Sveitarstjórnarmál


Sveitarstjórnarmál - 01.04.2004, Page 19

Sveitarstjórnarmál - 01.04.2004, Page 19
Búskapurinn lífseigur Landbúnaður hefur lengi verið stundaður samhliða útvegsstarf- seminni í Grindavík og þá einkum sauðfjárbúskapur. Hann var þó alltaf aukabúgrein og jafnvel tómstundaiðja. „Útvegsbændurn- ir höfðu jafnan aðalviðurværi sitt af sjósókn eða starfsemi sem tengdist sjávarútvegi eins og raunar víðar um landið þar sem þannig háttaði til. Bú- skapurinn hefur þó ef til vill orðið lífseigari í Grindavík en annars staðar og setur enn nokkurn svip á samfélagið. Út- vegsbændur eru þó orðnir mun færri en áður þótt Grindvíkingar eigi enn um 600 til 700 fjár," segir Loftur. „Hins vegar er spurn- ing um hversu lengi búskapurinn mun haldast. Hann fylgir þeirri kynslóð sem ólst upp við þessa hætti en þegar hún hverfur má að gera ráð fyrir að yngra fólk eigi sér önnur áhugamál og þá áhuga- mál sem eru ekki eins bindandi og búfjárhaldið." Mynda eina heild Loftur segir að þróunin í sjávarútveginum og íbúafjölgunin, sem af henni hafi leitt, setji vissulega svip á mannlífið. „Mannlífið varð fjölbreyttara og umhverfi bæjarins breyttist einnig. Byggðin hefur vaxið mikið að flatarmáli og bærinn er miklu þrifalegri enda mikið verið lagt upp úr snyrtilegu umhverfi í seinni tíð. Fjölgun íbúa auðveldar einnig öðrum atvinnugreinum að festa sig í sessi. En þrátt fyrir þessar breytingar heldur bær- inn fiestum megineinkennum sínum. Það má ef til vill orða það með þeirri þversögn að ekkert hafi breyst þótt allt hafi breyst því gamli og nýi tíminn falla ágæt- lega saman og mynda heild í bæjarfélaginu." „Sumt af þessu fólki settist hér að. Ungir menn kynntust stúlkum hér syðra og stofnuðu heimili í Grindavík og aðrir fluttu fjölskyldur með sér. Ver- tíðarvinnan átti sinn þátt í fjölguninni." jGrindaginðinearm ,RistahliðL ,lðnaðatginðinearm ýmsar gerðir Grindagirðingar fyrir spermuvirki fyrir fyrirtæki fyrir stofnanir fyrir leikvelli fyrir umferðareyjur Ristahlið fyrir heimreiðar Iðnaðargirðingar fyrir vatnsból fyrir áhaldahús fyrir íþróttavelli SANDRIÁSTUR MÁLMftÚÐUN Árstíg 6 • 600 Akureyri ■ Sími 460 1500 • Fax 460 1501 www.sandblastur.is 19 Hönnun: Still

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.