Sveitarstjórnarmál

Volume

Sveitarstjórnarmál - 01.10.2013, Page 38

Sveitarstjórnarmál - 01.10.2013, Page 38
Reykjavíkurborg Áhersla er á hjólreiðar sem samgöngumáta i nýju aðalskipulagi Reykjavikur. Nú hefur hjólreiðakeppnin Tjarnarspretturinn verið endurvakin. Myndin er frá hjólreiðakeppni fyrir nokkrum árum. fleirum kost á að búa þar og njóta þeirra lífs- gæða sem felast í því. Fólk vill hægja á umferðinni Umferðarmenningin er einnig tekin til endur- skoðunar í hinu nýja aðalskipulagi. Umferðin er ríkur þáttur í skipulagi og mannlífi og þar þarf að samræma þarfir fólks um friðsæld og öryggi annars vegar og að komast leiðar sinnar hins vegar. Fyrir skömmu var gerð könnun á umferð- armálum meðal borgarbúa þar sem fólk var spurt hver væri helsti gallinn við hverfið þess. Algengasta svarið við þessari spurningu var bílaumferðin. Umferðarmálin hafa verið til umræðu árum saman og oft verið „heitustu" málin á fundum foreldrafélaga í skólum og á íbúafundum. Fólk vill hægja á umferðinni í sínu hverfi. ( þessu er meðalhófið þó oft vandratað og deilur um umferðarmál geta sett svip á borgarmálaumræðuna. Skiptar skoðanir um flugvallarmálið Vegna áhuga margra borgarbúa á byggð í Vatnsmýrinni tengist flugvallarmálið gerð hins nýja aðalskipulags. Skoðanir eru hins vegar mjög skiptar um framtíð flugvallarins og er hún orðin að tilfinningamáli á meðal landsmanna eins og sjá má af nýlegri undir- skriftasöfnun til stuðnings flugvellinum. Ný skoðanakönnun Gallup sýnir ennfremur að um 82% landsmanna vilja Reykjavíkurflug- völl áfram í Vatnsmýrinni. Næstum einróma stuðningur er við stað- setningu flugvallarins í Vatnsmýrinni á meðal fólks sem býr utan Reykjavíkursvæðisins á meðan kannanir gefa til kynna áhuga Reyk- víkinga á byggingum í Vatnsmýrinni. Þó er meirihluti borgarbúa hlynntur því að flugvöll- urinn verði þar áfram, ef marka má skoð- anakannanir. Einnig er Ijóst að flutningur flugvallarins eða hraðtenging miðborgar Reykjavíkur við Keflavíkurflugvöll kosta umtalsverða fjár- muni sem spurning er hvort séu fyrir hendi. Bent hefur verið á að skipulagsvaldið sé hjá borginni samkvæmt skipulagslögum. Á hinn bóginn er spurning hvort vilji borgaryfirvalda standi til þess að nýta það vald til að fara með ófriði gegn landsbyggðinni, sjúkraflugi og öðrum þjóðlífsþáttum þar sem bent hefur verið á mikilvægi Vatnsmýrarflugvallarins. ( flugvallarmálinu er meðal annars deilt 38 ------ <%> um hvort verðmæti landsins í Vatnsmýrinni myndi standa undir gerð annars flugvallar eða hraðtengingar við Keflavíkurflugvöll, yrði landið tekið undir íbúðabyggð og nokkra atvinnustarfsemi. Andstæðingar flugvallarins vitna til skýrslu sem samgönguráðuneytið lét gera fyrir nokkru og sýnir þjóðhagslega hag- kvæmni þess að finna flugvellinum nýjan stað og nýta Vatnsmýrina undir íbúðabyggð og atvinnustarfsemi. Mun dýrara að byggja austast í borginni ( nýlegu tölublaði tímaritsins Vísbendingar er vitnað til rannsóknar þar sem sýnt er fram á að árlegur kostnaður samfélagsins og ein- staklinga við að byggja nýtt hverfi fyrir 15 þúsund manns á útivistarsvæðunum austast í borginni er þremur til fjórum milljörðum króna meiri en ef sami fjöldi byggi í Vatns- mýrinni. Spurningin er á hinn bóginn þegar þessar tölur eru skoðaðar hvort ódýrara geti verið að byggja nýjan flugvöll en að teygja byggðir Reykjavíkur lengra til fjalla og heiða en gert hefur verið. ( hinu nýja aðalskipulagt er lagst gegn fleiri fjalla- og heiðabyggðum, að minnsta kosti í bráð. Það er í þínum höndum að ákveð< endurvinnslu. Vel gæti reynst að byrjí þú venst hugmyndinni. I öllum sveit^ þeirra taka við pappa, pappír og plas Nánari upplýsingar og einföld ráð urr www.urvinnslusjodur.is/endurvinnsl^ SORRA MP E endi

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.