Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.2007, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.2007, Blaðsíða 19
Tvö mörk á lokamínútunum tryggðu West Ham 3-1 sigur á Sunderland. Þar með endaði West Ham þriggja ta- pleikja hrinu. Sigurinn hefði þó get- að endað hvorum megin sem var því Sunderland-menn voru skeinuhættir í síðari hálfleik. Leikurinn byrjaði fjörlega og Ken- wayne Jones var nálægt því að ná for- ystunni strax á fyrstu mínútunum þeg- ar hann fékk frían skalla. Fljótlega tóku heimamenn þó öll völd á vellinum og hvað eftir annað náðu leikmenn liðs- ins upp góðu samspili. Slíkt var einn- ig uppi á teningnum þegar Carlton Cole náði forystunni fyrir West Ham á níundu mínútu. George McCarthy braust fram kantinn og sendi fyrir á Cole sem gerði vel með því að skalla knöttinn í hornið gagnstætt áttinni sem boltinn kom úr. Þetta var fyrsta mark West Ham í 238 mínútur. Helsta ógn Sunderland-manna kom frá hinum öfluga Kenwayne Jones sem hefur staðið sig vel síðan hann kom til liðsins frá Sunderland fyrir skömmu. Helst voru West Ham-menn í vand- ræðum í varnarleiknum og á stundum virtust leikmenn vera óstyrkir í nær- veru Jones. West Ham leiddi 1-0 í hálfleik og virtist fátt í spilunum sem gaf til kynna að Sunderland menn myndu jafna leikinn. Roy Keane gerði tvær skipt- ingar í leikhléi og setti þá Stokes og Chopra fyrir O’Donovan og Wallace. Það hafði mjög jákvæð áhrif á leik Sunderland-manna sem komu sterkir inn í síðari hálfleik. Eftir sjö mínútna leik hafði Jones jafnað leikinn með skalla eftir hornspyrnu frá Leadbitter. Stuttu síðar var Leadbitter nærri því að skora annað mark fyrir Sunderland en Robert Green varði skot hans með til- þrifum. Góð skipting hjá Curbishley Alan Curbishley skipti inn á Norberto Solano og Luis Boa Morte fyrir Mark Noble og Matthew Eth- erington á 73. mínútu. Áhorfend- ur á Upton Park voru ekki ánægðir með að missa uppáhald sitt, No- ble, af velli og létu þjálfarann heyra það. Þrátt fyrir það lífguðu skipting- arnar upp á leik West Ham sem hafði dottið niður í síðari hálfleik. Varamennirnir áttu stóran þátt í öðru marki West Ham sem kom á 78. mínútu. Solano fékk sendingu frá Boa Morte og komst einn gegn Craig Gordon markverði Sund- erland. Hann skaut knettinum í stöngina, þaðan fór hann í fætur hins lánlausa Gordons og í netið. Undir lokin reyndu Sunderland- menn hvað þeir gátu að jafna en allt kom fyrir ekki og Craig Bellamy gulltryggði sigur West Ham með marki á lokamínútunni. Solano lykillinn að sigri Roy Keane stjóri Sunderland var ekki sáttur í leikslok og talaði um að lið skapaði sína eigin heppni. „Svona er fótboltinn, en hver er sinnar gæfu smiður og ég nenni ekki að fara í viðtöl í hverri viku og tala um hversu óheppnir við vor- um. Fótboltinn er svona og við verðum að hætta að gefa asnaleg mörk á færibandi.“ Keane viðurkenndi að markvarsla Roberts Green í síðari hálfleik frá Grant Leadbitter hefði verið vendi- punktur leiksins. „Við fengum nokkur færi í fyrri hálfleik þrátt fyrir að vera ekki að stjórna leiknum. Maður vissi að eftir að við náðum að jafna myndi næsta mark vinna þennan leik. Því miður féll það í hendur West Ham.“ Kenwayne Jones var útnefndur mað- ur leiksins og Keane hrósaði pilti fyr- ir. „Hann var mjög góður í þessum leik. Hann er búinn að vera góð við- bót við okkar lið frá því hann kom til okkar og vonandi heldur hann áfram á þessari braut. Að skapa usla í varn- arleik hinna liðanna og skora mörk.“ Alan Curbishley viðurkenndi að sitt lið hefði verið heppið í leiknum. „Við tökum þessum sigri fagnandi því einhvern tímann í vetur munum við spila betur, sýna hugrekki og dug en koma tómhentir heim. Við trúðum því samt varla þeg- ar markið kom frá þeim og leikurinn snérist í raun við. Sunderland óx ás- megin og vann sig vel inn í leikinn. Sunderland er væntanlega von- svikið en við tökum þessi stig feg- ins hendi.“ Craig Bellamy hrósaði fyrrverandi og núverandi samherja sínum Nor- berto Solano sem lék sinn fyrsta leik með félaginu. „Sunderland á hrós skil- ið, þeir sóttu að okkur, náðu markinu sem þeir sóttust eftir en í endann átt- um við sigurinn skilinn. Solano gerði gæfumuninn þegar hann kom inn á. Ég barðist fyrir því töluvert að hann kæmi hingað því hann er frábær leik- maður.“ DV Sport Mánudagur 22. október 2007 19 með boltann Skot að marki Skot á mark rangStöður hornSpyrnur aukaSpyrnur gul Spjöld rauð Spjöld áhorfendur: 17.695 wigan portsmouth kirkland, boyce, granqvist, bramble, kilbane, Scharner, brown, landzaat, koumas, Sibierski (aghahowa 52.), bent. james, johnson, Campbell, distin, hermann, utaka, davis (pedro mendes 77.), diop, kranjcar, muntari, mwaruwari. maður leiksins Sylvain Distin, Portsmouth 51% 7 0 3 3 11 2 0 49% 16 4 1 2 11 3 0 0:2 mwaruwari 81., johnson 86. Everton – Liverpool 1–2 1–0 (38.) Hyypia sjálfsmark, 1–1 (54.) kuyt víti, 1–2 (90.) kuyt víti. Arsenal – Bolton 2–0 1–0 (68.) toure, 2-0 (80.) rosicky. Blackburn – Reading 4–2 1–0 (18.) McCarthy, 2–0 (22.) Santa Cruz, 3–0 (32.) tugay, 3–1 (80.) doyle, 4–1 (82.) McCarthy víti, 4–2 (90.) doyle. Fulham – Derby 0–0 Man. City – Birmingham 1–0 1–0 (37.) elano. Middlesbrough – Chelsea 0–2 0–1 (8.) drogba, 0–2 (57.) alex. Wigan – Portsmouth 0–2 0–1 (81.) Mwaruwari, 0–2 (86.) Johnson. Aston Villa – Man. United 1–4 1–0 (13.) agbonlahor, 1–1 (36.) rooney, 1–2 (44.) rooney, 1–3 (45.) Ferdinand, 1–4 (75.) giggs. West Ham – Sunderland 3–1 1–0 (9.) Cole, 1–1 (52.) Jones, 2–1 (78.) gordon sjálfsmark, 3–1 (90.) bellamy. Staðan Lið L u J t M St 1. arsenal 9 8 1 0 21:6 25 2. Man. utd 10 7 2 1 15:3 23 3. Man. City 10 7 1 2 15:7 22 4. Liverpool 9 5 4 0 16:5 19 5. Portsm. 10 5 3 2 19:12 18 6. blackburn 9 5 3 1 13:8 18 7. Chelsea 10 5 3 2 10:8 18 8. newcastle 8 4 2 2 13:10 14 9. aston Villa 9 4 2 3 13:12 14 10. West H. 9 4 1 4 12:9 13 11. everton 10 4 1 5 13:13 13 12. reading 10 3 1 6 12:22 10 13. Fulham 10 1 5 4 12:16 8 14. birming. 10 2 2 6 8:13 8 15. Wigan 10 2 2 6 8:14 8 16. Sunderl. 10 2 2 6 11:19 8 17. Middles. 10 2 2 6 10:18 8 18. tottenh. 9 1 4 4 16:18 7 19. derby 10 1 3 6 5:22 6 20. bolton 10 1 2 7 9:16 5 enska 1. deildin Barnsley – Burnley 1–1 - Jóhannes karl guðjónsson var ekki í leikmannahópi burnley. Blackpool – C. Palace 1–1 Colchester – W.B.A. 3–2 Norwich – Bristol City 1–3 Plymouth – Coventry 1–0 Q.P.R. – Ipswich 1–1 Sheff. Utd – Preston 1–1 Stoke – Sheff. Wed. 2–4 Watford – Hull 1–0 Wolves – Charlton 2–0 Scunthorpe – Leicester 0–0 Southampton – Cardiff 1–0 Staða efstu liða Lið L u J t M St 1. Watford 11 8 2 1 19:12 26 2. bristol C. 11 5 5 1 17:11 20 3. Charlton 11 5 4 2 16:12 19 4. Wolves 11 5 3 3 13:9 18 enska 2. deildin Brighton – Leeds 0–1 Bristol R. – Yeovil 1–1 Carlisle – Gillingham 2–0 Crewe – Luton 2–0 Hudderfield – Oldham 1–1 L. Orient – Port Vale 3–1 Millwall – Bournemouth 2–1 Northampton – Cheltenham 2–1 Nott. Forest – Doncaster 0–0 Swindon – Tranmere 1–0 Walsall – Southend 0–2 Staða efstu liða Lið L u J t M St 1. orient 12 7 2 3 19:19 23 2. Southend 12 7 1 4 21:15 22 3. Carlisle 12 6 3 3 19:10 21 4. n. Forest 11 5 5 1 18:6 20 Úrslit í enska Öruggt hJÁ arsenal með boltann Skot að marki Skot á mark rangStöður hornSpyrnur aukaSpyrnur gul Spjöld rauð Spjöld áhorfendur: 34.913 west ham sunderland green, neill, gabbidon, upson, mcCartney, bowyer, noble (Solano 73.), mullins, etherington (boa morte 74.), Cole (ferdinand 84.), bellamy. gordon, halford, nosworthy, higginbotham, Collins (harte 80.), o’donovan (Chopra 46.), leadbitter, miller, etuhu, Wallace (Stokes 46.), jones. maður leiksins Robert Green, West Ham 53% 13 5 0 6 9 3 0 47% 20 7 1 7 17 2 0 3:1Cole 9., gordon sjálfsmark 78., bellamy 90. jones 52. Portsmouth vann góðan 2–0 útisigur á Wigan Athletics: portsmouth í 5. sætið Benjani Mwaruwari og Glenn Johnson skoruðu tvívegis á síðustu 10 mínútunum og tryggðu þar með sætan sigur Portsmouth á Wigan sem er heillum horfið eftir að Emile Heskey meiddist. Wigan hefur nú ekki skorað mark í fimm klukku- stundir í ensku úrvalsdeildinni. Leikurinn var fremur lítilfjörlegur framan af. Þau sóknartilþrif sem sáust á annað borð komu frá sóknarmönn- um Portsmouth en þeir fengu lítinn stuðning frá miðjumönnum liðsins. Wigan-menn spiluðu nær all- an leikinn án þess að fá gott færi og ef ekki á illa að fara á þessari leiktíð verða þeir að bæta leik sinn mjög mikið. Allt leit út fyrir markalaust jafn- tefli þegar Benjani skoraði með skalla um níu mínútum fyrir leikslok. Sulley Muntari gaf þá frábæra send- ingu á Benjani sem gat ekki annað en skallað knöttinn í netið af stuttu færi. Glen Johnson skoraði svo annað mark Portsmouth með góðu marki á 89. mínútu. Bakvörðurinn hljóp framhjá hverjum varnarmanninum á fætur öðrum áður en hann skoraði með góðu skotu fyrir utan teig. Harry Redknapp varaði við of mik- illi bjartsýni þrátt fyrir góða stöðu í deildinni og fjórða sigurleikinn í röð. „Við erum sífellt að verða sterkari liðsheild. Við spiluðum við öll fjögur stóru liðin í fyrstu sex leikjunum en erum nú komnir með 18 stig og það er frábær byrjun. Við hefðum aldrei unnið þennan leik fyrir sex árum því leikmennirnir þá voru gagnslausir. Nú er ég hér og við erum með góðan hóp,“ segir Redknapp. Chris Hutchings, framkvæmda- stjóri Wigan, var vonsvikinn eftir leikinn. „Þetta var frekar leiðinleg- ur leikur. Auðvitað voru það mikil vonbrigði að fá á okkur mark þegar 10 mínútur voru eftir af leik sem átti að enda með jafntefli,“ segir Hutch- ings. vidar@dv.is Hemmi í háloftunum Hermann Hreiðarsson vinnur hér skallaeinvígi gegn Marcus bent. FrÁbær innkoma solanos Norberto Solano kom inn á sem varamaður í sínum fyrsta leik með West Ham. Hann var maðurinn á bakvið góðan endasprett West Ham í 3–1 sigurleik. Tvö mörk West Ham komu á síðustu tólf mínútunum. Viðar GuðjóNSSoN blaðamaður skrifar: vidar@dv.is Byrjar vel kenwayne Jones var helsta ógn Sunderland í leiknum og skoraði gott mark. Sjálfsmark norberto Solano fagnar hér sjálfsmarki Craigs gordon markvarðar Sunderland.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.