Sveitarstjórnarmál - 01.03.2012, Side 7
„Með nokkurri einföldun má segja að eftirlit og stjórnsýsla Umhverfis-
stofnunar og fleiri eftirlitsstofnana hafi á stuttum tíma færst úr ökkla
í eyra og hljóta sveitarfélögin að kalla eftir því að skynsemi ráði för...w
unin kvæði upp úr um mikilvæg framkvæmdaratriði á grundvelli laga
um meðhöndlun úrgangs, svo sem um gildissvið ákvæða laganna um
söfnun hauggass á eldri urðunarstöðum. Ákvæði laganna um að hefja
skyldi slíka gassöfnun frá 16. júlí 2009 voru því opin til túlkunar og var
töluverð óvissa hjá sveitarfélögum um hvernig ætti að haga fram-
kvæmd, t.d. um þá hluta urðunarstaða sem ekki voru lengur í notkun
þegar þessi lagaskylda gekk f gildi.
í ársskýrslu Umhverfisstofnunar fyrir árið 2011, sem er aðgengileg
á heimasíðu stofnunarinnar, er fjallað ítarlega um breyttar áherslur
stofnunarinnar varðandi eftirlit og framkvæmd þvingunarúrræða. Að
sjálfsögðu verður að sýna því skilning að hverfa verður frá ómark-
vissum vinnubrögðum við opinbert eftirlit og taka upp skilvirkari
stjórnsýslu. Sveitarfélög verða jafnframt að gera sér grein fyrir því að
í því felst töluverð alvara ef bréf berst frá eftirlitsstofnunum og að
slíkum erindum er nauðsynlegt að svara innan þess frests sem
veittur er.
Gjaldtaka fyrir eftirfylgd
Liður í breyttu verklagi Umhverfisstofnunar er m.a. að gjaldskrá stofn-
unarinnar var endurskoðuð á síðastliðnu ári og er nú kveðið á um
sérstaka gjaldtöku fyrir áminningu og aðrar þvingunaraðgerðir. Sveit-
arfélög sem ekki bregðast við ábendingum stofnunarinnar með því að
bæta úr því sem áfátt er í starfseminni geta því átt von á reikningi frá
stofnuninni, þar sem reiknað er ákveðið tímagjald fyrir ritun áminn-
ingarbréfa og annarra eftirlitsaðgerða, umfram hefðbundið, lögbundið
eftirlit.
Mikilvægt er að sveitarstjórnarmenn og stjórnendur sveitarfélaga
séu meðvitaðir um þetta breytta verklag og að sveitarfélögin leitist við
því að komast hjá óþarfa kostnaði vegna eftirlitsaðgerða sem hægt
væri að komast hjá með skjótum úrbótum. Einnig er ástæða til þess
að brýna fyrir starfsmönnum sveitarfélaga að hafa öll samskipti við
UST skrifleg til þess að allar upplýsingar liggi sannanlega fyrir við
meðferð einstakra mála. Þetta gildir bæði um efnisatriði mála og alla
tímafresti. Reynslan hefur t.d. sýnt að ekki er nóg að óska símleiðis
eftir lengri fresti til aðgerða eða til að veita frekari upplýsingar, ávallt
ætti að óska eftir staðfestingu á slíkum atriðum í bréfi eða tölvupósti.
Ábendingar til Umhverfisstofnunar
Starfsmenn Sambands íslenskra sveitarfélaga hafa komið athuga-
semdum á framfæri við Umhverfisstofnun um ýmis atriði sem varða
framkvæmd eftirlits. Má þar nefna að sveitarfélögin telja eðlilegt að
við lok eftirlitsheimsóknar liggi fyrir skriflegt yfirlit um þau atriði sem
gerðar eru athugasemdir við I starfseminni, í stað þess að slíkt yfirlit
komi ekki fram fyrr en að einhverjum mánuðum liðnum.
Einnig hafa fulltrúarsambandsins rætt almennt við Umhverfisstofnun
um samskipti stofnunarinnar við sveitarfélög og virðist Ijóst að hægt
er að bæta þessi samskipti frá báðum hliðum. Sveitarfélögin geta án
efa komið úrbótum fyrr í framkvæmd en oft hefur verið reyndin en á
sama hátt getur UST oft á tíðum sýnt meiri sanngirni í samskiptum við
sveitarfélögin og tekið meira tillit til sjónarmiða og mismunandi að-
stæðna en nú er gert. Þessum sjónarmiðum verður fylgt eftir af hálfu
sambandsins gagnvart bæði Umhverfisstofnun og umhverfisráðu-
neytinu, m.a. í tengslum við þær breytingar sem nú er unnið að á
vegum ráðuneytisins við endurskoðun laga um meðhöndlun úrgangs
og laga um hollustuhætti og mengunarvarnir.
Með nokkurri einföldun má segja að eftirlit og stjórnsýsla Um-
hverfisstofnunar og fleiri eftirlitsstofnana hafi á stuttum tíma færst úr
ökkla í eyra og hljóta sveitarfélögin að kalla eftir því að skynsemi ráði
för við framkvæmd eftirlits ásamt því að lögð verði meiri áhersla á
samræmingar- og leiðbeiningarhlutverk slíkra stofnana en nú er gert,
t.d. með útgáfu vandaðra, samræmdra starfsleyfisskilyrða af hálfu
Umhverfisstofnunar. Raunar hefur það lengi verið afstaða Sambands
íslenskra sveitarfélaga að Umhverfisstofnun eigi að leggja megin-
áherslu á þetta samræmingarhlutverk sitt og að beint eftirlit sem
stofnunin hefur nú með höndum ætti að stærstum hluta að flytjast á
ábyrgð heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga.
Vega- og framkvæmda-
merkingar
vVO
Pu ekurá
Síðumúla 28
108 Reykjavík
Sími 510 5100
www.ismar.is
ISMMt
Við mælum með því besta
7