Sveitarstjórnarmál - 01.03.2012, Qupperneq 14
Grindavíkurboer
Sókn í atvlnnu■ og menntmálum
Róbert Ragnarssonar, bæjarstjóri í Grindavík, reit grein í fréttablað Grindavíkurbæjar,
Járngerði, nokkru fyrir síðustu áramót. Þar sagði hann m.a. að breiðan hóp þurfi til að
byggja upp jákvæðan og uppbyggilegan anda sem sé forsenda þess að ná árangri.
Ætti það alls staðar við og að árangur byggðist á skýrri framtíðarsýn, metnaði, góðri
liðsheild og stuðningi fjölmargra aðila. í greininni benti hann á að samfélagsum-
gjörðin í Grindavík væri mjög góð þótt eflaust mætti bæta hana enn frekar. Róbert
sagðist í samtali við Sveitarstjórnarmál hafa viljað vekja fólk til umhugsunar um mark-
mið og árangur í menntun og í íþróttum með þessari grein. Hann benti á að í íþrótt-
um vildu menn bera sig saman við það besta og það sama ætti að gilda um skólann
og varpaði hann fram spurningu um hvort árangur í íþróttum væri mikilvægari en
árangur í námi. Róbert ræddi þessi mál nokkuð og önnur sem tengjast Grindavíkurbæ
en áður en spjallið hefst er rétt að grípa frekar niður í grein hans í Járngerði.
Við erum með um 460 nemenda heild-
stæðan grunnskóla. Allir kennarar við
skólann eru vel menntaðir og með kennslu-
réttindi. Hópurinn er áhugasamur og metn-
aðarfullur. Húsnæði skólans er eins og best
verður á kosið og tæki og annar búnaður er
mjög góður. Grindavíkurbær rekur félags- og
skólaþjónustu sem sinnir einum skóla, tveim-
ur leikskólum og einum tónlistarskóla auk
félagsþjónustunnar. Þar erum við með frá-
bært starfsfólk með fjölbreytta reynslu og
þekkingu. Það eru ekki mörg sveitarfélög
sem búa við það góða aðstöðu.
Grindavík er mikill íþróttabær. Metnað-
urinn er mikill og aðstaðan frábær. Grindvík-
ingar sætta sig ekki við neitt annað en að
vera í fremstu röð. í hópi 10 til 15 bestu liða
landsins. Sé miðað við samræmd próf er
Grunnskóli Grindavíkur meðal fimm bestu
grunnskóla á Suðurnesjum, en vel fyrir neðan
meðaltal á landsvísu. Að mínu mati ættum
við að setja markið hærra, enda með allar
forsendur til þess. Það sem upp á vantar er
samstaða heimila, skóla og bæjaryfirvalda
með skýr markmið að leiðarljósi.
Á þeim stutta tíma sem ég hef búið
hérna hef ég orðið var við metnað og áhuga
foreldra á því að taka þátt í íþróttastarfinu
með börnunum sínum. Þann sama metnað
og áhuga vil ég sjá gagnvart skólastarfinu. Á
aðalfundi foreldrafélagsins í nóvember mættu
um 15 foreldrar, en nemendur grunnskólans
eru um 460. Á foreldrafundi hjá 4. flokki
karla mættu 18 foreldrar, en iðkendur eru
um 20. Það er eitthvað skakkt við þessa
mynd. Menntun barnanna okkar getur ekki
verið minna spennandi en íþróttastarfið.
Foreldrar verða að sýna sama metnað og
Séð yfir Bláa lónið og fjallið Þorbjöm
til Grindavikur.
14 ------- <jgþ