Sveitarstjórnarmál - 01.12.1960, Blaðsíða 16
12
SVEITARSTJÓRNARMÁL
Alþjóðaþing sveitarstjórna
1961.
Sextánda alþjóðaþing sveitarstjórna verð-
ur haldið í 'Washington, höfuðborg Banda-
ríkjanna, dagana 15.—20. júní 1961.
Viðfangsefni þessa þings verður: Ný við-
horf og þróun í sveitarstjórnarmálum.
Aðalumræðuefnið á sameinuðu þinginu
verður: Skipan og starfsemi sveitarstjórna.
Ennfremur munu smærri starfshópar
fjalla um sérgreindari verkefni, svo sem:
vélabókhald, starfsmannahald, útbreiðslu
og kynningarstarf sveitarfélaganna.
Þá mun einnig verða tekið til meðferðar
efnið: Lóðavandamál stórborga um víða
veröld.
Eftir ráðsteínuna er ráðgert að þátttak-
endurnir ferðist um nokkurn hluta af aust-
urströnd Bandaríkjanna til þess að kynnast
þar sveitarstjórnarmálum hins volduga rík-
is af eigin raun. I því skyni verða heimsótt-
ar ýmsar stórborgir svo sem: Baltimore,
Philadelphia og New York.
Ekki er enn ráðið, hvort Samband ís-
lenzkra sveitarfélaga mun senda fulltrúa á
þingið, en frá því verður nánar skýrt í
Sveitarstjórnarmálum.
Píastframleiðsla mun hefjast
bráðlega á Akureyri.
Nú er verið að setja upp nýjar þýzkar
vélar fyrir iðnað þennan í fyrrverandi út-
gerðarstöð Guðmundar Jörundssonar. Það
er Óskar Sveinbjörnsson, sá er kom á fót
þangmjölsverksmiðjunni á Suðurlandi, sem
sér um uppsetningu vélanna og hann er
aðaleigandi fyrirtækisins. Búizt er við að
vélarnar verði reyndar nú á næstunni og
framleiðslan ætti að geta hafizt um næstu
áramót.
Plast er orðið nær allsráðandi einangrun
hér á landi og nokkrar plastverksmiðjur
eru starfandi í Reykjavík, Hafnarfirði og
Eyrarbakka, en engin í öðrum landshlut-
um.
Hin nýja verksmiðja á Akureyri, sem
heitir Plasteinangrun h.f., á að geta fram-
leitt nægilegt magn fyrir Norðurland. Vöru-
verð verður væntanlega það sama og hjá
öðrum slíkum verksmiðjum, en þá vinnst
það einkum að losna við flutningskostnað-
inn, sem mun vera um 200 krónur á m3.
Hráefnið er erlent, en það er sáralítill
hluti. En fjörutíu og níu hlutarnir eru loft.
En kyrrstætt loft er sú bezta einangrun,
sem enn er þekkt og á þessu byggist gildi
plasts til einangrunar.
Hver rúmmetri framleiðslunnar vegur
18—20 kg. Verksmiðjan mun framleiða ein-
angrunarplötur í hálfs metra stærðum og
mismunandi þykktum.