Fréttatíminn - 07.02.2014, Blaðsíða 12
Þótt skyr hafi verið þekkt víða í nágrannalöndum okkar fyrr á öldum
hélst skyrgerð með þeim hætti sem við þekkjum hana aðeins hér á landi.
Því hefur verið litið á skyr sem séríslenska vöru þótt evrópski súrostur-
inn kvarg sé líkur skyri.
Sætúni 8, 105 Reykjavík. Sími: 531 3300. ritstjórn@frettatiminn.is Ritstjórar:
Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is og Sigríður Dögg Auðuns dóttir sigridur@frettatiminn.is. Fréttastjóri:
Höskuldur Daði Magnússon hdm@frettatiminn.is. Framkvæmda- og auglýsingastjóri: Valdimar Birgisson
valdimar@frettatiminn.is. Útgáfustjóri: Teitur Jónasson teitur@frettatiminn.is . Fréttatíminn er gefinn út af
Morgundegi ehf. og er prentaður í 82.000 eintökum í Landsprenti.
A Athyglisvert er að fylgjast með því hvernig skyr er að ná fótfestu á erlendum mörk-uðum. Skyr hefur fylgt okkur allt frá landnámi, er í raun ferskur súrostur sem unninn er úr undanrennu. Ætla má að skyr-
gerð hafi tíðkast á öðrum Norðurlöndum
og landnámsmenn flutt þá kunnáttu hingað
til lands. Þótt skyr hafi verið þekkt víða í
nágrannalöndum okkar fyrr á öldum hélst
skyrgerð með þeim hætti sem
við þekkjum hana aðeins hér
á landi. Því hefur verið litið
á skyr sem séríslenska vöru
þótt evrópski súrosturinn
kvarg sé líkur skyri. Orðið
skyr er heldur ekki sérís-
lenskt. Það er notað í vestur-
hluta Noregs til að lýsa súrri
mjólk.
Skyr hefur verið undir-
stöðufæða okkar frá önd-
verðu. Til eru þeir sem telja
að þjóðin eigi tilvist sína skyrinu að þakka.
Þegar skyrgerð færðist frá heimilum til
mjólkurbúa tók framleiðslan miklum
breytingum en langt fram eftir 20. öld var
skyr selt óhrært í verslunum og þá pakkað
í pappír. Það var svo þykkt að hægt var að
skera það en var yfirleitt hrært og þynnt
með mjólk og sykri á heimilum. Nú er nær
allt skyr selt hrært í dósum, með eða án
bragð- og sætuefna. Enn er skyr þó fram-
leitt á hefðbundinn hátt á nokkrum sveita-
bæjum en á Erpsstöðum í Dalasýslu er það
framleitt til sölu á markaði.
Aukinn áhugi á hollu mataræði á mikinn
þátt í miklum vinsældum skyrs hér á landi,
en skyr er prótínríkt og fitusnautt. Hið
sama gildir í nágrannalöndum með út-
flutningi skyrs héðan eða framleiðslu þess
með íslensku sérleyfi. Undanfarin ár hefur
skyr framleitt af Mjólkursamsölunni verið
flutt til Danmerkur en skyr er einnig fram-
leitt þar og Noregi í samstarfi við Mjólkur-
samsöluna. Síðastliðið haust kom fram í
viðtali við forstjóra Mjólkursamsölunnar
að áætlað væri að 25 milljónir skyrdósa
seldust í Skandinavíu á árinu sem væri 20
prósent aukning frá árinu 2012. Forstjór-
inn sagði ástæðu söluaukningarinnar vera
áhuga á prótínríkum vörum, auk þess sem
Norðurlandabúar væru hrifnir af bragðinu.
Mjólkursamsalan hefur undanfarin ár flutt
út skyr til Bandaríkjanna en sá útflutningur
hefur ekki skilað tilætluðum árangri. Fyrir-
tækið er með á undirbúningsstigi að hefja
framleiðslu á skyri þar. Meta á hvort ís-
lenskt undanrennuduft verður notað í fram-
leiðsluna.
Markaðurinn er hins vegar fyrir hendi
á Norðurlöndum og víðar í Evrópu. Fram
kom í frétt Morgunblaðsins fyrr í vikunni
að Mjólkursamsalan hefur ákveðið að fjár-
festa í tækjum í mjólkurbúi Thise í Dan-
mörku. Tilgangurinn er að anna eftirspurn
og mæta fyrirsjáanlegum vexti í skyrsölu
í Finnlandi. Haft var eftir framkvæmda-
stjóra sölu- og markaðssviðs Mjólkursam-
sölunnar að annað hvort hafi verið fyrir
fyrirtækið að leggja í þessa fjárfestingu
eða eiga á hættu að einhver annar tæki
yfir þann sterka markað sem orðinn er
til í Finnlandi. Danska fyrirtækið hefur
einnig lagt í verulegar fjárfestingar til að
mæta aukinni eftirspurn á heimamark-
aði en það framleiðir skyr með sérleyfi
frá Mjólkursamsölunni. Framleiðslan í
Danmörku nam 1700 tonnum í fyrra og
tvöfaldaði Thise heimamarkaðinn þá. Enn
fremur kom fram í frétt blaðsins að innan
tíðar verði hafin kynning á skyri í Bret-
landi. Fyrir jól hófst útflutningur á skyri til
Færeyja þar sem varan er seld í íslenskum
umbúðum. Þá fer skyr, framleitt á Íslandi,
til sölu í Sviss í vor.
Skyr er holl og góð vara með íslenskar
rætur. Mikilvægt er að halda þeirri teng-
ingu, flytja út eins og framleiðslugeta leyfir
en sérleyfistengja framleiðsluna ytra eftir
því sem hægt er – og njóta þannig hlutdeild-
ar í framleiðslunni. Það byggist vitaskuld
á því að varan standist væntingar neytenda
hvað gæði varðar því aðrir framleiðendur
fylgjast með og munu selja skyr sem hluta
af sinni framleiðslu – og gera það raunar nú
þegar.
Verðmætasköpun íslenskrar gæðavöru
Skyrið slær í gegn ytra
Jónas Haraldsson
jonas@frettatiminn.is
Með grænan blett á
tungunni
Ekki plata fólk Vigdís.
Katrín Júlíusdóttir
reyndi að vanda um
fyrir stöllu sinni Vigdísi
Hauksdóttur í þætti
Mikaels Torfasonar, Mín
skoðun.
Hrútafýla
Þetta snýst í sjálfu sér ekki um
karlrembu.
Örnu Kristínu Einarsdóttur,
framkvæmdastjóra Sinfóníuhljómsveitar
Íslands, var ekki boðið í þorrablót
Karlakórsins Fóstbræðra. Arinbjörn
Vilhjálmsson, varaformaður Fóstbræðra,
benti á að karlakórum sé eðlislægt að
halda karlakvöld án þess að remba
blandist í málið.
Pólitískar áhyggjur
Og ég er líka uggandi yfir því þegar
borgarstjóri segir að Jesús Kristur hafi
hugsanlega verið hommi,
Óskar Bergsson, sem ætlar að freista
þess að komast í borgarstjórn fyrir
Framsóknarflokkinn, er órólegur.
„One for the road...“
Uppistaðan af því fólki sem að til mín
hefur komið er prýðisfólk. Og er ég
búinn að vera meira en 20 ár í þessu.
Margeir Margeirsson, hefur rekið barinn
Monte Carlo við mismikla kátínu
nágranna á Laugaveginum, en nú verður
búllunni lokað.
Tjöruþvottur og bón
Hanna Birna hafnar
hverju tækifærinu
á fætur öðru til að
hreinsa sig pólitískt af
þessu skítamáli.
Mörður Árnason
reyndi að gefa
innanríkisráðherranum
Hönnu Birnu tækifæri til að gera upp
hið margrædda lekamál.
Loðnir lúðar
Hlustiði nú á þetta viðtal sjálfir heima
hjá ykkur í rólegheitum og veltið fyrir
ykkur hvenær strákur hefði þurft að
sitja undir sömu skítadrullu og Anna
Tara gerði í þessu viðtali.
Hildur Lilliendahl tók Harmageddon-
drengina, Frosta og Mána, heldur betur
á beinið fyrir viðtal sem þeir tóku við
rapparann Önnu Töru. Mest var rætt um
kynfærahárvöxt.
Varúð:Pútín
Ég á samkynhneigða vini í Rússlandi
og ég er bara drulluhræddur um líf
þeirra.
Unnsteinn Jóhannsson lýsti óánægju
sinni með ferð íslenskra ráðamanna á
Ólympíuleikana í Sochi.
Spurt úr launsátri
Viðtalið hófst og tók óvænta stefnu.
Í staðinn fyrir umræðuefnið hóf
þáttastjórnandinn að ræða um kaup og
kjör stjórnenda í ákveðnu fyrirtæki.
Gunnar Baldvinsson, stjórnarformaður
Landssamtaka lífeyrissjóða og
framkvæmdastjóri Almenna
lífeyrissjóðsins, fær engan botn í hvers
vegna hann var spurður spurninga í
Kastljóssviðtali.
Perlur fyrir svín
Ég er komin á þann
stað að það borgar
sig ekki lengur að
gera plötu. Ég tapa á
því. Þetta er sorgleg
staðreynd að íslensk
tónlist sungin á ís-
lensku er líklega að
hverfa af markaðinum.
Kóngurinn sjálfur, Bubbi, er við
það að gefast upp á hefðbundinni
hljómplötuútgáfu.
Alltaf á áætlun!
Þetta var mjög óhugnanlegt. Þetta er
barnið manns, það dýrmætasta sem
maður á.
Ólöf Filippusdóttir lenti í bráðum háska
með lítinn son sinn í barnavagni þegar
vagninn klemmdist í dyrum strætisvagns
sem ók síðan af stað.
VikAn sem VAr
MIKILVÆG ÖRYGGISTILKYNNING!
12 viðhorf Helgin 7.-9. febrúar 2014