Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 01.04.1981, Blaðsíða 25

Sveitarstjórnarmál - 01.04.1981, Blaðsíða 25
FJARMALARAÐSTEFNAN 1980 Hin árlega ráðstefna sambandsins um fjármál sveitarfélaga var haldin að Hótel Sögu 18. nóvember 1980. Ráðstefnuna sátu að þessu sinni 184 þátttakendur. Ján G. Tómasson, formaður sam- bandsins, setti ráðstefnuna með ræðu, bauð gesti velkomna og kynnti efni ráðstefnunnar. Ólafur Daviðsson, settur forstöðu- maður Þjóðhagsstofnunar, gerði grein fyrir helztu forsendum fjár- hagsáætlunar sveitarfélaga á árinu 1981 og breytingum frá fyrra ári. Yfirlit hans um það efni var birt i Sveitarstjórnarmálum 5. tbl. 1980. Einnig sýndi Ólafur yfirlit um helztu breytingar á tekjum og gjöld- um sveitarfélaga á árabilinu 1972 — 1980 og taldi fjárhagsafkomu sveitar- félaga vera ívið skárri seinustu árin heldur en á næstu árum á undan. Björn Friðfinnsson, forstöðumaður fjármáladeildar Reykjavíkurborgar kynnti áætlanir um breytingar á helztu útgjaldaliðum Reykjavíkur- borgar á árinu 1981 frá árinu 1980 og lagði fram ýmis gögn, sem borgin hefur til stuðnings við gerð fjárhags- áætlunar sinnar. Sýnishorn af slíkum vinnugögnum voru birt í 6. tbl. 1980. Páll Zóphóníasson, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, sagði frá reynslu bæjarstjórnar Vestmannaeyja af gerð framkvæmdaáætlunar kaupstaðarins 1977—1986 og þeim stuðningi, sem forráðamenn bæjarins telja sig hafa af þeirri vinnutilhögun að styðjast við slíka áætlun og endurskoða hana samhliða gerð fjárhagsáætlunar hvers árs. Ólafur Jónsson, formaður stjórnar Húsnæðisstofnunar ríkisins, skýrði frá helztu nýmælum nýrrar löggjafar um húsnæðismál og lýsti þeim möguleikum, sem sveitarstjórnir ættu völ á við fjármögnun félagslegra íbúðabygginga samkvæmt hinum nýju lögum. Erindi Ólafs birtist aftar í þessu tölublaði. Fjölmargar fyrirspurnir bárust Ólafi um framkvæmd hinna nýju laga, og svaraði hann þeim, en kom einnig á sérstakan fund um þau efni síðar um daginn. Sveitarstjórnir og heilbrigóismálin Að loknum hádegisverði á Hótel Sögu var rætt um hlutdeild sveitar- félaga í fjármögnun heilbrigðisþjón- ustunnar. Haukur Benediktsson, framkvæmda- stjóri Borgarspítalans og formaður Landssambands sjúkrahúsa, flutti framsöguerindi um hlutdeild sveitar- félaga í rekstri sjúkrahúsa og ræddi um rekstrarform þeirra. Erindi Hauks er birt aftan við þessa frásögn. Guðjón Ingvi Stefánsson, fram- kvæmdastjóri Samtaka sveitarfélaga i Vesturlandskjördæmi, flutti á hlið- stæðan hátt erindi um rekstur heilsu- gæzlustöðva og kynnti ýmsar hug- myndir, sem hreyft hefur verið um breytingar þar á. Framsöguerindi Guðjóns er einnig birt í þessu tölublaði. Unnar Stefánsson, ráðstefnustjóri, kynnti ýmis gögn, sem lögð voru fram á ráðstefnunni og skýrði frá álagn- ingu sveitarsjóðsgjalda á árinu 1980, en félagsmálaráðuneytið hafði þá ný- verið tekið saman yfirlit um hana. Framkvæmd manntalsins 31. janúar Klemens Tryggvason, hagstofustjóri, gerði fundinum grein fyrir fram- kvæmd manntalsins, sem fram skyldi fara 31. janúar 1981, og svaraði hann spurningum fundarmanna um til- högun þess. Framsöguerindi hagstofustjóra birtist í 6. tbl. 1980. Frá ráðstefnunni í Súlnasal Hótel Sögu. Fremstir vinstra megin á myndinnl sitja Ölvir Karlsson og Valdimar Óskarsson en handan borðsins sitja, talið frá vinstri: Gunnar Zoéga, Þórður Snæbjörnsson, Jóhannes Pétursson, Valgarður Bald- vinsson og Eiríkur Björnsson. SVEITARSTJÓRNARMÁL
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Sveitarstjórnarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.