Sveitarstjórnarmál - 01.01.2004, Qupperneq 26
Samstarfsverkefni Sambands íslenskra sveitarfélaga og Lýðheilsustöðvar/Áfengis- og vímuvarnaráðs:
@ VERTU TIL!
Samstarfsverkefnið Vertu til! hefur verið kynnt á aðalfundum landshlutasamtaka sveitarfélaganna, á
fundi með sveitarstjórnarmönnum á höfuðborgarsvæðinu og hefur fengið umfjöllun í ýmsum hópum og
nefndum. Sigríður Hulda Jónsdóttir og Svandís Nína Jónsdóttir verkefnisstjórar skrifa um verkefnið.
Vertu til! er samstarfsverkefni Sambands
íslenskra sveitarfélaga og Lýðheilsu-
stöðvar/Áfengis- og vímuvarnaráðs um að
efla áfengis- og fíkniefnaforvarnir sveitar-
félaga. Verkefnið er til þriggja ára. Megin-
inntak verkefnisins er fólgið í ráðgjöf og
upplýsingamiðlun um skipulag og fram-
kvæmd forvarnastarfs gagnvart ungu fólki.
Sveitarfélögin eru mjög mismunandi og
því er nauðsynlegt að taka tillit til þess.
Kynningar á verkefninu í ýmsum
sveitarfélögum
Verkefnið var kynnt fyrir sveitarstjórnarmönnum á öllu landinu á
aðalfundum Landshlutasamtaka sveitarfélaganna í haust. Á kynn-
ingarnar var auk sveitarstjórnarmanna sérstaklega boðað það fólk
innan hvers sveitarfélags sem vinnur að forvörnum eða hefur
áhuga á að gera það. Áhersla hefur verið lögð á að ná til þeirra
sem mest koma að forvarnastarfi í sveitarfélögunum og/eða vinna
með ungu fólki. Þessu fólki var boðið upp á tveggja klukkustunda
vinnufund þar sem fjallað var um hugmyndafræði og stefnumót-
um í forvörnum innan sveitarfélaga. Einnig vann þetta fólk saman
í hópum og ræddi um stöðuna og næstu skref í heimabyggð
sinni.
Viðtökur voru alls staðar mjög góðar og það var einkar
ánægjulegt að fá tækifæri til að koma á hina ýmsu staði til að
hitta fólk sem af áhuga vinnur að málefnum unga fólksins. Það er
Ijóst að mörg sveitarfélög sinna þessum málaflokki vel. Það er
ánægjulegt. Önnur sveitarfélög eru með ómótaðri stefnu. Því
miðar starf okkar að því að mæta hverju sveitarfélagi þar sem
það er statt og aðstoða við að efla forvarnastarfsemi á forsendum
heimamanna sem þekkja best allra umhverfi sitt. Við leggjum
áherslu á að efla grasrótina og styðja það sem þegar er vel gert.
Nefna má að þeir sem víðast komu á vinnufundina voru félags-
málastjórar, æskulýðs- og tómstundafulltrúar, skólastjórar, kennar-
Markmið og áherslur
V Forvarnir gegn sjálfseyðandi hegðun ungs fólks verði viðurkenndur og
sýnilegur málaflokkur í sveitarfélögum landsins
V Sveitarfélögin setji sér skriflega forvarnaáætlun
/ Sveitarfélög ráði forvarnafulltrúa sem hefur umsjón með stefnumörk-
un og framkvæmd
V Forvarnir verði fastur liður í starfi sveitarfélaganna og samþættur öðr-
um viðfangsefnum í stað þess að vera tímabundið átaksverkefni
V Forvarnir taki mið af aðstæðum á hverjum stað og þróist f takt við
starfsemi viðkomandi sveitarfélags
Sigríöur Hulda lónsdóttir.
ar, félagsráðgjafar, prestar, lögreglumenn,
læknar, hjúkrunarfræðingar, forvarnafull-
trúar bæjarfélaga og fleiri.
Þann 11. desember sl. var sveitar-
stjórnarmönnum á höfuðborgarsvæðinu
boðið á kynningarfund um verkefnið sem
haldinn var í húsnæði sambandsins. Á
fundinn mættu milli 20 og 30 manns sem
sýndu verkefninu mikinn áhuga og lífleg-
ar umræður sköpuðust í lok fundarins. í
framhaldi af þessum fundi verður boðað
til vinnufundar á vegum verkefnisins á
vormánuðum fyrir þá sem vinna með ungu fólki og/eða að for-
vörnum innan sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu.
Kynning á verkefninu fyrir nefndir og hópa
Verkefnið hefur einnig verið kynnt fyrir fjölmörgum hópum og
nefndum. Má þar nefna forvarnafulltrúa framhaldsskólanna,
æskulýðs- og tómstundafulltrúa landsins á vegum menntamála-
ráðuneytisins, hópinn Náum áttum, Saman hópinn, Fræðsluráð
Reykjavíkur, Forvarnanefnd Hafnafjarðarbæjar, Hitt húsið, Nýja
leið-ráðgjöf og fleiri.
Heimsíða - spjall og póstlisti
Heimasíða verkefnisins er vertutil.is Þar er að finna ýmsar upplýs-
ingar um verkefnið og forvarnamál. Markmið heimasíðunnar er
að allir geti notfært sér þær upplýsingar sem hún gefur, hvar sem
þeir eru á landinu. Einnig er þar boðið upp á spjall þannig að
fólk sem er að vinna að svipuðum málum hvert á sínum staðnum
geti ráðið ráðum sínum og deilt reynslu og hugmyndum. Þessu til
viðbótar heldur verkefnið utan um póstlista þeirra einstaklinga
sem sótt hafa kynningu á verkefninu. Póstlistinn verður notaður
til þess að koma á framfæri upplýsingum um hvaðeina sem nýtist
í þágu forvarna og uppeldismála.
Svandís Nína Jónsdóttir.
/ Litið sé á forvarnir sem langtímaverkefni eins og önnur viðfangsefni
sveitarfélagsins
/ Að efla samvinnu milli aðila sem vinna að forvarnamálum
Verkefnið leggur áherslu á:
/ Ráðgjöf til sveitarfélaga við uppbyggingu forvarnastarfs
/ Upplýsingamiðlun með heimasíðu, póstlista og fleiru
/ Að efla samvinnu aðila sem vinna að forvörnum
26