Sveitarstjórnarmál

Årgang

Sveitarstjórnarmál - 01.12.1960, Side 23

Sveitarstjórnarmál - 01.12.1960, Side 23
SVEITARSTJÓRNARMÁL 19 félagslegra viðhorfa, annarsvegar og venju- legra vátryggingarsjónarmiða liins vegar. Hún syndir þó ekki hjá því að tryggja gegn talsvert miklu af óverulegum útgjöld- um. Tilraunir til að komast hjá því myndu valda geysilegri fyrirhöfn í framkvæmd sbr. síðar. — Danska skipunin er mjög athyglis- verð tilraun, sem vert er að gefa gaum að. Allar skrár um niðurgreidd lyf verða sí- fellt að vera í endurskoðun. Annars geta þær tafið eðlilega þróun. Þær liljóta alltaf að valda því, að ný lyf verða, fyrst í stað, ut- an við trygginguna. í mjög mörgum tilfell- um er þetta réttmætt. Framþróunin fetar slóðir, sem gera varfærni mjög nauðsynlega. Notkun margra nýrra lyfja krefst í fyrstu nákvæmara eftirlits en almennt verður með góðu móti við komið utan sjúkrahúsa. En einnig er réttmætt að gildi nýrra lyfja sé örugglega í ljós leitt, áður en tryggingar láta þau til sín taka. Reynslutíminn verður auðvitað mjög mismunandi en stjórnvöld- in, sem um þetta fjalla Jaurfa að gæta þess, að sjúkratryggingin veiti alltaf, eftir Jrví sem við verður komið, það bezta sem völ er á. Að því er greiðsluhlutfallið snertir liefur Svíþjóð líka farið aðra leið en Danmörk og ísland. Síðarnefndu löndin greiða jafn- mikinn hluta lyfjaverðsins, hvort sem keypt er mikið eða lítið í einu, dýrt eða ódýrt, — Danmörk % hluta, ísland oftast lielming en viss lyf að %. Svíþjóð greiðir ekki fyrstu 3 krónurnar af hverjum lyfjakaupum og aðeins helming afgangsins. Tilgangur: Að útiloka óverulegustu útgjöldin og gera minna eftirsóknarvert að fá lyfseðil fyrir lyfjum, sem hægt er að fá án hans — og spara þanng vinnuafl lækna og þar með út- gjöld fyrir samlögin. — Á hinn bóginn virð- ist það sannað mál, að 3-krónu reglan hefur valdið því að keyptir eru mun stærri skammtar í einu. Þá má og ætla að reglan stuðli óbeint að aukinni eftirspurn eftir dýrari lyfjum. Þetta táknar að tilganginum hefur aðeins að nokkru leyti verið náð, og að á móti árangrinum koma alvarlegir gall- ar. — Þetta olli því að enn var sett nefnd í málið, sem skilaði áliti — heilli bók — 1959 og lagði til alveg nýja skþran, sem sé, að liver tryggður maður beri sjálfur fyrstu 50 krónurnar (sænskar) á hverju almanaks- ári, en að samlögin greiði annað hvort 90% Jress sem umfram verður, eða 75% af allt að 250 kr. og 100% úr því. Svipuðu fyrirkomu- lagi var nýlega komið á í Frakklandi, en Jrar er sjálfsáhættan 3000 frankar á misseri. — Þessi skipan myndi í Svíþjóð kosta geysi- mikla skriffinsku, sem myndi Jjó aukast um allan helming ef komast ætti hjá að miða sjálfsáhættu-upphæðina við almannaksár, sem er mjög óeðlilegt, en ekki t. d. hvaða 12 mánaða tímabil, sem vera vildi. Uppá- stunga nefndarinnar mun hafa mætt mjög mikilli andspyrnu. Hér að framan hefur verið reynt að bera saman reglur Norðurlanda og benda á kosti og galla sem þeim eru samfara. Saman- burður milli landanna á árangrinum, að Jdví er varðar heildarmagn lyfjaneyzlunnar, er liins vegar mjög torveldur. — Upplýsing- ar um krónur á hvern tryggðan mann, um- reiknaðar eftir gengi, geta gefið algjörlega villandi svör. Ég hef þó gert smátilraun til að athuga hvar við hér í Reykjavík erum á vegi staddir í samanburði við Danmörku. Af 4070 lyfseðlum (sjá aths. við töfluna hér að framan) frá lyfjabúð í Reykjavík, voru þau lyf, sem að dönskum reglum falla í flokkana I, „lífsnauðsynleg“ og II, „sérlega Jrýðingarmikil“ lyf, verðlögð eftir danskri lyfjaverðskrá frá 1. jan. 1960, til að fá bend- ingu um 1) hve mikið af lyfjaútgjöldum okkar félli undir þessa flokka og 2) hlut-

x

Sveitarstjórnarmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.