Fréttatíminn - 07.02.2014, Blaðsíða 27
Bílar sem eru í eigu Bílalands hafa
farið gegnum ítarlega söluskoðun.
Komdu í heimsókn strax í dag!
FRÁBÆR
KJÖR
HYUNDAI GETZ
Nýskr. 12/06, ekinn 59 þús. km.
bensín, sjálfskiptur.
VERÐ kr. 1.180 þús.
Rnr. 141820.
ISUZU D-MAX
Nýskr. 11/07, ekinn 145 þús. km.
dísil, sjálfskiptur.
VERÐ kr. 2.490 þús.
Rnr. 141680.
Kletthálsi 11 -110 Reykjavík
Sími 525 8000 - bilaland@bilaland.is
www.bilaland.is
www.facebook.com/bilaland.is
LAND ROVER DISCOVERY HSE
Nýskr. 06/07, ekinn 144 þús. km.
dísil, sjálfskiptur.
VERÐ kr. 5.790 þús.
Rnr. 130673.
HYUNDAI i30 Comfort
Nýskr. 06/09, ekinn 65 þús km.
dísil, sjálfskiptur.
VERÐ kr. 2.350 þús.
Rnr. 120327.
HYUNDAI SANTA FE II
Nýskr. 06/06, ekinn 101 þús km.
dísil, sjálfskiptur.
VERÐ kr. 2.550 þús.
Rnr. 120306.
NISSAN X-TRAIL LE
Nýskr. 10/07, ekinn 115 þús. km.
dísil, sjálfskiptur.
Rnr. 270475.
SUBARU FORESTER PLUS
Nýskr. 10/09, ekinn 95 þús. km.
bensín, sjálfskiptur.
VERÐ kr. 3.190 þús.
Rnr. 281369.
Frábært verð
3.290 þús.
TÖKUM NOTAÐAN
UPPÍ NOTAÐAN!
GERÐU FRÁBÆR KAUP!
ALLT AÐ 80% LÁNAMÖGULEIKAR
Framhald á næstu opnu
Takmarkað magn af Miele ofnum og gufuofnum
á einstöku verði ásamt helluborðum frá Witt.
Einnig frystikistur, kæli- og frystiskápar frá Liebherr
GE og Mabe ásamt ýmsum öðrum spennandi vörum.
tilboðsdagar
Lagerhreinsun
Suðurlandsbraut 20 | 108 Reykjavík | Sími 588 0200 | www.eirvik.is
hönnun fyrir lífið
Hann hætti ekki að búa til
sýningar á þessum leitandi árum
heldur fór með þær upp á svið og
fékk heilmikla æfingu í að koma
fram í dragsýningunum sem
hann og Páll Óskar settu upp
ásamt góðum vinum. Þeir vöktu
óskipta athygli enda engin hefð
fyrir dragi í Reykjavík á þeim
tíma. „Já, við settum upp „show“
Páll Óskar og ég, bæði drag og
allskonar „performanca“. Það
var mjög skemmtilegt tímabil
og allt var hálfgert „comedy“ því
við höfðum svo mikinn húmor
fyrir öllu sem við gerðum. Þetta
var svona bland af dragi og uppi-
standi, algjör kabarett fílingur.
Þar sem við áttum ekki peninga
þá var þetta ekki svona „glamou-
rus clashy show“ heldur meira
svona „trashy“, segir Maríus og
hlær. „Þar lá húmorinn hjá okk-
ur, að finna ljótustu kjólana og
fara sem lengst í fíflagangi. Ég
eignaðist mína perluvini á þess-
um tíma og það var svo gaman
hjá okkur. Við erum enn í góðu
sambandi og þegar við hittumst
þá er bara endalaust hlegið.“
Söngleikjabransinn
Maríus fékk sín fyrstu hlutverk
í Þjóðleikhúsinu, hlutverk Hans
í Skilaboðaskjóðunni þegar
hann var 19 ára gamall og svo
í My Fair Lady í kjölfarið. Eftir
það fór hann fyrst alvarlega að
velta söngleikjaforminu fyrir
sér og sjá það sem mögulegan
starfsvettvang. „Ég hafði bara
aldrei pælt neitt sérstaklega
í söngleikjum en eftir á að
hyggja þá opnaðist þar alveg nýr
heimur fyrir mér. Svo ég ákvað
í framhaldinu að fara í söng-
leikjanám til Vínarborgar. Ég
hafði búið þar áður sem barn
meðan mamma var í söngnámi
svo það togaði aðeins í mig að
fara á sömu slóðir. Svo langaði
mig til að rifja upp þýskuna, ná
almennilegu valdi á henni aftur.
Námið gekk svakalega vel. Mér
finnst svo gaman að tjá mig á
sviði og það bara hentar mér að
syngja og dansa og leika í sömu
sýningunni. Ég fann þar alveg
mínu hillu, útskrifaðist með
hæstu einkunn og fékk bara um-
boðsmann og fullt af hlutverkum
um leið. Þetta voru algjörlega
frábær ár!“
Maríus ferðaðist mikið og tók
þátt í stórum söngleikjum í Aust-
urríki, Sviss, Þýskalandi og Eng-
landi en flutti svo til Hamborgar
þar sem hann fór á samning hjá
stóru söngleikjafyrirtæki. Þar
lék hann aðalhlutverkið í Titanic
söngleiknum og segir það hafa
verið toppinn á ferlinum. Síðasta
stóra verkefnið var svo stór-
sýningin Apassionata sem var
meðal annars valin besta fjöl-
skyldusýning Evrópu árið 2010.
Í þeirri sýningu tróð Maríus upp
fyrir tugþúsundir áhorfenda í
viku hverri í Berlín, München,
Zürich, Köln og Prag.
„Eftir Apassionata, sem var
rosalega stór og „comercial“
sýning, þá fannst mér bara að ég
mundi ekkert ná lengra í þessa
átt. Ég fann að þessu tímabili
væri lokið. Mig langaði allt í einu
að fara til baka og einbeita mér að
öðrum hlutum og það er það sem
ég hef verið að gera síðan ég kom
heim. Ég hef sungið á nokkrum
kirkjutónleikum og haldið mína
eigin tónleika, bæði með djass og
klassík. Ég hef í rauninni verið
að gera andstæðuna við það sem
ég var að gera úti. Mig langaði
bara að gera eitthvað minna „co-
mercial“. Ég var kominn þarna á
einhvern endapunkt og það var
mjög mikilvægt fyrir mig að fara
að gera eitthvað sem skipti meira
máli fyrir mig persónulega.“
Helgin 7.-9. febrúar 2014