Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.2007, Side 27
Rapparinn T.I. réð stjörnulið lögfræðinga sér til varnar vegna ólöglegs vopnaburðar:
Rapparinn T.I., öðru nafni Cliff-
ord Harris yngri, var þarsíðustu helgi
handtekinn fyrir kaup og burð ólög-
legra vopna aðeins tveimur tímum
áður en hann átti að taka við verð-
launum fyrir bestu plötu ársins á
BET-verðlaunahátíðinni. T.I. sem
er einn vinsælasti rappari Banda-
ríkjanna var handtekinn í bíl sínum
þar sem fundust þrjár ólöglegar vél-
byssur og hljóðdeyfar. Á heimili hans
fundust svo sex byssur til viðbótar.
Verði kappinn fundinn sekur gæti
hann farið í allt að 25 ára fangelsi en
hann er með eldri dóma á bakinu.
T.I. hefur hins vegar komið sér
upp stjörnuliði lögfræðinga skip-
uðu hvorki fleiri né færri en fjórum
þungavigtarlögfræðingum. Það eru
þeir Steve Sadow, Dwight Thomas,
Ed Garland og Don Samuel sem sjá
um að verja rapparann en þeir hafa
allir mikla reynslu af því að verja
frægt fólk. Garland var til dæm-
is verjandi NFL-stjörnunnar Ray
Lewis sem var úrskurðaður saklaus
í morðmáli árið 2000. Þá hafa hin-
ir þrír unnið að ýmsum málum sem
hafa fengið mikla athygli í gegnum
tíðina.
Síðastliðinn mánudag lagði
ákæruvaldið fram þrjár ákærur á
hendur T.I. Fyrir að kaupa ólögleg
skotvopn og hljóðdeyfa og einnig
fyrir að vera dæmdur glæpamað-
ur með vopn í fórum sínum en T.I.
hefur tvisvar verið dæmdur fyrir
glæpi. Annars vegar fyrir ólögleg-
an vopnaburð og hins vegar fyrir
sölu og dreifingu á krakki. Verði T.I.
fundinn sekur þykir nánast öruggt
að hann muni sitja inni. Líklegt er
að fangelsisvistin verði ekki styttri
en fimm ár en gæti farið upp í allt að
25 ár fari allt á versta veg. asgeir@dv.is
Tekjuhæst
ekki aðsóknarmest
DV greindi frá því fyrir helgi að
Astrópía hefði hlotið mestu
aðsóknina það sem af væri ári. Það er
ekki rétt þar sem Simpsons The
Movie, Pirates of the Caribbean 3,
Shrek 3 og Harry Potter 5 hafa allar
fengið meiri aðsókn. Hins vegar er
Astrópía tekjuhæsta mynd landsins
það sem af er árinu. Það stafar að því
að miðinn á Astrópíu kostar 1100
krónur en ekki 900 eins og gengur og
gerist. Þess vegna er Astrópía
tekjuhæst með rúmlega 44.000 gesti
en hinar fyrrnefndu eru með á bilinu
50.000 til 55.000 gesti.
Mánudagur 22. október 2007DV Bíó 27
Rómantískara en
Notebook
Ryan Gosling sem kynntist fyrrver-
andi unnustu sinni Rachel McAdams
við tökur á einni rómantískustu
kvikmynd sem gerð hefur verið, The
Notebook, segir að samband þeirra
hafi verið miklu rómantískara í
alvörunni en í kvikmyndinni. Gosling
og McAdams voru saman í tvö ár en
nýverið staðfesti Gosling að þau
hefðu slitið sambandinu. Í nýlegu
viðtali við tímaritið GQ segir hann
hins vegar: „Guð blessi The
Notebook, hún kynnti mig fyrir
ástinni í lífi mínu en það er algjör
vitleysa hjá fólki að miða samband
okkar við samband fólksins í
myndinni. Ástarsaga mín og Rachel
var miklu rómantískari í alvörunni en
á hvíta tjaldinu, en gekk því miður
ekki upp.“
Ævareiður
yfir niðurhalinu
Kvikmyndagerðarmaðurinn Eli Roth
er ævareiður yfir því að kvikmynd
hans Hostel 2 sé ein mest sótta
myndin í ólöglegu niðurhali á netinu.
Hrollvekjudrengurinn Eli segir ekki
nóg með að milljónir manna hafi sótt
myndina með ólöglegum hætti
heldur hafi hún ekki einu sinni
komist í kvikmyndahús í sumum
þeirra landa þar sem ólöglegt
niðurhal er daglegt brauð. „Mér er
sagt að ég megi ekki verða reiður yfir
þessu en hvenær á maður þá að
reiðast? Ef þú mótmælir ekki
einhverju núna hvenær færðu þá
nóg? Við erum að tala um raunveru-
lega peninga hérna og launin mín
fyrir mikla vinnu sem ég legg á mig,“
sagði hinn bitri Eli Roth.
Kaupir sér frelsi?
Byssurnar umtöluðu Þetta eru
vopnin sem fundust hjá t.I.
Rapparinn T.I. Hefur ráðið stjörnulið
lögfræðinga til að verja sig.
Iceland Airwaves-hátíðinni
lauk í gær en að venju var
úr gríðarlegum fjölda spenn-
andi tónleika að velja og nóg
um að vera í tengslum við
hátíðina. Ljósmyndari DV
hljóp á milli tónleikastaða
og náði að smella stór-
skemmtilegum myndum af
hinni frábæru stemningu
sem ríkti í miðborginni um
helgina.
Gleði, rokk oG Glamúr
Svala Björgvins í
Steed Lord og bróðir
hennar Krummi Voru
skrautleg og skemmti-
leg á gauknum.
Hljómsveitin Ra Ra Riot
fór hamförum á naSa á
laugardagskvöldið.
Trentemöller fór á kostum
í Listasafninu Strákarnir hjá
Exton eiga hrós skilið fyrir
glæsilegt ljósasjóv í safninu.
Nic Offer, söngvarinn í !!!
Sýndi glæsilega danstakta á
naSa á laugardagskvöldið.
á airwaves!
DV Myndir Arnar