-
ir frá einu skipti þegar hann
hreinlega komst ekki hjá því að
verpa nokkrum við slíkar að-
stæður. Og ekki virðist standa
á áhuga fólks til að ræða þetta
efni því þegar þetta er skrifað
hafa vel á annan tug einstakl-
inga lagt orð í belg í komment-
unum við pistilinn.
n Guðni Bergsson, knatt-
spyrnuhetja og einn sérfræð-
inga Sýnar og Vísis um enska
boltann er töluvert eldri en
almennt er haldið. Í ljós hef-
ur komið að Guðni er 53 ára
gamall, en ekki 42 eins og áður
var talið.
Einhverja
rekur líklega
í rogastans
við þessar
fregnir en
það er alveg
óþarfi. Þetta
er dagsatt, í það minnsta ef eitt-
hvað er að marka Vísisbloggið.
Þar skrifa sparkspekingarnir:
Logi Ólafsson, Bjarni Jó-
hannsson, Heimir Guðjóns-
son og Ólafur Kristjánsson
um enska boltann auk Guðna.
Samkvæmt því sem þar kemur
fram er Guðni jafnaldri Loga;
báðir 53 ára. Ætli Guðni vilji
staðfesta þetta?
n Bardagaíþróttasnillingur-
inn Gunnar Nelson slóst sinn
annan atvinnumannabardaga
um helgina í Galway á Norð-
ur-Írlandi. Gunnar keppir í
blönduðum bardagalistum og
er sá besti hér á landi. Gunnar
keppti sinn fyrsta bardaga þar
síðustu helgi en mjög óvana-
legt er að menn í þessari grein
keppi tvær
helgar í röð.
En þar sem
Gunnar
vann fyrsta
bardaga
sinn mjög
sannfærandi
í fyrstu lotu
ákvað hann
að berjast strax aftur. Hægt að
er sjá úrslitin úr síðari bardag-
anum á mjolnir.is.
Hver er konan?
„Svandís Svavarsdóttir, fjörutíu
og þriggja ára, fjögurra barna móðir,
borgarfulltrúi vinstri grænna.“
Hvað drífur þig áfram?
„Viljinn til að bæta heiminn, trúin
á að það sé mögulegt og þolinmæðin
gagnvart því hve hægt miðar stund-
um.“
Hver er þín menntun?
„Ég er með BA-próf í málvísindum
og íslensku auk þess sem ég stundaði
MA-nám í íslenskri málfræði.“
Hver eru áhugamál þín?
„Mannlífið allt.“
Hver er eftirminnilegasta bók
sem þú hefur lesið?
„Ég er ekki svo upptekin af uppá-
haldshlutum. Bækur koma og fara eins
og tónlist og aðrar upplifanir. Grípa
mann stundum og stundum ekki.“
Hefur þú búið erlendis?
„Ég bjó í Berlín sem barn þeg-
ar pabbi var í námi. Á unglingsaldri í
Þýskalandi til að læra á lífið. Í Svíþjóð
sem fullorðin manneskja að lesa um
táknmál.“
Hvernig vilt þú að orkumálum
hérlendis verði hagað?
„Ég vil að auðlindirnar verði í eigu
almennings og að af því verði enginn
afsláttur gefinn. Ég vil að virkjanir og
veitur séu það sömuleiðis enda um
grunnþjónustu samfélagsins að ræða
sem enginn á að hagnast á nema sam-
félagið sjálft. Rekum orkufyrirtækin
saman.“
Græða íbúar á höfuðborgasvæð-
inu á þessum samruna?
„Það er alls óvíst. Íbúar á höfuð-
borgarsvæðinu missa umboð sitt í fyrir-
tækinu þegar Orkuveitan á aðeins þrjá-
tíu prósent í því ólíkt því sem áður var.
Nú erum við komin í rússíbana með
stórfyrirtækjum sem miða að hámarks-
hagnaði en ekki betra samfélagi.“
Finnur þú fyrir miklum meðbyr í
þessari baráttu?
„Já, ég hef aldrei fundið fyrir eins
miklum meðbyr í nokkru máli. Tölvu-
póstar og sms-skilaboð berast í stríð-
um straumum. Fólki er algjörlega mis-
boðið. Spillingin, sjálftakan, makkið
og vinnubrögðin. Kallar í stórkallaleik
með fjármuni og hagsmuni almenn-
ings. Fólk vill ekki samfélag þar sem
græðgin ein ræður för.“
Er spilling í borgarstjórn?
„Það er augljóst að Vilhjálmur
og Björn Ingi hafa gengið of langt og
þeirra framferði er ólögmætt að því er
varðar boðun eigendafundar og sið-
laust að því er varðar kaupréttarsamn-
inga og að þeir ráðfæra sig ekki einu
sinni við sinn eigin meirihluta.“
Finnst þér að borgarstjóri eigi að
segja af sér?
„Því verður hann að svara sjálfur
og eiga við sína samvisku og félaga í
meirihlutanum.“
Hvað er fram undan?
„Vonandi betri heimur, sanngjarn-
ari og réttlátari fyrir karla og konur,
stelpur og stráka.“
MAÐUR
DAGSINS
NÚ GETUR ÞÚ LESIÐ
DV Á DV.IS DV er
aðgengilegt
á dv.is og
kostar
netáskriftin
1.490 kr. á
mánuði
í rússíbana með
stórfyrirtækjum
Svandís Svavarsdóttir,
borgarfulltrúi vinstri grænna,
hefur staðið í eldlínunni í
andófi gegn meintri spillingu
og sjálftöku varðandi eigur
orkuveitu reykjavíkur.
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson á það
sameiginlegt með Bjarna Ármanns-
syni að vera lykilstarfsmaður hjá
orkufyrirtæki í almenningseigu.
Bjarni Ármannsson á það
sameiginlegt með Birni Inga
Hrafnssyni að vera lykilstarfsmaður
hjá orkufyrirtæki í almenningseigu.
Björn Ingi Hrafnsson á það
sameiginlegt með Pálma Haralds-
syni að vera framsóknarmaður.
Pálmi Haraldsson á það sameigin-
legt með Jóni Ásgeiri Jóhannessyni
að vera milljarðamæringur.
Jón Ásgeir á það
sameiginlegt með
Einari Bárðarsyni að
vinna fyrst og fremst í
útrásinni.
Einar Bárðarson á það sameiginlegt
með Guðmundi Árna Stefánssyni
að vinna á erlendri grundu.
Guðmundur Árni Stefánsson á það
sameiginlegt með Vilhjálmi borgar-
stjóra að hafa verið í bæjarpólitíkinni.
guðmundur sagði af sér embætti. Það
hefur Villi ekki gert.
teNGsL
Í DAG Á MORGUN
HINN DAGINN
Veðrið
+6
3
+73
+7
1
+7
1
+74
+63
+6
3
+46
+53
+24
+4
6
+4
12
+1
4
+2
4
+17