Sveitarstjórnarmál

Årgang

Sveitarstjórnarmál - 01.03.2012, Side 22

Sveitarstjórnarmál - 01.03.2012, Side 22
 Fréttir Lánasjóður sveitarfélaga Hagnaðist um 951 milljón króna Lánasjóður sveitarfélaga skilaði 951 milljónar króna hagnaði á síðasta ári. Til samanburðar var hagnaðurinn 1.248 milljónir kr. árið 2010. Munur milli ára skýrist aðallega af gengisþróun evrunnar, en sjóðurinn var ekki með opna gjaldeyrisstöðu sem neinu nemur á árinu 2011. í tilkynningu frá sjóðnum kemur fram að útborguð langtímalán Þú getur treyst okkar rörum •RKA loftorka@loftorka.is styrkurinn Aratuga reynsla rörasteypu Loltorku i BoKjarnesi oci tullkomiiar vclar tryggja gæðin i Iramleiðslu lyrirtækisins. Nákvarmni framleiðslunar og mælingar röra, lcka og þrýstipróf ásamt l)rot|)olsprólana setja rörin okkar i fromstu röð. Vey(j|)ykkt röranna cr mun meiri en áðtir hfifur þekktst þess vegna segurn við að i þyngdinni lelst styrkurlnn. voru 6,8 milljarðar króna á síðasta ári samanborið við tæplega 6,4 milljarða króna árið 2010. Sjóðurinn hefur ekki tapað útláni frá því að hann hóf starf- semi árið 1967 og engin vanskil voru í árslok 2011. Sveitarfélögin bera ekki ábyrgð á skuldbindingum sjóðsins, en tryggingar fyrir útlánum hans eru í tekjum sveitarfé- laga. Eigið fé í árslok 2011 var rúmlega 15 milljarðar króna á móti rúmlega 14 milljörðum árið áður. Eiginfjárhlutfall var 58% í árslok 2011 en var 78% íárslok 2010. Óttar Guðjónsson, fram- kvæmdastjóri Lánasjóðs sveitarfélaga. Nýr sveitarstjóri Skeiða- og Cnúpverjahrepps Kristófer A. Tómasson hefur tekið við starfi sveitarstjóra Skeiða- og Gnúpverjahrepps. Kristófer er fædd- ur 1965 í Helludal í Biskupstungum. Hann er viðskiptafræðingur að mennt en auk þess er hann lærður húsasmiður og búfræðingur. Kristófer hefur starfað í rúman áratug í Selfossútibúi Arionbanka og forverum þess banka. Frá 2001- 2008 starfaði hann í fyrirtækja- þjónustu bankans og frá 2008 til janúar 2012 var hann útibússtjóri. Árin 2000-2001 var Kristófer skrifstofustjóri hjá Árvirkni ehf. á Blönduósi og um 12 ára skeið, 1987-1999, var hann svínabóndi í Helludal. Kristófer hefur starfað lengi innan Lionshreyfingarinnar og er þar í yfirstjórn. Eiginkona Kristófers er Sigrún Jóna Sigurðardóttir matreiðslu- kennari, þau eiga eina dóttur. Fjölskyldan er búsett á Selfossi en stefnir á búsetu í Skeiða- og Gnúpverjahreppi innan tíðar. KristóferA. Tómasson. GrantThornton 22

x

Sveitarstjórnarmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.