Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.2007, Side 30

Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.2007, Side 30
Mánudagur 22. október 200730 Síðast en ekki síst DV Sandkorn n Eins og kunnugt er gaf ís- lenska stuðsveitin Sprengju- höllin út sína fyrstu breiðskífu á dögunum. Í tilefni útgáfunn- ar lét hljómsveitin búa til fyrir sig sérstaka Sprengju- hallarboli í hinum ýmsu litum en á bolunum eru vel vald- ar setning- ar úr lögum sveitarinn- ar. Á einni útgáfunni stendur „Djöfull er ég sammála með þennan Bigga í Maus“ en sér- staka athygli vakti að sjá svo sjálfan Bigga í Maus vappandi á milli tónleikastaða um helgina, íklæddan umræddum bol. n Og meira tengt Sprengjuhöll- inni. Almenn ánægja virtist ríkja með framlag hljómsveitarinn- ar á Airwaves-hátíðinni en hún steig á stokk í Lídó á fimmtu- dagskvöldinu. Ekki verður annað sagt en að staðurinn sé svolítið öðruvísi en aðrir tón- leikastaðir hátíðarinnar. Salur- inn er til að mynda teppalagð- ur og fannst að minnsta kosti sumum að þeir væru frekar að ganga inn á árshátíð eða í fermingar- veislu þegar þeir fundu mýktina undir skón- um. Bergur Ebbi, söngv- ari Sprengju- hallarinnar, hafði einmitt orð á veisluandrúmsloftinu í salnum og benti á að sviðið væri meira að segja teppalagt. Hann bætti svo við að það væri aldrei að vita nema gömul „Bó Halldórs hráka“ leyndist í flókanum. n Innri barátta Stöðvar 2 um útsendingartíma frétta heldur áfram. Athugulir sjónvarps- áhorfendur hafa veitt því athygli að hann hefur styst mjög að undanförnu og er nú ekki nema um korter á lengd. Fréttahaukar geta þó að einhverju leyti tekið gleði sína á ný. Vegna breytinga á dagskrá Stöðvar 2 á föstudög- um lengjast fréttatímar á föstu- dögum aðeins. Þess ber að geta að ástæður þess að Stöð 2 hefur stytt fréttatímana er sú að þeir vilja með því móti halda fólki lengur við skjáinn. Landinn virðist nefnilega skipta yfir á RÚV-fréttirnar um sjöleytið og á að sporna gegn því. Hver er maðurinn? „Ósköp venjulegur strákur frá venju- legu alþýðuheimili í Vesturbænum.“ Hver eru þín áhugamál? „Fjölskyldan og vinir. Annað fólk og öll lifandi menning... og að sjálf- sögðu fótboltinn.“ Hvað drífur þig áfram? „Að sjá hlutina gerast.“ Eftirminnilegasta bók sem þú hefur lesið? „Þögn hafsins, eftir Vercour, er bók sem ég las þegar ég var yngri og komst aftur yfir nýlega hjá Braga Kristjóns- syni bóksala. Hún stendur mér ofar- lega í huga um þessar mundir.“ Hvernig tónlist hlustar þú á? „Ég hlusta á alla músík.“ Ferðast þú mikið innanlands? „Ekki eins mikið og áður fyrr.“ Nýtur þú þess að vera ríkur? „Maður sem hefur lifað tímana tvenna veit að peningar gefa þér sjálf- stæði og skapa tækifæri til að fram- kvæma.“ Haldast hamingja og peningar í hendur? „Örugglega ekki. Hef verið ham- ingjusamur bæði ríkur og fátækur.“ Er toppurinn að vera í teinóttu? „Að sjálfsögðu, enda KR í teinóttu.“ Hefur verið skorað á þig í forsetaframboð? „Já. Mönnum sem er illa við mig hefur dottið það í hug, já.“ Hvernig er að eiga eigið fótbolta- lið í enska boltanum? „Sérstök upplifun. Eins og að sitja í rússíbana.“ Er KR stórveldi? „Var, er og verður stórveldi.“ Hvílir Hafskipsmálið þungt á þér? „Hefur alltaf hvílt þungt á mér og valdið mér og mínum miklum erfið- leikum í lífinu.“ Hefur þú fyrirgefið þeim sem þú telur að hafi gert rangt? „Það er mikill styrkur í fyrirgefn- ingunni en allir menn verða að vera ábyrgir gerða sinna.“ Áttu vini í alþýðustétt? „Eru ekki allir Íslendingar í alþýðu- stétt.“ Ertu trúaaður? „Já. Hef sótt mikinn styrk í trúna jafnt í blíðu og stríðu.“ Sækir þú kirkju reglulega? „Ég fer nokkuð oft í kirkju.“ Hvað er fram undan? „Er ungur maður og á uppleið.“ Í DAG Á MORGUN HINN DAGINN Veðrið +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx xxxx +11 1 +10 4+11 7 xx xx xx xxxx xx xx xx xx xx xx xx xx xx +94 +114 +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx xx +6 4 +13 7 xx xx xx xx xxxx xx xx xx xx +8 7 +13 7 +8 7 +7 12 +11 12 +10 7 +12 7 +11 4 xx xx xx xx xx -xx -xx MAÐUR DAGSINS NÚ GETUR ÞÚ LESIÐ DV Á DV.IS DV er aðgengilegt á dv.is og kostar netáskriftin 1.490 kr. á mánuði ER UNGUR MAÐUR OG Á UPPLEIÐ Björgólfur Guðmundsson hefur verið í fréttum fyrir að fá sagn- fræðinga og lögfræðinga til að rannsaka Hafskipsmálið upp á nýtt. Jón Baldvin Hannibalsson á sameiginlegt með Ólafi Ragnari Grímssyni að hafa gagnrýnt Hafskip mikið á þingi um árið... Ólafur Ragnar Grímsson á sameiginlegt með Ólafi Páli Gunnarssyni að halda með Ía... Ólafur Páll Gunnarsson á sameigin- legt með Dr. Gunna að hafa fjallað um tónlist... Dr. Gunni á það sameiginlegt með Þórarni Þórarinssyni að vera blaðamaður... Þórarinn Þórarinsson á það sameiginlegt með Gerði Kristnýju að hafa ritstýrt Mannlífi.. Kolbrún Bergþórsdóttir á það sameiginlegt með Jóni Baldvin Hannibalssyni að hafa unnið á alþýðublaðinu. tengsl Gerður Kristný á það sameiginlegt með Kolbrúnu Bergþórsdóttur að hafa skrifað minnst eina bók...

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.