Sveitarstjórnarmál - 01.03.2012, Page 19
fyrir svona ferðir. Við þurfum að horfa meira
á þennan þátt og íhuga hvernig við getum
nýtt ferðaþjónustuna til frekari atvinnusköp-
unar og þá er ég ekki síst að horfa til þess að
auðvelda konum að finna sér viðfangsefni
hér sunnan á Reykjanesinu."
Úr veiðisókn í markaðssókn
Róbert minnist á hafnarsvæðið í Grindavík-
urbæ. „Höfnin hér er mjög lifandi athafna-
svæði - sannkallað hjarta bæjarins. Það eru
fáar svona hafnir í nágrenni við höfuðborg-
arsvæðið, líklega þarf að fara allt vestur til
Grundarfjarðar til þess að finna álíka lifandi
höfn. Þá má einnig geta þess að Vísir í
Grindavík er með starfsemi austur á Djúpavogi
og á Húsavík og með því er verið að flytja
atvinnu út til annarra byggðarlaga."
Hann telur að umræða um sjávarútveg á
íslandi sé byggð á röngum forsendum. „Á
síðustu öld byggðist sjávarútvegurinn á því
að sækja sem mestan fisk í hafið. í dag snýst
hann um að fá sem hæst verð á markaði.
Hugmyndir um að skilja á milli veiða og
vinnslu eða fjölga skipum á sjó, munu eyði-
leggja þann hvata. Fiskur sem kemur að landi
um klukkan fimm á morgnana hér í Grindavík
er farinn ferskur úr landi með flugi um 12
tímum síðar og kominn ferskur á markað
erlendis aðeins einum sólarhring frá því að
hann kemur úr sjó. Svo má ekki gleyma allri
virðiskeðjunni sem útvegurinn leiðir af sér og
þeim breytingum sem hafa átt sér stað.
Aflametin eru ekki slegin lengur enda ekki
verið að keppa um þau eins og áður var held-
ur er áherslan lögð á vandaða vöru og sem
hæst verð."
Róbert segir veiðisóknina hafa breyst í
markaðssókn. „Fyrirtækin eru að vinna vör-
una eins og viðskiptavinurinn vill fá hana og
reyna að fá sem best verð fyrir. Rómantíkin
sem stundum varð til á vertíðunum með allar
bryggjur fullar af fiski hefur ef til vill tapast
en við höfum fengið meiri verðmæti í
staðinn," segir bæjarstjórinn í Grindavik að
lokum.
HS Orka hf • Brekkustíg 36 • 260 Reykjanesbæ
Sími: 422 5200 • Fax: 421 4727 • Netfang: hs@hs.is
HS ORKA HF
SJOVA
N^i ern
llgkt | nn
Plastprent hf.
19