Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 01.10.2013, Síða 34

Sveitarstjórnarmál - 01.10.2013, Síða 34
Jafn réttismál „Akureyrarkaupstaður og Reykjavik skera sig úr hvað varðar jafnréttisstarf á fjölmörgum sviðum," segir Kristin m.a. í viðtalinu. Myndin er tekin á sameiginiegum fundi bæjarstjórnar Akureyrarkaupstaðar og borgarstjórnar Reykjavikur i Hofi á Akureyri snemma á þessu ári. Mynd: Ragnar Hólm. m.a. í Svfþjóð og Færeyjum en á eyjunum 18 vantar hvorki meira né minna en 2.000 konur á vinnu- og barnseignaaldri. Þær búa í Dan- mörku. Skýringarnar felast í einhæfri vinnu en kannski enn frekar ríkjandi karlrembu og sums staðar, t.d. á Grænlandi er svo mikið of- beldi, drykkjuskapur og félagsleg vandamál að flótti er einasta leiðin." Millibil milli karla og kvenna að verða ógnvænlegt „Mér finnst stjórnvöld hér á landi alls ekki gefa þessari þróun nægi- legan gaum en hún er hægari hér en víða annars staðar á norður- slóðum. Konum fækkar víða á landsbyggðinni, þær eru að mennta sig í miklu ríkari mæli en karlar og eiga ekki afturkvæmt vegna skorts á sérhæfðum störfum og kannski karlrembu en það hefur ekki verið nægilega kannað hér." Hún segir að menntabilið milli kvenna og karla hér á landi sé að verða ógnvænlegt. „Hvað er eiginlega að gerast? Konur eru nú rúm- lega 2/3 þeirra sem útskrifast úr háskólum. Hvað eru ungir íslenskir karlar að hugsa? Eigum við ekki að velta því upp og grípa til að- gerða?" Kristín var á ráðstefnu fyrr á þessu ári hjá Evrópusambandinu þar sem fjallað var um mannfjöldaþróun í Evrópu. „Ég var með erindi og sýndi glæru sem sýnir menntabilið milli kvenna og karla. Á eftir komu til mín sérfræðingar frá OECD sem spurðu hvað í ósköpunum væri að gerast hér á landi? Það er góð spurning sem þarf að svara." Útrýma þarf aldagamalli hugmynd Kristín kveðst ekki geta látið hjá líða að nefna launamisréttið en nýjar kannanir sýna enn einu sinni að það er til staðar og kemur engum á óvart. „Nokkur sveitarfélög, t.d. Akureyrarkaupstaður, hafa unnið markvisst að því að vinna gegn launamisrétti og hafa þar náð veru- legum árangri. Sama gildir um Reykjavíkurborg, Reykjanesbæ o.fl. en reynslan sýnir að ef ekki ef fylgst með reglulega, leitar launaskriðið til karla og bilinu er við haldið. Við þurfum að vinna miklu markvissar að því að útrýma þeirri aldagömlu hugmynd að karlar eigi að hafa hærri laun en konur. Þar leika sveitarfélögin stórt hlutverk en þau eru víða einn stærsti vinnuveitandinn á sínu svæði." Jafnrétti í nefndum Kristín minnir á að eftir næstu kosningar gangi í gildi breytingar á sveit- arstjórnarlögunum hvað varðar nefndir og ráð sveitarfélaganna. „( jafn- réttislögunum frá 2008 (15. gr.) er kveðið á um þær skyldur sveitar- félaga að hlutur hvors kyns um sig skuli ekki vera minni en 40% þegar um er að ræða nefndir eða ráð með fleiri en þrjá fulltrúa. Mörg sveitar- félög hafa staðið sig mjög vel hvað þetta varðar en önnur hunsa lögin. (lögunum er gert ráð fyrir hlutlægum og málefnalegum ástæðum þess að víkja frá þessari reglu sem getur auðvitað reynt á þegar um kjörna fulltrúa er að ræða. Flokkar eiga mjög oft aðeins einn fulltrúa, annað LANASJOÐUR SVEITARFELAGA ohf. Borgartúni 30 • Pósthólf 8100 • 128 Reykjavík www.lanasjodur.is • lanasjodur@lanasjodur.is sími: 515 4949 • fax: 515 4903

x

Sveitarstjórnarmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.