Sveitarstjórnarmál - 01.06.1963, Page 18
SVEITARST JÓRNARMÁL
J(i
IÍR ÁHALDAHtíSINU.
HAKINN og skóflan eru smám saman að
víkja til hliðar í áhaldahúsi sveitarfélaganna
fyrir afkastameiri verkfærum. Stórvirkar vinnu-
vélar streyma til landsins í stærri stíl en nokkru
sinni áður. Margir kaupstaðir og kauptún hafa
tekið í notkun nýjar vélar, sem í senn grafa
skurði, lyfta jarðvegi á bíla, ýta og moka. Vinnu-
vélarnar koma í stað vinnuaflsins, en skortur á
jtví er nú eitt mesta vandamál í flestum bæjum
og þorpum hringinn í kringum landið.
Nýlega var kynnt í Reykjavík ný tegund
vinnuvéla af þeirri gerð, sem nú þykir mest ný-
lunda í. Vélar jjessar eru frá fvrirtækinu J. C.
Bamford (Excavators) Ltd. í Bretlandi, sem eru
stærsti framleiðandi heims í jressari gerð vinnu-
véla. Þær eru smíðaðar í 3 stærðum, en hingað
hafa komið 2 jieirra. Onnur kallast JCB-3 og
hin JCB-4. Sú fyrrnefnda vegur 5 tonn og hefur
5 tonna brotkraft á skurðgröfuskúffu. Hin síðar-
nefnda vegur um 7 tonn og hefur 10 tonna
brotkraft á skurðgröfuskúffu. Með báðum Jress-
um stærðum má fá margs konar áhöld til festing-
ar á gröfuarm til ýmissa nota.
Tækið er þó fyrst og fremst skurðgrafa. Og
jtað er frábrugðið öðrum svipuðum áhöldum, að
J)ví leyti að það er framleitt sem ein heild, en
í hliðstæðum verkfærum eru aukatækin útbúin
til áfestingar á dráttarvél, sem einnig er ætluð
til annarra nota.
Skurðgröfuskúffuna má fá í breiddum frá 12
tommum í 52 tonnnur. Skúffan á moksturstæk-
inu getur tekið allt frá 481 lítra í 1146 lítra, ef
mokað er léttu efni. A vélunum er rúmgott liús
með vinnuljósum og rafmagnsjmrrkum á glugg-
um. Minni vélin JCB-3 kostar kr. 428.000,00, en
hin stærri JCB-4 kr. 515.000,00.
Framangreindar upplýsingar voru veittar á
vinnuvélasýningu. sent umboðið hér á landi,
Glóbus h.f., gekkst fvrir. Forstöðumaður fyrir-
tækisins, Árni Gestsson, liefur skýrt svo frá, að
nokkur sveitarfélög liafi þegar fest kaup á þess-
um tækjum, og séu þau í notkun hjá Reykja-
víkurborg, á Akureyri, í Hafnarfirði, í Vest-
mannaeyjum, í Njarðvíkum og í Miðneshreppi.
Ljósmyndin var tekin á sýningunni og á að
gefa til kynna, hvaða möguleikum tækið býr
yfir. Armarnir geta lyft því frá jörðu með vökva-
krafti og á j)að að hindra að j)að festist í blaut-
unt jarðt egi eða mýri, og með vökvakrafti arm-
anna er hægt að láta tækið flytja sig yfir skurði.