Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.2007, Side 12

Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.2007, Side 12
Liverpool sigraði Everton í skemmti- legum nágrannaslag þar sem úrslitin réðust á lokamínútunni. Mark Clatt- enburg var í aðalhlutverki en hann dæmdi á leikmenn Everton tvær víta- spyrnur og gaf þeim tvö rauð spjöld í kjölfarið. Jafnframt sleppti hann því að dæma augljósa vítaspyrnu á Liver- pool. Liverpool vann góðan 2–1 úti- sigur á grönnum sínum í Everton á Goodison Park. Leikurinn var hraður og skemmtilegur á að horfa og er hann án vafa einn af bestu leikjum tímabils- ins. Mýmörg umdeild atvik áttu sér stað auk þess sem fjöldi færa leit dags- ins ljós. Jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik þó nóg væri um færi. Stev- en Gerrard leikmaður Liverpool og Alan Stubbs leikmaður Evert- on fengu báðir ágæt færi til þess að skora áður en Everton tók forystuna. Everton ógnaði í sífellu með föstum leikatriðum sem mörg hver komu eftir að brotið var á Yakubu eða Anirchebe í framlínu Everton en þessir tveir leikmenn mynda eitt- hvert sterkasta framlínupar deild- arinnar. Fyrsta markið kom eftir hornspyrnu frá Mikel Arteta, Liver- pool-mönnum gekk illa að hreinsa frá, Stubbs setti hann fyrir markið þar sem Jagielka reyndi að skjóta á markið en ekki vildi betur til en svo að boltinn fór í höfuð Samis Hyypia og þaðan í stöng og inn. Umdeildur Clattenburg Staðan í leikhléi var 1–0 fyrir heimamenn sem héldu áfram að sækja í upphafi síðari hálfleiks með þá Arteta og Joleon Lescott öfluga á vinstri vængnum. En á 53. mínútu kom upp umdeilt atvik sem breytti leiknum. Steven Gerrard tók bolt- ann með sér inn í teig í kraftmiklu hlaupi. Tony Hibbert fylgdi honum eftir og var svo til samsíða honum þegar hann togaði í treyju Gerrards. Gerrard lét sig falla með tilþrifum og vítaspyrna dæmd og rautt spjald fór á loft á Hibbert. Úr vítaspyrn- unni skoraði Dirk Kuyt. Þrátt fyr- ir að vera einum færri héldu Evert- on-menn áfram að vera framarlega á vellinum. Stuttu eftir fyrsta markið hefði Everton getað fengið vítaspyrnu þegar Steve Finnan virtist halda Lescott inni í teignum. En Clatten- burg ákvað að dæma ekki, réttilega. Liverpool-menn sóttu ívið meira þegar á leið hálfleikinn enda ein- um fleiri. Vörn Everton hélt hins vegar ágætlega þar til á lokamínút- unni þegar Lucas Levia átti skot að marki sem Phil Neville varði á lín- unni með hendi. Hann var send- ur af leikvelli með rautt spjald og Dirk Kuyt skoraði úr vítaspyrnunni. Í uppbótartíma hefði Everton átt að fá vítaspyrnu þegar Jamei Carragher togaði Lescott niður í teignum en af óskiljanlegum ástæðum lét Clatten- burg leikinn halda áfram. Clatten- burg hafði fram að þessu átti ágætan leik sem erfitt var að dæma en þessi augljósa vítaspyrna var eitthvað sem dómari í ensku úrvalsdeildinni á ekki að láta fram hjá sér fara. Ólík sýn þjálfaranna Liverpool-menn fóru því með sigur af hólmi úr þessum frábæra nágrannaslag. Everton-menn sitja eftir með sárt ennið en margt virtist benda til þess að liðið myndi vinna leikinn þar til þeir lentu manni undir. Rafa Benitez stráði salti í sár heima- manna eftir leikinn þegar hann tjáði sig um kröfu Everton-manna um víti undir lok leiksins. „Mér þykir það undarlegt á Englandi þegar þú sérð leikmenn láta sig detta í teign- um. Það á ekki að sjást.“ Aðspurður hvort hann teldi sig- urinn vera sanngjarnan sagði Ben- itez: „Mér fannst það. Þeir spiluðu löngum boltum en við reyndum að spila boltanum á milli okkar. Ég skipti Gerrard af velli því stundum þarftu að spila af skynsemi en ekki með hjartanu. Við þurftum að halda boltanum og það er eitthvað sem mér fannst vanta þegar Gerrard var á vellinum.“ David Moyes stjóri Everton var afar ósáttur við Steve Clattenburg dómara og gagnrýndi vítaspyrnu- dóminn þar sem Gerrard féll við í átökum við Tony Hibbert. „Ég er ekki viss hvort fyrsta atvikið var víta- spyrna, tveir leikmenn börðust og hönd Gerrards fór utan um Hibbert áður en það varð nokkur snerting. Gerrard féll og Hibbert renndi sér aldrei,“ segir Moyes. Hann var einn- ig ósáttur við að fá ekki vítaspyrnu í leiknum. „Á lokamínútunni fékk dómarinn tækifæri á því að leið- rétta fyrri dóminn og það hefði ver- ið eitthvað sem Everton átti skilið. En hann dæmdi ekki vítaspyrnuna sem við verðskulduðum enn meira en þeir sínar vítaspyrnur og ef þetta var ekki víti þá er ég í öðrum leik en dómarinn,“ segir Moyes. Mánudagur 22. október 200712 Sport DV með boltann Skot að marki Skot á mark rangStöður hornSpyrnur aukaSpyrnur gul Spjöld rauð Spjöld áhorfendur: 40.049 everton liverpool howard, hibbert, yobo, Stubbs, lescott, arteta, jagielka, neville, osman, yakubu (mcfadden 77.), anichebe (baines 84.). reina, finnan, Carragher, hyypia, riise, gerrard (lucas 71.), mascherano, Sissoko (pennant 88.), benayoun (babel 68.), Voronin, kuyt. maður leiksins Joleon Lescott, Everton 39% 7 1 0 9 10 1 2 61% 21 7 3 6 16 2 0 1:2hyypia 38. sjálfsmark. kuyt 54. vítaspyrna, 90. vítaspyrna. Viðar GUðjÓnsson blaðamaður skrifar: vidar@dv.is Liverpool sigraði Everton í nágrannaslag á Goodison Park. Umdeild atvik settu svip sinn á leikinn sem var skemmtilegur á að horfa. BlÓðuG BarÁtta Á GooDison park Hart Barist Mikil átök voru í leik everton og Liverpool. rautt spjald? Sumir töldu að dirk kyut hefði átt að fá rauða spjaldið fyrir þessa tæklingu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.