Sveitarstjórnarmál - 01.11.2004, Blaðsíða 29
ar eru að ná fram niðurstöðu um lausn á
bráðavanda sveitarfélaganna og lagfær-
ingu á núverandi tekjustofnum og verða
umræður um ný verkefni og nýja tekju-
stofna að bíða á meðan að sögn nefndar-
manna sveitarfélaganna. Árni Þór og Krist-
ján Þór lýstu því yfir að takist ekki að fá
ríkið til að samþykkja tillögur sveitarfélag-
anna varðandi fyrstu tvö verkefnin þá
verði viðræðum einfaldlega ekki haldið
áfram, hvorki um tekjustofna þeirra né um
verkefnið um „eflingu sveitarstjórnarstigs-
ins", það er að segja flutningi verkefna frá
rfkinu til sveitarfélaganna og sameiningu
sveitarfélaga.
Niðurstaða fyrir aukalandsþing
í hverju felast hinar nauðsynlegu úrbætur
í tekjumálum sveitarfélaganna? I máli
Árna Þórs og Kristjáns Þórs kom fram að
leggja verði sérstakt aukaframlag í Jöfnun-
arsjóð á yfirstandandi ári. Fækka verði
undanþágum frá fasteignaskatti og breyta
skattlagning orkumannvirkja. Síðan verði
að fastbinda eitt útsvarshlutfall eða þá
hafa það frjálst og nýta lækkun tekjuskatts
í því sambandi. Þá sé nauðsynlegt að fella
niður skattlagningar á rekstur sveitarfé-
laga. Þeir ræddu síðan nokkuð um nýja
tekjustofna sem sveitarfélögin gætu hugs-
anlega nýtt. Þar á meðal fjármagnstekju-
skatt, tekjuskatt lögaðila, tryggingagjald,
tekjur af bifreiðum og veltuskatta. Einnig
ræddu þeir um svonefnda umhverfisskatta
og þar á meðal breytingu á úrvinnslu-
gjaldi og niðurfellingu undanþága frá
greiðslu á gatnagerðar- og lóðagjöldum. í
lok kynningar sinnar lýstu þeir eftir við-
horfum sveitarstjórnarmanna, hvaða af-
stöðu þeir hefðu til stöðu málsins, hvaða
áherslur þeir teldu mikilvægastar fyrir
sveitarfélögin og hvert veganesti þeir vildu
senda með fulltrúum sínum í tekjustofna-
nefndinni. Kváðust þeir vilja fá niðurstöðu
í þetta mál fyrir aukalandsþing Sambands
íslenskra sveitarfélaga sem haldið var 26.
nóvember sl.
. við gerum góðan bíl betri!
VERKFÆRI /OLIUVORUR
o onic
PRODUCTS
fá/vo/fne
verkfæri
Hringið
og fáið upplýsingar
l&/is/7Ars7e
Bildshöfða 8 - Simi 535 8800 - www.osg.is
Ertu að tala um 10 eða 100.000 áheyrendur? . Hvort sem er þá eigum við Afi f hljóðkerfi handa þér!
HLJÓÐKERFALEIGA // 552 8083
o
TOLVUMIÐLUN
SFS
vvww.tm.is