Fréttatíminn - 07.02.2014, Blaðsíða 36
36 ferðalög Helgin 7.-9. febrúar 2014
Þjónustugjöld á ferðalagi ytra
Feneyjar, Króatía,
Grikkland, Tyrkland
15. maí með NCL JADE
7 daga sigling
Verð frá 260.000 kr.
10 daga ferð
20.000 kr. afsl.
ef pantað fyrir 15. febrúar
LÚXUSSIGLING FRÁ FENEYJUM
www.norræna.is
Sími 570 8600
Stangarhyl 1 110 ReykjavíkLeyfishafi
Ferðamálastofu
Ferðaskrifstofa
K reditkortagreiðslur hafa gert það einfaldara að gefa þjórfé. Um leið og pinnið er slegið inn posann þá
gefst kúnnanum oft möguleiki á að bæta
við reikninginn. Þörfin á að vera með úrval
af smámynt og seðlum er því ekki eins
mikil og hún var. Það er samt ekki einfalt
að vita hversu mikið á að gefa í hverju landi
fyrir sig. Á heimasíðum ferðamálayfirvalda
er oft að finna upplýsingar um þennan
málaflokk og hér eru þær reglur sem gott
er að hafa bak við eyrað til að móðga eng-
an og komast hjá því að borga of mikið.
Bandaríkin og Kanada
Víðast hvar dugar að bæta tíund við
reikninginn en fimmtán er meira í takt
við það sem heimamenn gera. Íbúar New
York borgar eru þó mun gjafmildari og
þjónustufólk þar er vant því að viðskipta-
vinir bæti um fimmtungi við reikninginn.
Á kaffihúsum og skyndibitastöðum er
þjórféð oftast látið í krukkur við kassann.
Leigubílstjórar fá líka sína tíund. Ef taskan
er borin upp á herbergi fyrir þig þá skal
gefa nokkra dollara.
Bretland
Á breskri grundu er þjónustugjaldinu
ekki alltaf bætt við og því þarf að skoða
reikninginn áður en gefið er þjórfé til að
komast hjá því að tvíborga. Ef gjaldið er
ekki innifalið er til siðs að bæta 10 til 15
prósentum ofan á. Sömu sögu er að segja
um leigubíla.
Frakkland
Þjónar í París eru víst ekki vanir því að
gestirnir skilji eftir handa þeim ríku-
legt þjórfé. Þjónustugjaldið er innifalið
(merkt „service compris“) og á að duga.
En það er líka í lagi að skilja eftir smá
klink, t.d. nokkrar evrur á veitingastað
en minna á kaffihúsum.
Norðurlöndin
Margur hefði haldið að sömu reglur giltu
meðal frændþjóðanna og hér á landi varð-
andi drykkjupeninga. Sú er þó ekki raun-
in. Þjónar í Skandinavíu reikna til dæmis
með smá viðbót en þó undir tíu prósentum
og leigubílstjórar líka. Á kaffihúsum er
nóg að láta nokkrar krónur í glas við kass-
ann. Alls staðar kemstu þó upp með að
gefa ekki krónu.
Spánn
Á Spáni á allt að vera innifalið í söluverð-
inu. Hins vegar er það til siðs að gefa fimm
til tíu prósent aukalega á veitingastöðum,
börum, hótelum og leigubílum.
Sviss
Beint flug til Sviss mun aukast í sumar
og því væntanlega fleiri sem gera sér ferð
þangað í ár en árin á undan. Sá hópur ætti
þó ekki að þurfa að spá í þessi mál því
þjónustugjaldið er innifalið og á að duga.
En auðvitað slær enginn hendinni á móti
nokkrum frönkum, segja þeir hjá ferða-
málaráði Sviss.
Þýskaland
Þjónustugjöld eru oftast innifalin í reikn-
ingnum en engu að síður er mælt með
því að fólk borgi 10 prósent þjórfé á mat-
sölustöðum. Það er einnig tekið fram að
hárgreiðslufólk reiknar með álíka auka-
þóknun.
Við þetta má svo bæta að víða þykir við-
eigandi að gefa herbergisþernunni 1-3 doll-
ara/evrur/pund á dag og setja á blað með
kveðju svo hún átti sig á því að klinkið sé
ætlað henni.
Vesenið með þjórféð
Á að námunda upp að næsta tug, gefa tíu eða fimmtán prósent eða bara sleppa því? Kristján
Sigurjónsson reyndi að ráða í hinar óskrifuðu reglur um þjórfé í hinum ýmsu löndum.
Kristján Sigurjónsson heldur úti ferðavefnum
Túristi.is
Kristján
Sigurjónsson
kristjan@turisti.is
Gott er að kynna
sér venjur á
hverjum stað til
þess að móðga
engan og komast
hjá því að borga of
mikið þjórfé.
www.fi.is
Mörkinni 6 | 108 Reykjavík | S: 568 2533 | www.fi.is
FERÐAFÉLAG ÍSLANDS
Gönguskíðaf
erðir
Skráðu þig in
n – drífðu þig
út
Gönguskíðaferðir
Undirbúningsfundur og útbúnaðarkynning: Þriðjudaginn 18.
febrúar kl. 20 í sal FÍ, Mörkinni 6. Allir velkomnir!
Hellisheiði: Gamlar þjóðleiðir, 22. febrúar, laugardagur
Genginn hringur frá Skíðaskálanum í Hveradölum eftir fornum
þjóðleiðum. Steinkofinn skoðaður og Orustuhóll.
Mosfellsheiði: Borgarhólar, 8. mars, laugardagur
Gengið frá Bringum í Mosfellsdal í Borgarhóla og þaðan um
heiðina norður að Þrívörðum og svo fram suður í Svínahraun.
Skjaldbreiður, 22. mars, laugardagur
Lagt af stað frá Hofmannaflöt og genginn Eyfirðingavegur
hinn forni og mögulega alla leið á Skjaldbreið.
Fararstjórar: Ævar og Örvar Aðalsteinssynir.
Sjá nánar um allar ferðir á www.fi.is
Nánari upplýsingar og skráning er í síma 568 2533 eða í
netpóst fi@fi.is
SKÍÐAPAKKATILBOÐ
sjá nánar á fi.is
– fyrst og fre
mst
– fyrst og fre
mst
ódýr!
kr./stk.
20
kr./stk.
29
kr./stk.
26
2249kr.kassinn
Verð áður 3159 kr. kassinn
Pampers Baby-Dry Mega Pack
Þú sparar
910 kr.
pr. kassa
29%afsláttur
Hámark 4 kas
sar
á mann meðan
birgðir endast
!
kr./stk.
24
BarnaDagar