Sveitarstjórnarmál - 01.03.2012, Blaðsíða 11
I
Miklar væntingar en málið þarf
að vera viðráðanlegt
Yið verðum að greina hverjar helstu
áskoranirnar eru við innleiðingu á not-
endastýrðri persónulegri aðstoð í þjónustu
við fatlað fólk. Mun NPA hafa áhrif á aðra
þjónustu sveitarfélagsins f málaflokki fatlaðs
fólks, þar á meðal félagslega heimaþjónustu,
félagslega liðveislu og frekari liðveislu svo
dæmi séu nefnd? Mun hugmyndafræðin á
bak við notendastýrða persónulega aðstoð
hafa áhrif á þróun annarrar þjónustu sveitar-
félagsins? Sjá menn fyrir sér að þetta fyrir-
komulag á þjónustu, sem notendastýrð
persónuleg aðstoð er, geti hentað í þjónustu
við aldraðra íbúa sveitarfélaga?"
Þessum spurningum varpaði Halldór
Halldórsson, formaður Sambands íslenskra
sveitarfélaga, fram í setningarræðu sinni á
XXVI. landsþingi sambandsins á dögunum.
Hann kvað ótta ríkjandi við að aukin persónu-
leg aðstoð muni kalla á aukin útgjöld frá því
sem nú er. Þess vegna verði sveitarstjórnar-
menn að vera mjög vel meðvitaðir um hvert
það skref sem stigið verði í þeim efnum.
Halldór sagði miklar og skiljanlegar vænt-
ingar í þessum efnum og gera verði eins vel
og hægt sé en allt verði þó að vera viðráðan-
legt. „Það er ekki gott að fara af stað með
svona mikilvægt mál og standa ekki við það
sem lagt er af stað með. Slíkt væri hreinlega
virðingarleysi gagnvart okkar umbjóðendum,
okkar íbúum sem eru fatlaðir og vilja fá
notendastýrða þjónustu. Ríkið hefur verið
með málefni fatlaðra í áratugi, sveitarfélögin
tæpa 15 mánuði. Samt heyri ég alþingis-
menn tala núna um málefni fatlaðra í
kröfugerðargírnum. Ég vara við slíku tali
og kalla eftir ábyrgri umræðu um þessi mál
af hálfu allra sem að því koma," sagði
Halldór.
h-2011
Það sparast pláss og tími
með lausnum frá Rými
'ábærar lausnir fyrir stofnanir, einstaklinga og fyrirtæki
>lu- og lagerhillur
skápar á hjólum
manna- og munaskápar
narinnréttingar
og fataslár
ikúffur og bakkar
og hitakerfi
át - úti og inni
Erum flutt í Brautarholt 26, 105 Reykjavík, sími 511-1100 - rymi@rymi.is - www.rymi.is
11