Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.2007, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.2007, Blaðsíða 22
Mánudagur 22. október 200722 Sport DV Mark Clattenburg - dómari Séð með augum Liverpool-manna: Með hlutina á hreinu þegar brotið var á Steven Gerrard innan teigs og rak réttilega Tony Hibbert af velli. Gaf Dirk Kuyt gult spjald fyrir háskalega tæklingu þrátt fyrir að hitta ekki Phil Neville og flautaði að sjálf- sögðu ekki víti þegar Joleon Lescott lét sig detta innan teigs undir lokin. Mark Clattenburg - dómari Séð með augum Everton-manna: Mark Clattenburg dómari stórleiks helgarinnar Everton og Liverpool. Hann gaf Liverpool víti þegar Steven Gerrard stakk sér til sunds, dæmdi ekkert þegar Dirk Kuyt ætlaði að gera úti um feril Phil Neville og flautaði ekki víti undir lokin þegar Joleon Lescott var rifinn niður af Jamie Carragher. ATVIK HELGARINNAR Markvörður: Antti Niemi: Varði oft eins og berserk- ur og hélt Fulham-liðinu á floti gegn Derby. Varnarmenn: Joleon Lescott: Verður ekki sakaður um að bera ábyrgð á tapinu gegn Liverpool því hann barðist eins og ljón allan tímann og átti að fá víti í uppbótartíma. Sol Campell: Nýtti líkamstyrk sinn vel gegn Wigan og hélt sóknarlínu þeirra í skefjum. Alex: Skoraði stórbrotið mark sem eitt og sér tryggir honum stöðu í liði vikunar. Glen Johnson: Loksins fengu aðdá- endur Portsmouth að sjá eitthvað frá Johnson. Skoraði fallegt mark eftir góðan einleik. Miðjumenn: Alexander Hleb: Nýtti alla sína tækni gegn Bolton og hikaði hvergi við að leika á andstæðinginn. Michael Essien: Naut að burðum og með hlaupagetu á við maraþon- hlaupara. Stóð fyrir sínu nú sem endranær. Dietmar Hamann: Lengi lifir í göml- um glæðum og Hamann sýndi að hann er ekki dauður úr öllum æðum. Elano: Er að verða einn besti miðvall- arleikmaður deildarinnar og enn á ný skoraði hann mark fyrir þá heiðbláu. Sóknarmenn: Wayne Rooney: Skoraði tvö og lagði sig allan fram þrátt fyrir vítaspyrnu- klúðrið. Carlos Tevez: Hætti aldrei að hlaupa og var alltaf að búa eitthvað til fyrir samherja sína. Sýndi og sannaði að hann og Rooney geta spilað saman. Mark helgarinnar Alex - Chelsea Risinn frá Brasilíu þrumaði boltanum af um 30 metra færi, óverjandi fyrir Mark Schwarzer markvörð Middlesbrough. Sveigjan á boltanum var ótrúleg og langfallegasta mark helgarinnar. Markvarsla helgarinnar Stuart Taylor - Aston VillaÞað er ekkert auðvelt að koma inn á í stöðunni 3-1 og mæta Wayne Rooney á vítapunktinum. Stuart Taylor gerði það og varði slaka spyrnu Rooneys. Hann bætti um betur og varði tvisvar úr góðum færum Man. Utd. Leikur helgarinnar Everton - Liverpool Leikur sem bauð upp á allt, stórglæsilegt sjálfsmark, umdeilt víti þar sem Steven Gerrard lét sig falla, rauð spjöld og sigurmark á lokasekúndum leiksins. Hvað er hægt að biðja um meira? Dietmar Hamann Antti Niemi Alex Glen Johnson Wayne Rooney Sol Campbell Michael Essien Alexander Hleb Carlos Tevez Joleon Lescott Elano Frammistaða helgarinnar Antti Niemi - Fulham Derby-menn voru sterkari á flest öllum hliðum knattspyrnunnar en mættu Niemi í banastuði. Þegar Finninn knái tekur sig til standast fáir honum snúning. Ummæli helgarinnar „Þetta var mér að kenna. Ég valdi vitlausa aðferð til að spila leikinn,“ sagði auðmjúkur Steve Coppel stjóri Rea ding.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.