Sveitarstjórnarmál - 01.12.1960, Page 17
TRYGGINGAMAL
----------RITSTJÓRI: GUÐJÓN HANSEN -
Um lyf jagreiðslur sjúkratrygginga.
Eftir Gunnar J. Möller hæstaréttarlögmann.
Hér birtist í íslenzkri þýðingu kafli úr framsöguerindi, sem flutt var á 5. norræna almanna-
trygg-ingamótinu í ágústmánuði síðastliðnum og nefndist „Greiðsiur sjúkratrygginga vegna
læknishjálpar utan sjúkrahúsa, gigtlækninga, lyfja, svo og vegna ferða- og dvalarkostnaðar
i sambandi við slíka læknishjálp."
Eins og sjúkratryggingamönnum er vel
kunnugt, hafa útgjöld til lyfja hækkað stöð-
ugt undanfarna áratugi og á allra síðustu
árum hafa tölurnar hækkað örar en nokkru
sinni áður. Þetta er trúlega aðalástæðan til
þess, að vandamál viðvíkjandi lyfjakostn-
aði sjúkrasamlaga hafa upp á síðkastið ver-
ið mjög ofarlega á baugi á alþjóðavettvangi.
Útgjaldaaukningin er áberandi í flestum
þeim löndum, þar sem sjúkrasamlög greiða
verulegan hluta lyfjakostnaðar. Við vitum
minna um ástandið, þar sem engin almenn
sjúkratrygging er — eins og í Finnlandi
— eða þar sem sjúkratryggingin tekur ekki
nerna hverfandi þátt í lyfjakostnaði hinna
tryggðu — eins og í Noregi. Fróðlegt væri
að fá tölur frá löndum jressum varðandi
lyfjakostnað til samanburðar við hin lönd-
in. Tölulegar upplýsingar frá 14 þátttöku-
ríkjum varðandi árin 1950—1955, sem lágu
fyrir á ISSA-ráðstefnunni í London 1958,
sýndu, að kostnaðurinn hafði aukizt um
meira en 100% í fjórum landanna og milli
30 og 40% í öðrum fjórum. Þrjú lönd eru
með minni aukningu, en í tveimur hafði
kostnaðurinn lækkað lítið eitt. Meðaltals-
aukningin var 64,74%. Hjá sex stofnunum
í fjórum löndum var lyfjakostnaður jafn
(hjá 3) eða talsvert hærri (hjá 3) en útgjöld
til læknishjálpar utan sjúkrahúsa og tann-
læknishjálpar, og í mörgum löndum er
lyfjakostnaðurinn hærri en útgjöld til al-
mennra lækna.
Hjá jreim jrrem Norðurlandajrjóðum, þar
sem þátttakan í lyfjakostnaði er veruleg,
hefur og verið ör aukning útgjalda. Tölur
frá fyrrnefndu 6 ára tímabili gefa þó ekki
nothæfan samanburðargrundvöll við fyrr-
nefnd ISSA-lönd, vegna Jress að í öllum
þrem löndunum hafa á þeim tíma — nánar
tiltekið á árunum 1951—54 — verið gerðar
verulegar breytingar á Jrátttöku sjúkrasam-
laga í lyfjakostnaði. En sá samanburður,
sem við getum gert Jrau árin, þegar Jrátt-
tökureglurnar hafa verið óbreyttar að mestu,
sýnir aukningu svipaða Jrví, sem hæst gerist
hjá ISSA-löndunum og Jrað enda Jrótt Jrau
síðarnefndu taki mun meiri Jrátt í lyfja-
kostnaðinum en við Jrekkjum á Norður-
löndum. Lyfjakostnaður í Svíþjóð hefur