Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.2007, Blaðsíða 9
Axlar-Birni brá heldur betur í brún þegar hann fletti blað-inu sínu á föstudaginn og
komst að raun um að verslunar-
menn væru farnir
að setja upp jóla-
tré. Fyrsta jóla-
tré ársins (Axl-
ar-Björn vonar
heitt og inni-
lega að þau séu
ekki fleiri komin
upp) var reist við
verslanir Blómavals og Húsasmiðj-
unnar síðasta föstudag. Það sem
vakti athygli var kannski ekki helst
hversu smekklaust það var í útliti,
eða jafnvel snjóleysið heldur dag-
setningin. Þegar jólatréð var sett
upp voru enn tveir mánuðir og sex
dagar að auki til jóla. Axlar-Birni
finnst þetta helst til snemmt.
Nú er Axlar-Björn kannski ekki mjög trúrækinn maður. Og kannski flæk-
ist helgi jólanna ekkert voðalega
mikið fyrir Axlar-Birni. Þó skal tek-
ið fram að Axlar-Björn skilur vel
að Karli Sigurbjörnssyni biskupi,
manninum sem lagði svartstakk-
ana, skuli sárna nokkrum mán-
uðum fyrir hver jól þegar farið er
að blása til jóla snemma hausts
eða jafnvel síðla sumars. Allt gert
til að fá sem flest fólk til að eyða
sem mestum peningum sem allra,
allra fyrst. Reyndar finnst Axlar-
Birni þægilegast að gera jólainn-
kaupin í lokavikunni fyrir jól og
skilur ekkert í því að nokkur maður
komist í jólaskap áður en
hann fær kæstustu
skötu sem hægt er
að finna á Þor-
láksmessu (og
þá á Axlar-Björn
ekki við að fara í
Múlakaffi í hádeg-
inu heldur að elda
skötuna heima með
tilhlýðandi lykt, og jafnvel kveini
nágrannanna í sama stigagangi).
Axlar-Birni finnst nefnilega að jól-
in hefjist í fyrsta lagi 23. desember,
ekki 18. október.
Samt þarf það kannski ekki að koma á óvart að fólki liggi svona á að hefja jólaundir-
búninginn. Þetta ár er búið að
vera hið furðulegasta. Sumarið
sem venjulega kemur ekki fyrr
en um miðjan júlí og rís hæst í
ágúst kom tveimur mánuðum of
snemma. Nú var sólarsamba í júní
og framan af júlí en þegar ágúst
hóf göngu sína var sumarið búið.
Út frá því mætti ef til vill álykta að
desember væri við það að ganga í
garð. En kannski ekki.
Axlar-Birni fannst í gamla daga að jólin væru að koma þegar þingmennirnir hættu
rifrildinu um fjárlögin og afgreiddu
þau rétt fyrir jól. Hin síðari ár hefur
þingstarfið alltaf klárast fyrr og fyrr
fyrir jólin. Og væntanlega verður
Sturla Böðvarsson þingforseti bú-
inn að reka alla heim um miðjan
mánuðinn. Kannski er ekki svo að
það séu bara verslunarmenn í jóla-
ham sem liggur á.
Útgáfufélag: Dagblaðið-Vísir útgáfufélag ehf.
Stjórnarformaður: Hreinn loftsson
framkVæmDaStjóri: Elín ragnarsdóttir
ritStjórar:
reynir traustason og Sigurjón m. Egilsson ábm.
fulltrÚi ritStjóra: janus Sigurjónsson
fréttaStjóri: Brynjólfur Þór guðmundsson
auglýSingaStjóri: Valdimar Birgisson
Umbrot: DV. Prentvinnsla: Landsprent. Dreifing: Árvakur.
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu
formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð.
AðALnúmer 512 7000, ritstjórn 512 7010,
ÁskriftArsími 512 7080, AugLýsingAr 512 70 40.
Jólin koma... snemma
axlar-björn
ReyniR TRausTason RiTsTjóRi skRifaR Gagnvart almenningi er Svandís orðin ein af strákunum í Orkuveitunni.
Landslagsbreytingar
leiðari
Uppgjörið innan borgarstjórnarmeiri-hlutans hefur leitt það af sér í einni sjón-hendingu að ný kynslóð stjórnmála-manna er komin fram á sviðið. Í öllum
flokkum hefur REI-málið orðið til þess að raska
valdahlutföllum. Sjálfstæðisflokkurinn situr uppi
með þá höfuðsynd að borgarstjórnarflokkurinn
sveik leiðtoga sinn með því að funda með formanni
flokksins á bak við borgarstjórann. Þar skiptir engu
þótt sexmenningarnir hafi að hluta látið stjórnast af pólitískum
hugsjónum. Veruleikinn er alvarlegur trúnaðarbrestur sem leiðir til
þess að klofningur í Sjálfstæðisflokknum er staðreynd þótt hver um
annan þveran reyni að ljúga sig frá þeim veruleika. Vilhjálmur Þ.
Vilhjálmsson, fyrrverandi borgarstjóri, er kominn að endimörkum
síns pólitíska ferils. Vandinn er hins vegar sá að þau sem sviku hann
eiga ekki mikla möguleika til að taka við sem leiðtogar. Gísli Mart-
einn Baldursson og Hanna Birna Kristjánsdóttir eru því ekki líkleg
til þess að endurreisa traust fólks á flokknum. Nýr leiðtogi þarf að
koma til svo REI-klúðrið verði gert upp innan flokks.
Framsóknarmaðurinn Björn Ingi Hrafnsson er í stöðunni sterki
maðurinn. Ef ekkert óhreint kemur upp við skoðun á REI-málinu
í heild sinni þarf hann einungis að tilkynna fólki að hann ætli að
taka við formennsku og stóllinn er hans. Guðni Ágústsson formaður
er hluti af gamla valdakjarnanum rétt eins og Val-
gerður Sverrisdóttir og þau munu eiga þann kost
vænstan að ganga í herráð Björns Inga. Óljóst er
með stöðu Svandísar Svavarsdóttur. Hennar sól
reis vegna þess að hún réðst með kjafti og klóm á
meint spillingaröfl tengd Orkuveitu Reykjavíkur.
Nú er hún gengin í björg og aðeins tímaspursmál
hvenær vinstri grænir fallast á að opinbert fyrir-
tæki megi vinna með einkafyrirtæki svo sem ger-
ist í REI. Gagnvart almenningi er Svandís orðin ein af strákunum í
Orkuveitunni og enginn botnar í byltingunni. En Svandís er þó klár-
lega komin til að vera þótt staða hennar verði líkari því sem var hjá
Árna Þór Sigurðssyni, fyrrverandi borgarfulltrúa VG, sem í kyrrþey
tókst ágætlega upp við að samþykkja virkjanir og annað það sem
ekki telst vera í anda hugsjóna vinstri grænna.
Samfylkingin stórgræðir á uppnáminu. Dagur B. Eggertsson hreppti
borgarstjórastólinn. Ára hans er hrein og ekkert bendir til pólitískr-
ar spillingar. Hann er kominn í fremstu víglínu forystu Samfylk-
ingarinnar. Hann og Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra eru
skærustu stjörnur næstu kynslóðar ráðamanna í flokknum. Lands-
lagsbreytingar vegna REI-málsins ná inn í alla flokka og eru þær
mestu sem sést hafa á síðari árum og leiðtogar næstu framtíðar eru
komnir fram.
Dómstóll götunnar
Eiga samkynhnEigðir að hafa sama rétt og aðrir innan Þjóðkirkjunnar?
„já, já.“
Hildur Björnsdóttir, 44 ára
„já, eins og þjóðfélagið er í dag, því
ekki?“
Rósa Þorsteinsdóttir, 52 ára
matráður á leikskóla
„Þau eiga að hafa nákvæmlega sömu
réttindi ef ekki bara meiri.“
Þröstur Árnason, 32 ára
athafnamaður
„Þau eiga að sjálfsögðu að eiga sama
rétt þó að ég ætli ekki að hafa neina
skoðun á Þjóðkirkjunni.“
Jörmundur Ingi, 67 ára
Reykjavíkurgoði
sanDkorn
n Svo virðist sem Sjálfstæð-
isflokkurinn hlýði ekki leng-
ur foringja sínum. Á dv.is er
sagt frá því að á 200 manna
fundi sjálfstæðismanna í
Valhöll virtu fundarmenn
ekki til-
mæli Geirs
H. Haarde
flokksfor-
manns um
að hætta
umræðum
um borg-
arstjórn-
armálið.
Fundarmenn hættu held-
ur ekki þegar framkvæmd-
arstjóri flokksins vildi slíta
honum. Var fundinum fram-
haldið eftir nokkurt þóf og
tóku þá fjölmargir borgar-
fulltrúar til máls.
n Rannís gefur að vanda út
dreifirit sem fylgir Morgun-
blaðinu og nær þannig til um
þriðjungs landsmanna. Það
er upplýsingastjóri Rann-
ís, Páll Vilhjálmsson, sem
ritstýrir blaðinu. Páll fékk
á sínum tíma þungan dóm
fyrir meiðyrði í garð Hregg-
viðs Jónssonar, fyrrverandi
forstjóra Íslenska útvarpsfé-
lagsins. Upplýsingastjórinn
er afkastamikill bloggari
á Moggavef en þar reifaði
hann þá skoðun sína að
ástæðulaust væri að viðhafa
sérstakar vísindalegar verð-
kannanir. Eiginkona Páls
annaðist lengi verðkannanir
fyrir Moggann.
n Hermt er að hákarlaslagur sé
nú um stóran hlut í olíufélag-
inu Skeljungi. Björgólfur Guð-
mundsson er sagður hafa sýnt
áhuga á
kaupunum
en einn-
ig Magnús
Kristinsson
auðjöfur frá
Vestmanna-
eyjum.
Magnús
barðist við
Björgólf Thor um yfirráð yfir
Straumi og tapaði þar. Þó heyr-
ast einnig þær sögur að Magn-
ús sé hættur við að reyna að ná
Skeljungi undir sig og svermi
frekar fyrir nýju bílaumboði.
n Enginn kærleikur er nú inn-
an Ísafjarðarlistans eftir að
Sigurður Pétursson, leiðtogi
listans, krafðist þess að óháð
nefnd færi yfir þá ákvörðun
fræðslunefndar að mæla með
öðrum en
bæjarfull-
trúa í stöðu
skólastjóra
grunn-
skólans.
Kolbrún
Sverrisdótt-
ir, sem varð
landskunn
fyrir baráttu sína við trygg-
ingafélag í Æsumálinu, var
fulltrúi Í-listans í málinu og
studdi ráðninguna en hefur
nú sagt af sér í þjósti. Kolbrún
er þekkt fyrir að leggja trygg-
ingafélag og samgönguráð-
herra til að verja minningu
eiginmanns síns og föður sem
fórust með Æsu.
DV Umræða mÁnuDAgur 22. október 2007 9