Sveitarstjórnarmál - 01.03.2012, Blaðsíða 13
Sömu vandamálin í Evrópu og hér
Undir lok setningarræðu sinnar á XXVI.
landsþingi Sambands íslenskra sveitar-
félaga ræddi Halldór Halldórsson, formaður
sambandsins, um för sína á sveitarstjórnar-
þing Evrópuráðsins, sem haldið var nýlega í
Strassbourg en þar hafa íslendingar átt þrjá
fulltrúa um langt skeið. Halldór sagði að
heyra hefði mátt á þinginu að sveitarstjórnar-
menn í Evrópu stæðu flestir í sambærilegum
sporum og (slendingar og væru að fást við
sömu vandamálin og hér á landi.
„Nánast alls staðar virðast vera mikil
vandamál til að takast á við; vandamál sem
að mati margra kalla á endurskilgreiningu
opinberrar þjónustu. Nær allir töluðu um
gríðarlega lækkun skatttekna vegna lækkun-
ar á skattagrunninum. Margir lögðu áherslu
á að sveitarstjórnarstigið í löndum Evrópu
hefði ekki skapað efnahagshrunið en sæti
uppi með vandamálið. Grikkir leggja áherslu
á samstöðu innan Evrópu því þetta séu of
stór mál fyrir einstakar þjóðir. Velferðarkerfi
heilu þjóðanna séu í hættu og það skapi
mikla hættu innan Evrópu, ekki bara meðal
einstakra þjóða."
Halldór sagði að mikil áhersla hefði verið
lögð á slæma stöðu yngra fólksins vegna
atvinnuleysis og Bretar hafi m.a. talað um
týndu kynslóðina. Halldór sagði að margir
hafi talað um alvöru samvinnu milli ríkis og
sveitarfélaga, því miður sé ekki alltaf svo.
Traust sé því miður ekki að finna í öllum til-
fellum. „Ef ríkisstjórnir myndu nýta sér þekk-
ingu sveitarstjórnarstigsins og hlusta á full-
trúa þess væri niðurstaðan miklu betri en
hún er í dag," sagði Halldór og tók þar með
undir sjónarmið starfsbræðra sinna og systra
á meginlandi Evrópu.
AFLANN I ÖRUGGA HÖFN!
Aflinn og áhöfnin eru í öruggum höndum hjá
FMIS í Reykjavík og á Akranesi, kynntu þér kostina á
www.fmis.is
Fiskmarkaðir FMIS í Reykjavík og á Akranesi eru afar álitlegir kostir fyrir alla sem
stunda sjósókn, hvort sem um ræðir smærri báta eða togara. Aðstaðan er nýupp-
gerð og öll hin glæsilegasta.
Stutt í alla þjónustu
Varahlutir í skip
Slippur
Veiðarfærasala
Höfuðstöðvar helstu viðskiptafyrirtækja
Heilsugæsla / Landsspítali
Afþreying
Góð viðlega, löndunarkranar, rafmagn og vatn
Faxaflóahafnir sf
Associated
lcelandic
Ports