Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 01.12.1960, Síða 21

Sveitarstjórnarmál - 01.12.1960, Síða 21
SVEITARSTJÓRNARMÁL 17 sjúkrasamlög þar greiða ekki önnur lyf. Þar með er Noregur úr sögunni, en að því er hin Norðurlöndum snertir, sjást höfuð- drættir reglnanna um greiðslu lyfja, ann- arra en hinna „lífsnauðsynlegu" af þessari töflu: Danmörk: 1) Sérlega þýðingarmikil lyf, skv. skrá scm telur 700—800 lyfjanöfn. 2) í alvarlegum langvinnum sjúkdóm- um, einnig viss önnur lyf („undan- þágulyf", ekki greidd af öllum sam- lögum). V\ hlutar Greidd lyf: ísland: Öll lyf, scm tekin eru á skrá, sem að- allega gengur framhjá: a) nokkru af „handkaupslyfjunum", b) tilbúnum lyfjum, sem ekki eru á viðurkenndri lyfjaskrá, c) nýjum lyfjum, ekki full- rannsökuðum. Greiðsluhlutfall: Fúkkalyf og súlfalyf að V\. Annað að hálfu. SvíþjóÖ: Allar lyfjabúðavörur og önnur efni, cf þau innihalda eitur af „fyrstu gráðu". Kaupverðið -f- 3 kr. 2 Meðal-greiðsluhlutfall („lífsnauðsynleg44 lyf meðtalin): 75% 62,5% 32,5% af verði lyfja, sem til greina koma. af verði lyfja, sem til greina koma.l) af öllum keyptum lyfjum.2) 1) Samkvæmt athugun á lyfseðlum frá einni lyfjabúð í Rvík, cina viku í okt. og eina viku í febr. 1959-60, 4070 að tölu. 2) Samkvæmt athugun á lyfseðlum sem til féllu í apríl 1955. í öllum þrem löndunum eru lyfjagreiðsl- ur mjög takmarkaðar samanborið við áður- nefnd ISSA-lönd og þó á mismunandi hátt. í Danmörku er greiðsluhlutfallið hæst, en þau lyf, sem greitt er með, fæst. ísland hef- ur nokkuð lægri prósentutölu, en lyfjateg- undirnar allmiklu fleiri, en í Svíþjóð er hundraðstalan langlægst, en greitt er svo til með öllum lyfjum. Hlutfallstala Svíþjóð- ar mun hafa hækkað eithtvað síðan í apríl 1955. Lyfjagreiðslur sjúkratrygginga eru tak- markaðar á tvennan hátt. í fyrsta lagi eru því skorður settar, til hvaða lyfja greiðslurn- ar taka (greiðslusviðið) og í öðru lagi eru viðurkennd lyf ekki greidd nema að til- teknum hluta (greiðsluhlutfallið). í flestum löndum eru verulegar tak- markanir í gildi, að því er greiðslusviðið snertir, þ. á m. í Danmörku — og einnig á Islandi, þó okkar reglur séu mun rýmri. Svíjrjóð er hins vegar, e. t. v. með England sem fyrirmynd, undantekning frá aðalregl- unni. Þegar „Lákemedelreformen“ var í undirbúningi, gengu flestir, sem um málið fjölluðu, út frá því að greiðslurnar yrðu bundnar við skrá, sem setti gildissviðinu alljDröng mörk. í nefndarálitum um þetta bar mest á fjárhagslegum sjónarmiðum. í sumum þein'a var bent á, að á ýmsum svið- um væru til mörg lyf, sem hefðu svipaðar eða jafnvel nákvæmlega sömu verkanir, en væru mjög misdýr, — og að verðlagið skiptir tiltölulega litlu fyrir eftirspurnina. Þegar svo stæði á ætti einungis að hafa ódýrasta lyfið á skrá. Ennfremur var út frá því geng- ið að aðeins fullkönnuð og viðurkennd lyf yrðu tekin með. Félagsmálanefndin og heil- brigðisstjórnin lögðu jafnvel með því að skráin yrði gerð eftir þeim sjónarmiðum, sem danska lyfjagreiðsluskráin er byggð á (sjá síðar). — Niðurstaðan varð Jró sú, að al-

x

Sveitarstjórnarmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.