Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.2007, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.2007, Blaðsíða 6
„Þessar tölur segja allt sem segja þarf og það er sjálfsagt stutt í að einn milljarður króna bætist við í lífeyr- issjóðina á dag. Þetta eru gífurlegar upphæðir,“ segir Reynir Ingibjarts- son, formaður Aðstandendafélags aldraðra, AFA. Hann segir það vera réttlætismál að lögum um lífeyris- sjóði verði breytt svo þeir geti gagn- ast lífeyrisþegum betur. Eignastaða lífeyrissjóðanna hef- ur aldrei verið sterkari en nú. Eigna- staða og lífeyrisgreiðslur haldast þó engan veginn í hendur. Samkvæmt tölum úr síðasta ársuppgjöri Lands- sambands lífeyrissjóða nam hrein eign þeirra samtals um 1.498 millj- örðum króna samanborið við 1.219 milljarða í árslok 2005. Hreinar eign- ir jukust því um 276 milljarða króna á einu ári eða um 756 milljónir á dag. Þrátt fyrir þessa gífurlegu aukningu hækkaði greiðsla til lífeyrisþega að- eins um sex milljarða króna á milli ára. Í árslok 2005 var gjaldfærður lífeyrir 34 milljarðar króna en hafði hækkað upp í 40 milljarða í árslok 2006. Munurinn á eignaaukningunni og hækkunum á lífeyrisgreiðslum er fjörutíuogsexfaldur. Hundruð milljóna á dag Lífeyrissjóður starfsmanna ríkis- ins er stærsti lífeyrissjóður lands- ins, með heildareignir upp á rúma 282 milljarða króna. Á síðasta ári var eignaaukning hans 55 milljarðar króna eða um 150 milljónir króna á dag. Lífeyrissjóður verslunarmanna er næststærsti lífeyrissjóður landsins en eignaaukning hans var tæpir 50 milljarðar króna á síðasta ári. Lífeyr- isgreiðslur úr sjóðnum námu aftur á móti 3.147 milljónum króna. Gildi lífeyrissjóður er þriðji stærsti lífeyrissjóður landsins en eignir hans jukust úr 181 milljarði króna í 215 milljarða króna á síðasta ári. Hver dagur skiptir máli Reynir Ingibjartsson telur að vel megi leysa brýn búsetuvandamál aldraðra með því að lífeyrissjóðirnir hafi aðkomu að málinu. „Miðað við þessar eignir lífeyrissjóðanna myndi það kosta þá upphæð sem kem- ur inn í lífeyrissjóðina á einni viku.“ Hann gagnrýnir jafnframt lögin um lífeyrissjóðina því samkvæmt þeim hafa þeir ekki heimild til þess að eiga byggingar. Hins vegar mega þeir eiga gífurlega mikið af hlutabréfum og skuldabréfum. „Það er mjög eðlilegt að breyta þessum lögum. Lífeyris- sjóðirnir eiga að takast á við þenn- an vanda því það virðist engin lausn vera í sjónmáli. Hver dagur skiptir máli þegar fólk er komið á þennan háa aldur. Á meðan safnast fólk upp á sjúkrahúsum og það er auðvitað dýrasti kosturinn.“ Hann segir það vera spurningu um réttlætisvitund að breyta þess- um reglum. „Þessir lífeyrissjóð- ir eru orðnir stærri en öll fjárlög ís- lenska ríkisins. Gróði þeirra er fyrst og fremst vegna hárra vaxtatekna og það er mjög eðlilegt að brot af þess- um vaxtagjöldum muni ganga í að búa lífeyrisþegum gott ævikvöld.“ Gæti útvatnað hlutverk lífeyrissjóða Hrafn Magnússon, framkvæmda- stjóri Landssambands lífeyrissjóð- anna, segist vera á þeirri skoðun að lífeyrissjóðirnir eigi að stunda sinn hefðbundna rekstur eins og lög kveða á um, að sjá um ávöxtun og greiða út lífeyri. „Við teljum að lífeyrissjóðirnir eigi ekki að standa í atvinnurekstri á borð við rekst- ur hjúkrunarheimila. Lífeyrissjóð- irnir eru hins vegar tilbúnir til þess að lána ríki og sveitarfélögum fé til uppbyggingar á hjúkrunarheimil- um. Það er ekki heimild í lögum um að lífeyrissjóðirnir greiði fyrir fram- kvæmdir af þessu tagi.“ Hlutverk og staða lífeyrissjóð- anna gæti breyst mikið ef þeir færu út í að fjármagna uppbyggingu á hjúkrunarheimilum að mati Hrafns. „Það gæti opnað á aðrar gáttir því það eru ýmis önnur aðkallandi verk- efni en bygging hjúkrunarheimila. Jafnvel þótt ég skilji að það sé þörf á byggingu hjúkrunarheimila myndi þetta útvatna það hlutverk sem líf- eyrissjóðirnir hafa.“ Mánudagur 22. október 20076 Fréttir DV „Miðað við þessar eignir lífeyrissjóðanna myndi það kosta þá upphæð sem kemur inn í lífeyrissjóðina á einni viku.“ ValGeir Örn raGnarsson blaðamaður skrifar: valgeir@dv.is GÆTI AUÐVELDLEGA LEYST VANDANN Á síðasta ári hækkaði eignastaða lífeyrissjóðanna um 276 milljarða króna en greiðslur úr sjóðunum til lífeyrisþega hækkuðu um aðeins sex milljarða króna. reynir ingibjartsson formaður Aðstandendafélags aldraðra telur nauðsynlegt að breyta lögum um lífeyrissjóði svo þeir geti komið að því að bæta búsetumál eldri borgara. Framkvæmdastjóri Landssambands lífeyris- sjóða segir að það myndi útvatna hlutverk lífeyrissjóðanna. eldri borgarar Formaður aðstandendafélags aldraðra vill að lífeyrissjóðirnir komi að upp- byggingu á íbúðum fyrir aldraða.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.