Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 01.10.2013, Síða 26

Sveitarstjórnarmál - 01.10.2013, Síða 26
Fjármál sveitarfélaga efna og segir sveitarstjórnarmenn alveg færa um að gera það vel ef allar forsendur liggi uppi á borði. „Nú er verið að ræða um yfir- töku á málefnum aldraðra sem ég held að yrði mjög gott. En menn verða að hafa allt sviðið fyrir framan sig eins og það er. (dag er ákveðin stefna um hvernig hjúkrunarheimili eiga að vera. Ég hef heyrt því fleygt fram að það kosti um 70 milljarða króna að breyta núverandi hjúkrunarheimilum í þá veru sem stjórnvöld gera kröfu um. Þetta samsvarar því að ef allt gjald í Framkvæmdasjóð aldraðra yrði notað til þessa þá erum við að tala um að það tæki nokkra áratugi að breyta nú- verandi húsnæði hjúkrunarheimila í það ástand sem kröfur eru um að það eigi að vera." Hann segist að auki geta nefnt að af 1.662 milljóna gjaldi í Framkvæmdasjóð aldr- aðra árið 2012 hafi einungis um 150 milljónir króna skilað sér til uppbyggingar fyrir aldraðra, samkvæmt upplýsingum á vef velferðarráðuneytisins. „Ég veit ekki hvort ég er að oftúlka það en mér sýnist að þetta gjald, sem við höfum verið að borga, sé að mestu notað til þess að greiða vexti í stað Sveitarfélögin hafa víða gert stórátak á sviði iþrótta. Myndin er tekin i nýlegu íþróttahúsi Kópavogsbæjar. þeirra framkvæmda sem það er ætlað í, samkvæmt lögum þar um. Á sama tíma og verið er að úthluta innan við 10% af fram- kvæmdagjaldinu árið 2012 til framkvæmda vegna öldrunarmála eru sveitarfélögin að greiða háar fjárhæðir vegna hjúkrunar- heimila. Það er ótækt því þau heyra undir ríkissjóð." Ríkið hefur varpað ábyrgðinni á sveitarfélögin Haraldur segir að áður en verkefni af þessu tagi verði fært til sveitarfélaganna þurfi fjár- málin að vera alveg á hreinu. „Nokkur hjúkr- unarheimili f landinu eru starfrækt á vegum sveitarfélaganna. Það er eins og ríkinu hafi tekist að varpa ákveðinni ábyrgð á rekstri þeirra yfir á sveitarfélögin eins og ábyrgðin sé þeirra. Sveitarfélögin hafa vítt og breitt um landið tekið þennan rekstur að sér sem og uppbygginguna. Ríkið hefur síðan komist upp með að skammta peninga eftir geðþótta stjórnvalda á hverjum tíma og sveitarfélögin hafa tekið það sem upp á hefur vantað á sig. Mér finnst þetta alls ekki sanngjarnt." Hann segir að sveitarfélögin verði að snúa vörn í sókn miðað við stöðuna eins og hún er í dag. „Við yfirtöku nýrra málaflokka þarf að semja út frá þeim forsendum sem eru fyrir hendi og ríkið þarf að koma með fjármuni til þess að standa undir þeim útgjöldum sem sveitarfélögin taka á sig." Skattgreiðendur framtiðarinnar. Ef til vill fá þeir tækifæri til þess að greiða lægra útsvar en tiðkast i dag. 26

x

Sveitarstjórnarmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.